Fylkir - 18.02.1966, Blaðsíða 4
4.
F Y L K I R
hii^xo rt»
1
Tilkynning
UM AÐSTÖÐUGJÖLD í VESTMANNA-
EYJUM.
Ákveðið er að innheimta í Vestmannaeyjum aðstöðugjald á
árinu 1965 samkvæmt heimild í 3. kafla laga nr. 69/1962 um
tekjustofna sveitarfélaga og reglugerð nr. 81/1962 um aðstöðu-
gjald. Hefur Bæjarstjórn Vestmannaeyja ákveðið eftirfarandi
gjaldskrá:
a. Af rekstri fiskiskipa og flugvéla .......... 0,5%
b. Fiskiðnaður hverskonar og vinnsla sjávar
afurða ...................................... 1,0%
c. Umboðs- og heildverzlun, byggingavöruverzlun,
matvöruverzlun .............................. 1,0%
d. Önnur iðnaðarframleiðsla ..................... 1.5%
e. Vefnaðarvöruverzlun ..................... 1,5%
f. Önnur verzlun og atvinnurekstur, sem veltu-
útsvar var áður lagt á ...................... 2.0%
Með skírskotun til framangreindra laga og reglugerðar er enn-
fremur vakin athygli á eftirfarandi:
1. Þeir, sem ekki eru framtalsskyldir til tekju- og eignarskatts,
en eru aðstöðugjaldsskyldir, þurfa að senda skattstjóra sér-
stakt framtal til aðstöðugjalds innan 15 daga frá birtingu aug-
lýsingar þessarar, sbr. 14. grein reglugerðarinnar.
2. Þeir, sem framtalssyldir eru í Vestmannaeyjum, en hafa með
höndum aðstöðugjaldsskylda starfsemi í öðrum sveitarfélög-
um, þurfa að senda skattstjóranum í Vestmannaeyjum sund-
urliðun, er sýni, hvað af útgjöldum þeirra er bundið þeirri
starfsemi, sbr. ákvæði 8. gr. reglugerðarinnar.
3. Þeir, sem framtalsskyldir eru utan Vestmannaeyja, en hafa
með höndum aðstöðugjaldsskylda starfsemi í Vestmanna-
eyjum, þurfa að skila til skattstjóra í því umdæmi, sem þeir
eru heimilisfastir, yfirliti um útgjöld sín vegna starfseminn-
ar í Vestmannaeyjum.
4. Þeir, sem margþætta atvinnu reka, þannig að útgjöld þeirra
teljast til fleiri en eins gjaldflokks skv. ofangreindri gjald-
skrá, þurfa að senda fullnægjandi greinargerð um, hvað af
útgjöldunum tilheyri hverjum einstökum gjaldflokki, sbr. 7.
grein reglugerðarinnar.
Framangreind gögn ber að senda til skattstjóra fyrir 15. marz
n. k., að öðrum kosti verður aðstöðugjaldið, svo og skipting í
gjaldflokka áætlað eða aðilum gert að greiða aðstöðugjald af öll-
um útgjöldum skv. þeim gjaldflokki, sem hæstur er.
Vestmannaeyjum, 15. febrúar 1966.
SKATTSTJÓRINN.
40 drfl hdtíi
Um þessar mundir eru 40 ár síð-
an Betelsöfnuðurinn var stofnaður.
Skeði það 19. febrúar 1926. 21 Vest
mannaeyingur, ásamt Signý og Er-
iki Ásbö, og Gyðu og Nils Ramse-
líusi, stóðu að stofnun safnaðarins.
Skömmu áður var byrjað með
samkomur í Betel, eða 1. janúar
1926. Húsið var reist fyrir forgöngu
Eriks Ásbö, með aðstoð hér heima,
en að stórum hluta frá Salem söfn-
uðinum í Gautaborg.
Óslitið frá þeim tíma hefur Hvíta
sunnusöfnuður verið í Vestmanna-
eyjum. Héðan hefur og starfið haf-
izt annarsstaðar á íslandi.
150 manns hafa tilheyrt söfnuð-
inum frá upphafi. Má segja, að sú
tala skiptist að jöfnu í þrjá parta.
Fyrsti þriðjunugurinn er söfnuður-
inn í dag. Annar þriðjungurinn er
dreifður um land allt og hefur orð-
ið kjarni í öðrum samfélögum
Hvítasunnumanna. Síðasti þriðjung-
urinn er horfinn héðan úr heimi.
Kominn inn í eilífð Guðs.
Af þeim 21 Eyjamönnum og kon-
um, er stofnuðu söfnuðinn og
Hvítasunnuhreyfinguna á íslandi,
er megin parturinn dáinn. Allir, að
aðeins einum undanteknum, hafa
verið í söfnuðinum allt til dauða,
eða eru meðlimir í dag. Þeir fjórir,
sem eftir lifa eru: Sigríður Guð-
mundsdóttir húsfrú, Batavíu, Krist-
ín Jónína Þorsteindóttir, Faxastíg
2b, Halldóra Þórólfsdóttir frá
Skaftafelli og Guðni Ingvarsson,
Vesturvegi 21.
í tilefni afmælisins eru væntan-
leg í heimsókn til safnaðarins: Ás-
mundur Eiríksson og kona hans Þór
hildur Jóhannesdóttir, einnig Sig-
ný Ericson, ekkja Ericsons sáluga
er hér stafaði í mörg ár. Þau þrjú
munu tala í samkomu nú um helg-
ina, ásamt öðrum heimamönum.
• Meðan húsrúm leyfir, þá eru all-
ir velkomnir á samkomurnar.
Einar J. Gíslason.
Frúarleikfimi
Námskeið hefst föstudaginn 18. febrúar. — Upplýsingar í
síma 1524 milli 4 og 6 e. h.
Til sölu.
lítið notaður barnavagn og splunkný kerra. — Selst ódýrt. —
Upplýsingar að Heiðarvegi 55. Sími 1255.
TÝR TÝR
Bingó
í Alþýðuhúsinu n. k. sunnudag kl. 5 e. h. Aðalvinningar eftir
eigin vali dregnir út:
Kvikmyndatökuvél og sýningarvél,
ísskápur, eða Húsgögn.
Aukavinningar:
8 manna kaffi og matarstell,
Rakvél eða kvikmyndatökuvél.
Síðasi' seldist upp!
TÝR TÝR