Fylkir


Fylkir - 07.01.1966, Síða 1

Fylkir - 07.01.1966, Síða 1
Tillögur um breyting- ar á umferð ökutækja Á íundi bæjarráðs hinn 3. þ. m. mætti yfirlögregluþjónn, Guðm- undur Guðmundsson ásamt lög- reglustjóra, Freymóði Þorsteins- syni með tillögur um brcytingar á umferð ökutækja hér í bæ. Hafði Sigurður Ágústsson frá umferðar- lögreglunni í Reykjavík dvalið hér nokkra daga fyrir áramót og kynnt sér aðstæður og yfirfarið tillög- urnar og mælt með þeim. Taldi yfirlögregluþjónn að frekari brcyt- ingar þyrfti að gera á umferðinni, en árangursríkara myndi að gera þær í áföngum til þess að fólk gæti betur áttað sig á þeim, en að taka þær allar fyrir í einu. Bæjarráð samþykkti tillögurnar fyrir sitt leyti og eru þær svohljóðandi: Bárugata. 1. Bárugata hefur einsteínuakst- ur til suðurs frá Miðstræti að Vestmannabraut. 2. Vinstri beygja er bönnuð af Vestmannabraut og Vesturvegi inn á Bárugötu. 3. Bárugata hefur biðskyldu (um- ferðarm. A - 4) fyrir Miðstræti og Strandvegi. 4. Ökutækjum má ekki leggja á Bárugötu frá Strandvegi að Mið- stræti. (Umferðarm. B - 15 og gulir kantsteinar. 5. Tímatakmarkað stöðuleyfi verði veitt ökutækjum sem lagt er á Bárugötu fyrir sunnan Miðstræti. 30 min. frá kl. 9-19. (Umferðarm. B—16). Vcstmannabraut. 1. Vcstmannabraut hefur einstefnu til austurs frá Bárugötu að Kirkjuvegi. 2. Akstur af Kirkjuvegi inn á Vest mannabraut til vesturs er bann- aður. 3. Vestmannabraut hefur stöðv- unarskyldu (umferðarm. B—13) fyrir Bárugötu. 4. Ökutækjum má ekki leggja á Vestmannabraut frá Skólavegi að Bárugötu. (Umferðarm. B—15 og gulir kantsteinar.) 5. Tímatakmarkað stöðuleyfi verði veitt ökutækjum, sem lagt er á Vestmannabraut frá Bárugötu að Kirkjuvegi. 30 mín. frá kl. 9— 19. (Umferðarm. B—16.) Vesturvegur. 1. Vesturvegur heíur biðskyldu (umferðarm. A—4 Bárugötu og Heiðarvegi. 2. Bifreiðarstæði verði merkt. Herjólfsgata. 1. Herjólfsgata hefur biðskyldu fyrir Vesturvegi. Ónefnd gata. sem er í framhaldi af Urðarveg til vesturs, hafi biðskyldu fyrir Kirkjuvegi (Miðstræti.) Kirkjuvegur. 1. Kirkjuvegur hefur biðskyldu fyrir Vestmannabraut. 2. Nauðsyn getur borið til að banna verði að leggja ökutækj- um vestan til á Kirkjuveg frá Vestmannabraut að Miðstræti. Ililmisgata. Hilmisgötu verði lokað við Kifkjuveg, þar til frekari breyt- ingar kunna að koma til fram- kvæmdar. Einstcfna. Leggja ber ökutækjum hægra megin á einstefnuakstursgötum. (51. gr. umferðarl. 3. mgr. Akst- ur og umferð bls. 22.) í stórum dráttum eru helztu breytingarnar þessar: Einstefnuakstur verður á Báru- götu til suðurs frá Miðstræti að Vestmannabraut og bílastöður tímabundnar þar við 30 mínútur frá kl. 9 á morgnana til klukkan sjö á kvöldin. Lengi hefur verið talað um að gera Bárugötu að ein- stefnuakstursgötu en ekki orðið af framkvæmdum. Verður að telja slíka ráðstöfun til bóta þar sem Bárugata er því miður allt of' þröng og verður ekki breikkuð, en mjög mikil umferð er um götuna bæði af ökutækjum og gangandi