Fylkir - 01.04.1966, Síða 2
2.
F Y L K I R
Útgefandi:
Sjálfstæðisfél. Vestmannaeyja
Ritstjóri:
Björn Guðmundsson,
Sími 1394 — Pósthólf 116
Auglýsingar:
Gísli Valtýsson,
Sími 1705.
Prentsmiðjan Eyrún h. f.
Fegrun bæjarins
Frá náttúrunnar hendi er bæjar-
stæði Vestmannaeyjakaupstaðar
mjög fallegt og um margt sérkenni-
iegt. Útsýni frábært og nálægð við
fjöll, er rísa snarbrött úr hafi, set-
ur á umhverfið sinn sérstæða svip.
Mál manna er líka, að bærinn sé
snyrtilegur og fallegur, og sannleik
urinn er sá, að með hverju ári sem
líður verður hann útlitsbetri og
snyrtilegri. Fólkið í bænum hefur
gert sitt án mikilla undantekninga
og bæjaryfirvöldin afa sýnt þess-
um málum skilning og sá skilning-
ur hefur aukizt ár frá ári.
Þrátt fyrir þetta er margt ógert
í þessum efnum og mörg verkefni
óleyst. Ef vel á tii að takast verður
að vera um sameiginlegt átak að
ræða frá hendi borgaranna almennt
svo og bæjaryfirvaldanna.
Hlutur hins almenna borgara inn
an þessa verkefnahrings er fyrst og
fremst í því að prýða og snyrta
kringum hús sín og eignir. Ganga
vel og snyrtilega frá görðum og
lóðum, mála og lagfæra hús sín.
Það er vor í lofti og allt er aflaga
fer í þessum efnum verður hvað
mest áberandi, þegar náttúran
skartar sínu fegursta. Þess vegna
á hver og einn að hreins fyrir sín-
um dyrum áður heldur en sumarið
gengur í garð.
Af hálfu bæjarfélagsins verður
einnig að halda áfram fegrun og
snyrlingu. Er þá fyrst að leggja
verður þunga áherzlu á að malbika
sem mest af gatnakerfinu hverju
sinni.
Fátt hefur meiri áhrif til snyrt-
ingar og aukins hreinlætis en mal-
bikun gatna. Þá ber mikla nauðsyn
til þess að koma upp almennings-
garði eða opnu svæði, er alrrienn-
ingur gæti dvalið á á góðviðrisdög-
um. Þá ber og nauðsyn til þess að
íjarlægja ijóta skúra og húskumb-
alda úr bænum, hreinsa til á opn-
unr svæðum.
Hér er aðeins stiklað á stóru, og
á þetta minnst, til þess að leiða
Kafíisala
í húsi K. F. U. M. og K. næst-
komandi sunnudag 3. apríl
(Pálmasunnudag) frá kl. 3—
11,30 e. h. Allur ágóði rennur
til kristniboðs. — Styðjið
gott málefni.
NEFNDIN.
Fundizf hefur
herrafrakki. — Upplýsingar í
síma 1981.
filmur beztar.
Safnþrær
Þess hefur orðið vart, að safnþrær úti á Eyj
unni og i nánd við bæinn standa opnar, svo að
slysahætta getur stafað af.
Af þcssu tilefni er skorað á alla þá, sem safn-
þrær eiga, að loka nú þegar safnþróm sinum
tryggilega eða ganga þannig frá þeim, að þær geti
ekki valdið slysum.
Þeir, sem ckki sinna þessum áskorunum, mega
búast við að safnþróin þeirra verði lokað á kostn-
að þeirra sjálfra, þær fylltar upp eða fjarlægðar.
BÆJARFÓGETI.
• r
urnar verið reistar og reknar af
kirkjum eða frjálsum kristilegum
félagssamtökum viðkomandi landa.
Þeim hefur ekki verið ætlað það
eitt að veita sjómönnum margvís-
lega almenna fyrirgreiðslu, heldur
fyrst og fremst til að vera þeim
gott athvarf, þar sem betra and-
rúmsloft ríkti en í bjórkrám og
venjulegum gleðisölum. Sjómanna-
stofurnar hafa þannig haft andlega
og líkamlega heill sjómannanna
fyrir augum og orðið mörgum
þeirra til ómetanlegrar blessunar.
Þegar K. F. U. M. og K. reistu
félagsheimili sitt hér fyrir 40 árum
síðan, var sjómannastofu ætlað þar
rúm og í ársbyrjun 1929 var hún
opnuð til almennra nota og hefur
hún staðið sjómönnum opin á
hverri vertíð síðan.
Þegar stofan var opnuð var
margt á annan veg en nú. Útgerð-
armenn voru margir og höfðu flest-
ir vermenn á heimilum sínum. Að-
komumenn bjuggu því oft við
þröngan húsakost og lítið næði.
hugi manna að þessu merka mál-
eíni. Snyrtilegur, vcl um genginn
og fallegur bær, er keppikeflið. —
Þeir tóku því nýbreytninni vel og
fjölmenntu oft á sjómannastofuna
fyrstu árin, enda var þá fárra kosta
völ um staði, sem stóðu almenningi
opnir. Hressingarskáli var enginn,
hótel ekkert og lítið um samkomu-
hús.
Það skal fúslega játað, að sjó-
mannastofa K. F. U. M. og K. var
aldrei nógu vel úr garði gerð, þó
að vel væri við hana unað á
kreppuárunum, en þegar aðsókn fór
minnkandi og hvergi örlaði á á-
huga bæjarbúa, til að styrkja og
efla hina veiku viðleitni, brást hug-
rekki félaganna til að hefja nýja
sókn og fullnægja hóflegum kröfum
okkar tíma um bættan aðbúnað og
aukið starf.
En nú er ný öld runnin og margir
virðast reiðubúnir til að reisa og
reka Sjómannastofu í Vestmanna-
eyjum.
Því ber að fagna og e. t. v. nægir
þessi áhugaeldur til þess, að eftir
næstu 40 ár verði hægt að skrifa
sögu um vöxt og viðgang tveggja
slíkra stofnana í þcssari mestu
verstöð landsins.
Steingrímur Bcncdiktsson.
Takið eflir.
Höfum fyrirliggjandi út-
veggjaholstein og milliveggja
sitein 7 og 10 cm. þykkan,
einnig plasteinangrun í þykkt
unum Vz” — 1” — 1W' — 2”
Bygging h. f.
Simar: 1650 — 1836 — 2085.
Hleðslusteinn í 25 fermetra
bílskúr kostar ca. kr. 6000,00
Bygging h. f.
Símar: 1650 — 1836 — 2085.
Takið eftir.
Tökum að okkur járnalagnir,
einnig tökum við að okkur að
beygja lykkjur og bitajárn,
ef óskað er. Höfum fljótvirka
járnabeygjuvél.
Bygging h. f.
Simar: 1650 — 1836 — 2085.
MWBRVia.VkWa.VB
Takið eflir.
Framleiðum útveggjahol-
stein, einnig milliveggjastein,
7 og 10 cm. þykkan. Nú er
rétti timinn að panta hleðslu-
steininn fyrir vorið. Gjörið
svo vel og reynið viðskiptin.
Bygging h, f.
Símar: 1650 — 1836 — 2085.
Til fermingar:
SKYRTUR
Og
SLAUFUR
Alföt h. f.
Sími 1816.