Fylkir - 21.05.1966, Qupperneq 1
6 efstu menn D - listans
Guð'laugur Gíslason, bæjarstjóri
er fæddur ó Stafnnesi í Gullbringu
sýslu 1908, en fluttist til Vestmanna
eyja 4 ára gamall og hefur dvalið
hér síðan. Guðlaugur byrjaði þeg-
ar í sesku að taka þátt í ýmiskon-
ar félagsmálum, einkum þó innan
íþróttahreyfingarinnar. Var hann m.
a. í stjórn íþróttafélagsins Þórs um
árabil. Guðlaugur var fyrst kosinn
í bæjarstjórn 1938 og hefur setið
þar um aldarfjórðungs-skeið. Bæj-
arstjóri var Guðlaugur kosinn 1954
og hefur verið það síðan. Árið 1959
var hann kosinn á þing fyrir Vest-
mannaeyjar og hefur verið þingmað
ur Vestmannaeyja síðan. Hið langa
starf Guðlaugs Gíslasonar að bæj-
ar- og landsmálum hefur aflað
honum mjög góðrar þekkingar á
bæjar- og félagsmálum, og hefur sú
þekking hans komið að mjög góð-
um notum í þeim miklu störfum,
er hann hefur innt af hendi fyrir
bæjarfélagið. Guðlaugur er dug-
mikill framfaramaður, er fyrst og
fremst Vestmannaeyingur og hefur
ávallt borið hag byggðarlagsins
fyrir brjósti, svo sem störf hans í
þágu Vestmannaeyja bera vitni
um.
X D Sjálfstæðisfólk XD
Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksinns cr
í Samkomuhúsinu, Vestmannabraut 19,
sími 2233.
Hafið samband við skrifstofuna og gef-
ið upplýsingar um það sjálfstæðisfólk, er
kann að verða utanbæjar á kjördag.
Skrifstofan er opin frá kl. 10,00 til 12,00,
14,00 - 19,00 og 20,00 - 22,00.
KJÓSIÐ D-LISTANN.
Gísli Gislason, storkaupmaður,-*virkan þátt í félagsmálum Vest-
er skipar annað sæti á lista Sjálf- wmannaeyinga. Hann átti sæti í bæj-
stæðisflokksins við bæjarstjórnar- ^Sjarstjórn um átta ára skeið frá 1946
kosningarnar, er fæddur hér í Vest til 1954 og einnig í útgerðarstjórn.
mannaeyjum 1917 og hefur dvalið
allan sinn aldur hér í Eyjum. Hóf
þegar í æsku verzlunarstörí og hoí-
ur undanfarin ár rekið umfangs-
mikla byggingar- og heildverzlun.
Hefur tekið mikinn þátt i ýmiskon-
ar félagsmálum innan héraðs og þa
að jafnaði í forystu. G:sii heíur
tekið mikinn þátt í starfi vSjálf-
stæðisflokksins, var kosinn í bæj-
arstjórn fyrir Sjálfstæðisfl.. 1962
og þá kosinn forseti bæjarstjórnar.
Var hann settur bæjarstjóri hér
1960—61. Störf sín í þágu bæjarfé-
lagsins hefur Gísli leyst a£ hendi
með mikilli prýði og ber mjög fyr-
u brjósti vöxt og viðgang þessa
bæjai-félags. Gísli hefuv gott vit á
fjármálum, er vinsæll og einn af
þeim mönnum, er vill hvers manns
vanda leysa.
_Var þetta á þeim tíma, er vinstri
menn réðu hér bæjarmálunum. Var
það ekki sízt fyrir harðfylgi Björns
í útgerðarstjórn að ofan á varð að
bæjarfélagið losaði sig við rekstur
togaranna fyrr en önnur bæjarfé-
lög.
Formaður Útvegsbændafélags
Vestmannaeyja var Björn á árun-
um 1955 til 1963 og hefur starf-
semi útgerðarinnar alltaf staðið
honum mjög nærri. Hann er nú
formaður Fulltrúaráðs sjálfstæðis-
félaganna hér í Vestmannaeyjum.
Björn Guðmundsson er harð-
duglegur og fylginn sér að hverju
sem hann gengur og vel til forystu
fallinn. Mun hann nú eins og áður
reynast vel hlutgengur í bæjar-
málunum og mikils af honum að
vænta þar.
Björn Guðmundsson er fæddur
hér í Vestmannaeyjum árið 1915.
Menntun sína hlaut Björn í Sam-
vinnuskólanum og útskrifaðist
hann þaðan með mjög góðri eink-
unn. Hann hefur stundað hér verzl-
unarstörf frá því hann var á unga
aldri og hefur hann um margra
ára skeið rekið eigin verzlun. Út-
gerð hefur hann einnig rekið all-
mörg undanfarin ár og þannig tek-
ið virkan þátt í atvinnulífinu hér.
Björn hefur tekið mikinn og
Jón í. Sigurðsson, hafnsögumað-
ur, 4. maður á lista Sjálfstæðis-
flokksins, er fæddur hér í Vestm,-
eyjum 1911. Vann hann í æsku og
framan af ævi ýmis störf á sjó og
landi, gerðist hafnsögumaður hér í
Eyjum 1947 og hefur verið það síð-
an. Störf sín sem hafnsögumaður
hefur hann innt af hendi með sér-
stakri prýði og kostgæfni og ver-
ið mjög farsæll í starfi. Jón varð
aðalfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokk-
Framhald á 2. síðu.