Fylkir - 17.10.1958, Side 1
Métgagn
Sjálfstæði**
flokkiftii
10. árgangur Vestmannaeyjum 17. okt. 1958 28. tölublað.
Kommúnistar
stórtapa fylgi
Missa á einum degi 27 fulltrúa í 6 verkalýðsfélögum.
í kosn'ingum þeirn, sem fram
fóru s. 1. sunnudag í nokkr-
um verkalýðsfélögum, um full-
trúa á Alþýðusambandsþing,
töpuðu kommúnistar 27 fulltrú
um í 6 verkalýðsfélögum, þar
á meðal fjórúm fulltrúum frá
Vestmannaeyjum. Þeir töpuðu
16 fulltrúum í Iðju, 5 fulltrúum
í Trésmíðafélagi Reykjavíkur,
tveim í Vélstjórafélagi Vest-
mannaeyja og tveim — raunveru
lega þrem — í Verkalýðsfélagi
Vestmannaeyja. Auk þess misstu
þeir fulltrúa í Hnífsdal og á
Skagaströnd.
Sfórfellt tap:
Svo vikið sé að kosningunum
liér, þá er það augljóst mál, að
tap kommúnista hér í bæ er
stórfellt. Þeir fengu 1956 full-
trúa í báðum þeim félögum,
sem kosið var í, samtals 5, en
nú engan. Ekki vantaði það þó,
að reynt væri að berjast til þraut
ar, og var teflt á tæpasta vaðið
í mörgum atriðum, svo sem nú
mun greint lauslega frá.
Kjörstjórnirnar:
Það fer að verða rannsóknar-
efni, hvernig kjörstjórnir haga
störfum hér í bæ. í síðasta blaði
var minnzt á kjörstjórn Verka-
lýðsfélagsins og forystu Sigurð-
ar Stefánssonar í henni. Til-
burðirnir í Vélstjórafélaginu
eru þó engu ómerkilegri þótt
þeir væru nokkuð með öðrum
liætti.
Þegar framboðsfrestur var
um það bil að renna út, var
listum skilað, svo sem vera ber.
Gerði kjörstjórn Vélstjórafélags
ins enga athugasemd við list-
ann, sem merktur var með B
og borinn fram af andstæðing-
um kommúnista. Samþykkti
hún að auglýsa kosningu og
láta hana fara fram lögurn sam-
kvæmt. En svo skeður það, að
einn kjörstjórnarfulltrúi tilkynn
ir formanni kjörstjórnar, að séi
hafi borizt til eyrna, að efsti
maður B listans, Ingólfur Arn-
arson, rnuni ekki vera kjör-
gengur skv. 5. gr. laga Vélstjóra
félagsins, vegna þess að hann sé
atvinnurekandi.
Kjörstjórn tók nú málið til
nýrrar meðferðar og samþykkti
að gefa umboðsmönum B-list-
ans kost á lagfæringu. Fór kjör-
stjórnin þannig ofan í sjálfa sig,
afturkallaði fyrri ákvörðun sína
og frestaði framkvæmd kosninga
um tiltekinn tíma. Urðu rnarg-
víslegar umræður um þetta mál,
og lyktaði þeim þannig, að
breytt var um nafn efsta manns
á listanum. Kjörstjórnin fékkst
ekki ofan af því, að Ingólfur
Arnarson væri „atvinnurek-
andi“, af því að hann er í stjórn
félags, sem að vísu er skráð, en
hvergi nærri tekið til starfa, þ.
e. Völundur h. f., sem nokkrir
ungir menn hafa stofnað til að
reisa vélaverkstæði. Hús er í
smíðum hjá þeim, svo sem al-
kunna er, en Ingólfur er enn
skráður lærlingur í Magna og
lýkur ekki námi fyrr en í fyrsta
lagi síðari hluta næsta árs. Má
með ólíkindum telja, að kjör-
stjórnin skyldi telja sig geta fall
izt á þau rök, sem færð voru
fram til stuðnings kröfunni um,
að Ingólfur viki sæti af B-list-
anum.
