Fylkir


Fylkir - 14.11.1958, Blaðsíða 4

Fylkir - 14.11.1958, Blaðsíða 4
N Föstudagur 14. nóv. 1958 Frá Bridgefélagi Veslmannaeyja Úrslit i fihmakeppninni 1958. 1 stig. 1. ísféfag Vestmannaeyja Sigurður Sigurjónsson 259V2 2. Flugfélag Islands Pétur Guðjónsson 257 3- Útvegsbanki íslands Helgi Bergvinsson 251^ 4. Fiskiðjan h. f Martin Tómasson 246 5- Vesturhús h. f Ragnar Helgason 244 6. Tómas M. Guðjónsson Þórður Bjarnason 240 7* Verzl. Georg Gíslason Ragnar Benediktsson 237!4 8. Netagerð Vestmannaeyja .... Jóhannes Gísiason 236 9- Vinnslustöðin Jón Guðjónsson 23214 10. Olíuverzlun íslands h. f Guðni Friðriksson 232 11. Verzlunin Sólvangur ... Freymóður Þorsteinsson 231 12. Sláturfélag Suðurlands Sigmar Guðmundsson 231 13- Vöruhappdrætti S. í. B. S. . Guðm. Guðjónsson 230 14. Höfn h. f Guðni Þorsteinsson 2291/2 15- Verzl. Sigurbj. Ófafsdóttir Þormóður Stefánsson 2291/2 16 Kaupféfag Vestmannaeyja Jón Pálsson 225 !7- Skipasmíðastöð Vestmannaeyja Guðni Grímsson 224í4 18. Þórður Bjarnason Guðmar Tómasson 224 x9- Skeljungur h. f Anton Bjarnasen 224 20. Verzlunin Borg Guðjón Pálsson 221 21. Gunnar Ólafsson & Co Magnús Grímsson 221 22. Stakkur h. f Guðmundur Kristjánsson 220 23- Elding s. f Jón Ólafsson 217í4 24- Páll Þorbjörnsson Guðmundur Helgason 21614 25- Blaðið Fylkir Alexander Gíslason 2144 26. Heildv. Gísli Gíslason Ágúst Þórðarson 211 27. Haraldur Eiríksson h. f Magnús Sigurðsson 2 10 28. Söluturninn Elías Sveinsson 209 29- Litla Bílastöðin Pálf Þorbjörnsson 205 30. Drífandi h. f Óli Andreasson 203 31- Mjólkursamsalan Kristján Stefánsson 196 32- Einar Þorsteinsson 186 Samtals 7200 Vegabréf Á fundi Félags ungra sjálf- Bæjarfréttir. v_________ ________J Landakirkja: Messað á sunnudaginn kl. 2. Séra Jóhann Hlíðar prédikar. Barnaguðsþjónusta kl. 11. K. F. U. M. & K.: Barnaguðsþjónusta á sunnu dögum kl. 11. Almenn sam- koma kl. 5. Drengjadeild á mánudögum kl. 8, yngri deild á þriðjudög- um kl. 5. Saumafundir á þriðjudögum kl. 8. Leshringur á föstudögum kl. 9 í fundarsal kirkjunnar. Betel: Samkoma á sunnudaginn kl. 4.30. Læknavaktir: Föstudagur 14. B. J. Laugardagur 15. E. G. Sunnudagur 16. E. G. Augnlæknir: Um helgina er væntanlegur augnlæknir í bæinn, Sveinn Pétursson. Mun liann verða til viðtals í Heilsuverndarstöðinni í næstu viku. Saumastofa Páls Lútherssonar, sem hefur starfað hér í bæ um nokkurra ára skeið, er í þann veginn að færa nokkuð út starfsemi sína. Hefur hún í þessu skyni fest kaup á nýjum vélum, sauma- vélum og fatapressu. Mun saumastofan, ef allt gengur að óskum, geta stóraukið fram- leiðslu sína á næstunni. Erfið- asta vandamálið er að fá vinnu kraft. Malbikun: Þessa dagana stendur yfir malbikun Strandvegarins. Mið- ar verkinu vel áfrarn, og má gera ráð fyrir, að því verði lok ið um þessa helgi. Verður Strandvegurinn þá orðin ein breiðasta og bezta gata bæjarins. Eyjablaðið: Meðal frétta mætti telja það, að Eyjablaðið kom út í gær. Enginn tími gafst til að and- mæla blaðinu að þessu sinni og verður það því að bíða til næsta blaðs. stæðismanna fyrir nokkru síðan, var borin fram og samþykkt eft irfarandi tillaga: Fundur í Félagi ungra sjálf- stæðismanna í Vestmannaeyjum, haldinn 3. nóv. 1958, beinir þeim eindregnu tilmælum til lögreglustjóra, að unglingum á aldrinum 14 til 21 árs verði gert skylt að bera vegabréf, til þess að auðvelda löggæzlu og eftirlit með börnurn og ungling um.