Fylkir - 06.05.1966, Side 4
4.
\a
F Y L K I R
feríir
EYVERJAR efna lil tveggja utan-
landsferða I sumar, ef næg þátl-
laka fæsf, - öllum heimil þátftaka
* 10 daga Noregsferð,
* íerðin hefsfr 4. júfí,
* flogið utan og heim,
* ferðin kostar 8.600 krónur.
Flogið til Oslo, ekið til Geilo — Voss - Gud-
vangen — siglt til Sógndals - ekið til Leik-
anger - Balestrand — Olden — Loen — Grotti
Geiranger og Andalsnes — flogið heim frá
Oslo. - -
* 5 landa sýn,
* 22 daga ferð,
* ferðin hefst þann 12. ágúsf,
* flogið utan og heim,
* ferðin kostar 15.950 krónur.
Flogið til Gautaborgar — ekið til Trelle-
borg — með ferju til Trawemunde — ekið til
Amsterdam — Koblenz — Interlaken — Mun'
chen — Kassel — Hamborgar— Kaupmanna-
hafnar - flogið heim frá Gautaborg.
Vanir fararstjórar verða með í báðum ferð-
unum.
Ailar upplýsingar gefnar í
Skóverzlun Axels 9. Lárussonar,
Sími 1826.
Bsjorbúar vito ó hverju þeir eiga von ef
vinstri flokkornir nd hér völdum
Afslóttur af útsvörum ekki talinn æskilegup.
Blöð minnihlutaflokkanna í bæj-
arstjórn hafa nokkuð rætt álagn-
ingu útsvara hér í Vestmannaeyj-
um að undanförnu. Óttast þau sjá-
anlega að kjósendur meti nokkuð,
að útsvör hafa verið lægri hér í Eyj
um allt kjörtímabilið heldur en í
nokkrum kaupstað öðrum á land-
inu.
I síðasta Eyjablaði segir orðrétt:
„Það ræður að líkum, að það fer
eftir upphæð útsvara á hverjum
stað og hverjum tíma, hversu mið-
ar uppbyggingu eins bæjarfélags og
á engan hátt æskilegt að skerða
lögákveðinn tekjustofn bæjarfélags
ins að óþörfu, eins og telja verður
að gert sé með alhliða lækkun út-
svara.“
Svo mörg eru þau orð.
Að sjálfsögðu er það hrein fjar-
stða að upbygging bæjarfélagsins
fari eftir upphæð útsvaranna á
hverjum tíma. Engir hafa betri
sönnun fyrir þessu en Vestmanna-
eyingar, að þessi fullyrðing blaðsins
er fávísleg og röng.
Meðan vinstri flokkarnir réðu
hér voru útsvör hærri í Vestmanna-
eyjum en í nokkrum kaupstað öðr-
um á landinu, en framkvæmdir
minni en þær hafa nokkurn tíma
verið fyrr né síðar og minni en í
flestum öðrum sambærilegum stöð
um. Hin síðari ár hafa útsvör hins-
vegar verið lægri hér í Eyjum en
annarsstaðar og það svo að eftirtekt
hefur vakið um land allt, en fram-
kvæmdir meiri en nokkru sinni áð-
ur og mun meiri en í þeim kaup-
stöðum, þar sem samstjórn, komma,
krata og framsóknar hefur ráðið,
eins og til dæmis í Kópavogi, þar
sem útsvör voru árið 1965 réttum
50% hærri en í Eyjum miðað við
100 þúsund króna útsvarsskyldar
tekjur.
Auðvitað er það allt anað, sem
þarna kemur til greina. Það, sem
fyrst og fremst ræður úrslitum
hversu vel þróun og uppbyggingu
byggðarlagsins miðar áfram er,
hvernig á málum þess er haldið í
heild og einstökum atriðum á hverj
um tíma. Kemur þetta glöglgega í
ljós við samanburð á útsvörum og
framkvæmdum í stjórnartíð vinstri
flokkanna annarsvegar og Sjálfstæð
isflokk;ins hinsvegar á málefnum
þessa byggðarlags.
En það er ágætt og mjög þakkar-
vert, að blöð vinstri flokkanna
skuli boða það nú fyrir kosningar,
að þau telji lækkun útsvara frá
gildandi stiga að niðurjöfnun lokið
ekki vera æskilega.
Með þessu hafa þeir skapað
nokkuð hreina línu í kosningunum
nú í vor. Þeir, sem vilja hafa út-
svörin hærri hér en þau hafa ver-
ið, kjósa vinstri flokkana. En þeir,
sem vilja að fylgt verði þeirri reglu
að hafa útsvörin lægri hér í Vest-
mannaeyjum en annarsstaðar, eins
og þau hafa verið undanfarin átta
ár, kjósa Sjálfstæðisflokkinn.
Um þeta hlýtur kosningin 22.
maí n. k. að snúast fyrst og fremst
og ætti hótun vinstri flokkanna
um hærri útsvör, ef þeir ná hér
völdum, að auðvelda kjósendum
valið, þegar að kjörborðinu kem-
ur.
H. F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS.
Aðalfundur.
Aðalfunður H. f. Eimskipafélags íslands verSur haldinn í fund-
arsalnum í hiisi félagsins í Reykjavík, fimmtudaginn 12. maí 1966
kl. 13,30.
Dagskrá samkvæmt 13. grein samþykkta félagsins.
Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins, sam-
kvæmt niðurlagi ákvæða 15. gr. samþykktanna (ef til-
lögur koma fram.
Aðgöngumiðar að fuudinum verða afhentir hluthöf-
um og umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins
í Reykjavík dagana 9. — 10. maí.
Reykjavík, 4. apríl 1966.
STJÓRNIN.