fólki, enda ein aðal verzlunargata bæjarins. Önnur breyting á umferðinni er tillagan um að gera Vestmanna- braut að einstefnuakstursgötu til austurs frá Bárugötu að Kirkju- vegi. Á þessum kafla Vestmanna- brautar er einig mjög mikil um- ferð bæði ökutækja og gangandi fólks. Þessi breyting gerir það að verkum að þau ökutæki, sem koma niður Kirkjuveg vestan Mið- strætis og upp Bárugötu, sem við breytinguna á að vera orðið mjög greiðfær leið, og síðan annaðhvort vestur Vesturveg eða Vestmanna- braut ef þau ætla að komast inn á Heiðarveg. Má segja að þetta séu helztu breytingarnar, sem til stendur að gera í umferðinni í bili, auk breyt- inga á biðskyldumerkjum og fleiri merkjum, sem upp verða sett. Breytingar þessar taka þó ekki gildi nema að bæjarstjórn sam- þykki þær og eftir að þær hafa verið samþykktar og tilskilin merki sett upp. Skrásett ökutæki hér í bæ munu nú orðin yfir 600 og er það miklu hærri tala ökutækja en nokkurn hafði órað fyrir að hér yrði á þess- um tíma og fer þeim sífellt fjölg- andi. Segir það sig sjálft að slík aukning ökutækja hlýtur að leiða af sér ákveðnari reglur í umferð- inni til verndar bæði þeim og ekki síður gangandi fólki. Er það því vel að þeir aðiljar, lögreglan, sem eftirlit hefur með þessum málum skuli hafa vakandi auga fyrir breytingum til úrbóta eftir því, sem nauðsyn krefur og aðstæður leyfa- LAHDS8GKAS/ Stoíníundur Þann 29. desember s.l. var hald- inn í Samkomuhúsinu stofnfund- ur félags áhugamanna um sjón- varp. Var fjölmenni á fundinum og áhugi manna um að skapa skil- yrði til þess að hægt væri að horfa á og hafa not af þeirri einu sjón- varpsstöð, sem hér er rekin, þ.e. sjónvarpsstöð varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Þá var ekki síður áhugi fundarmanna fyrir því að þegar íslenzka sjónvarpið komi til sögunnar að þá yrði svo um hnútana búið að þess yrði ekki síður not hér í Eyjum heldur en í næsta nágrenni Reykjavíkur. í stjórn félagsins voru kosnir: Bragi Björnsson, lögfræðingur, formaður, og með honum í aðalstjórn: Gunnlaugur Axelsson, forstjóri, Stefán Björnsson, sölustjóri, Guðleifur Ólafsson, fiskimatsmaður Páll Helgason, verzlunarstjóri. Siðleysi! Olíufélagið Skeljungur hefir komið upp tveimur þvottaplönum, annað fyrir vörubíla og hitt fyrir fólksbila, með tilheyrandi þvotta- tækjum, til mikils liagræðis fyrir bilaeigendur og er þjónusta þessi útgjaldalaus fyrir neytendur. En vegna skemmdarstarfsemi er fullt útlit fyrir að þessari starfsemi verði hætt cf ekki verður breyting á. Slöngur eru sundur skornar og kústum stolið, svo ekki hefst und- an að endurnýja þetta. Allstaðar annarsstaðar á landinu er þjónusta þessi vel þegin, og er illt til þess að vita, ef ómenning eins og hér um ræðir er á mun hærra stigi, en allstaðar annars- staðar hér á landi. Þeir sem yrðu varir við ómenni þessi að verki, gerðu vel að láta lögreglu vita. i! Ólafur Á. Kristjánsson. 2GG795 fSLAHSS

x

Fylkir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.