En það er jafnan svo, að þeir
kommúnistar eiga sér „nytsama
sakleysingja", sem þeir útnefna
„ambassadora", og ota síðan
fram á völlinn. Þannig var þetta
núna. Laumuspil þeirra var svo
undirbúið, að þar koma þeir
ekki nærri, auðvitað ekki, þeir
eiga ekkert erindi í Vélstjórafé-
lagið fremur en við Elías og
Pétur í Snót, sei, sei, nei!!
Svo fór þó, að tilburðum
Bæjarstjórn Vestmannaeyja
hafði eins og kunnugt er, ákveð
ið að láta fara fram allsherjar-
atkvæðagreiðslu um héraðsbann
— í þriðja sinn.
Vestmannaeyingar hafa tvisv
ar áður hafnað áfenginu og
þannig sýnt meiri félagsþroska
og ábyrgðartilfinningu en marg
ir aðrir.
Síðar féll þó bæjarstjórnin
frá ákvörðun sinni um atkvæða
greiðsluna, sumpart vegna mót-
mæla og greinargerðar áfengis-
varnarnefndar um málið.
Það var viturleg ráðstöfun,
bæjarstjórn til sóma.
Samkvæmt áfengislögunum
frá 1954 er heimilt að láta fram
fara atkvæðagreiðslu um héraðs-
bann á tveggja ára fresti, en til
þess að svo verði þarf samþykkt
meirihluta bæjarstjórnar, eða á-
skorun þriðja hluta atkvæðis-
bærra manna í bænum, þ. e.
um 800 opinberar eiginhandar
undirskriftir, er þoli „krítíska"
rannsókn.
Beiðni um atkvæðagreiðslu
hér í Eyjum nú hlýtur að skoð-
ast sem ákveðin ósk um opnun
áfengisútsölu á ný. Þetta mun
þó ekki hafa vakað fyrir bæjar-
stjórn, og féll hún því, að at-
huguðu máli, fiá ákvörðun
þeirra til að vinna Vélstjórafé-
lagið, var svo rækilega hrundið,
að þeir fengu tveim tugum
færri atkvæði en þeir töldu ör-
ugg, svo miklu skeikaði um á-
gizkun þeirra. Þeir ætluðu sér
ekki minna en 96 atkvæði, og
eitthvað slangur auðvitað af
hinum óvissu, en þeir fengu ein
76, og þar við situr. Vélstjórar
höfnuðu þeim rækilega.
sinni um atkvæðagxeiðslu. Þeg-
ar undirskriftum er safnað er
ekki alltaf víst, að menn geri
sér nægilega vel grein fyrir því,
hve mikla ábyrgð þeir taka á
sig með undirskrift sinni, mað-
urinn er orðinn ábyrgðarmaður
á nokkurskonar víxli, sem fell-
ur fyrr eða síðar. Það eru marg-
ir einstaklingar og jafnvel heim-
ili, sem eiga í vök að verjast
gagnvart daglega opinni vínbúð
hér.
II.
»
Það eru gjörólík sjónarmið,
sem ráða t. d. bæjarstjórnarkosn
ingunr; það er skyldugt að láta
þær fara fram fjórða hvert ár,
hvort sem bæjarstjórn hefur
staðið sig vel eða illa, því get-
ur ekkert breytt, nema ný stjórn
arskrá.
Heimild til nýrrar atkvæða-
greiðslu um héraðsbann er af
allt öðrum toga spunnin. Það
er lýðræðisleg aðferð til þess að
koma fram vissum umbótum,
aðferð samboðin frjálsum mönn
um, en því fylgir nokkur á-
byrgð. Það á ekki að hafa slíka
möguleika að leiksoppi.
Alsherjaratkvæðagreiðsla í
stóru bæjarfélagi er dýr og um-
fangsmikil ráðstöfun. Það verð
Framhald á 2. síðu
ORÐSENDING
fró Áfengisvarnanefnd Vestmannaeyja.
I.