“ Tillaga sú, sem hér kemur fram, er ekki ótímabær eða borin fram algerlega að ástæðu lausu. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að unglingar sækjast mjög eftir því að kom- ast á skemmtanir, þar sem þeim aldurs vegna er raunverulega óheimilt að vera. Þetta er ekki sérstakt fyrirbæri hér, heldur gerist þetta um allt land. Af þessum ástæðum hefur sums staðar verið upp tekinn sá háttur, að unglingum eru af- hent vegabréf, sem tilgreina ald ur þeirra. Auðvefdar þetta mjög allt eftirlit með því, að settum reglum og iögum sé hlýtt, enda það áskilið, að þeir sem sýna ekki vegabréf sín til fullgildrar sönnunar um aldur, verði að lúta því að vera vísað frá almennum skemmtistöðum. Væntanlega fær mál þetta góð ar undirtektir hjá réttum aðil- Neðan f rá sjó. v_________ . __________y Haustróðrarnir: í liaust ákvað bæjarstjórn að beita sér fyrir haustróðrum báta héðan á sama grundvelli og í fyrra. Gafst sú tilraun, sem þá var gerð, mjög vel, enda að- stæður hinar hagstæðustu. Aft- ur á móti hefur veðráttan ver- ið mun stirðari í haust og því ekki orðið eins mikið úr og í fyrra. Hefur gæftaleysið mjög harnlað veiðum, og þótt róið hafi verið, hefur oft verið ó- kyrrt í sjó. Afli hefur því oft verið þar eftir, en þá sjaldan kyrt hefur verið, hefur fiskazt sæmilega, en þó misjafnt eins og gengur. Samningar lausir: Sjómannafélagið Jötunn og Vélstjórafléag Vestmannaeyja liafa bæði sagt upp kaup- og kjarasamningum og samningum um fiskverð. Renna þessir samningar út kringum áramót- in. Ekki er vitað hverjar kröf- ur þessi félög gera á hendur útvegsmönnum, né heldur er kunnugt um það, hve mikla hækkun á fiskverði félög þessi fara fram á. Vonandi tekst að ráða þessum málum til lykta, svo að ekki komi til verkfalls. Skoríur á sjómönnum: Það liefur kornið fram, að út- gerðarmenn hér í bæ horfa fram á skort á mannafla á bátana í vetur, ef ekki fæst að gert í tíma. í fyrra voru liér 212 Fær eyingar, og litlar horfur eru taldar á, að svo margir fáist í vetur að óbreyttum aðstæðum. Svarar þessi fjöldi til fullrar skipshafnar á um 20 bátum, eða nálega 1 /4 hluta flotans. Ú tvegsbændafélagið hef ur ieitazt við að finna einhverja iausn á þessu vandamáli, en hún er að nokkru undir stjórn arvöldunum komin. Hvað verð ur ofan á er enn í fullkominni óvissu. Nýr bótur: Enn bætist við flotann á þessu hausti. Hefur Fiskiðjan h. f. fest kaup á m.b. Marz frá Reykjavík, sem er urn 100 lest ir að stærð, byggður í Svíþjóð árið 1946, af svipaðri gerð og Suðurey. Von mun á fleiri bátum hing að á þessu hausti. Er talið, að Helgi Benediktsson muni fá ný- smíðaðan bát frá Svíþjóð, og ef til vill munu fleiri aðilar fá nýja báta. um.

x

Fylkir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.