Fylkir - 01.07.1966, Síða 1
18. árgangur.
Vestmanaeyjum, 1. júlí 1966
24. tölublað
Hin nýkjörna bæjarstjórn hélt
annan fund sinn s. 1. miðvikudag.
Umræður urðu allmiklar. Stóð fund
urinn frá kl. tvö til hálfátta, og
var þó ekki um langa dagskrá að
ræða.
Fluttu fulltrúar Sjálfstæðisflokks
ins nokkrar tillögur og fyrirspurn-
ir á fundinum.
Voru þessar helztar:
1. Byggingarsjóður bæjarins:
Við samningu fjárhagsáætlunar
fyrir þetta ár, samþykkti bæjar-
stjórn einróma eftir tillögu Sjálf-
stæðismanna að stofna byggingar-
sjóð. Skyldi hlutverk sjóðsins vera
annaðhvort að lána út á íbúðir í
fjölbýlishúsum, sem bærinn hefði
forgöngu um byggingu á, eða beint
til einstaklinga, sem í byggingu í-
búðarhúsa réðust.
Tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokks
ins nú var þannig:
„Með því að fyrirsjáanlegt er, að
ekki verður á þessu ári ráðizt í
byggingu nýs sambýlishúss eða
húsa, samþykkir bæjarstjórn, að
eftirstöðvar af áætluðu fé til bygg-
ingarsjóðs samkvæmt gjaldalið 11
d. á fjárhagsáætlun verði lánað til
einstaklinga, sem í íbúðarhúsbygg-
ingum standa. Verði lánin til 10 ára
með venjulegum skuldabréfavöxt-
um.“
Var tillögunni vísað til bæjarráðs
og stendur vonandi ekki á meiri-
hlutanum þar að létta undir með
húsbyggjendum með óráðstöfuðu
fé, sem sjóðurinn hefur yfir að ráða
samkvæmt fjárhagsáætlun.
Um samninga um vatnsréttindi
fyrir vatnsveituna.
Með því að mjög lítið ber á milli
í samningum við eigendur jarðar-
innar Syðstu-Mörk um greiðslu fyr
ir vatnsréttindi til handa vatnsveitu
kaupstaðarins samþykkir bæjar-
stjórn að fela bæjarstjóra ásamt
lögfræðingi bæjarins að ganga frá
samningum um greiðslu fyrir vatns
réttindi og fá kvaðalaust afsal fyr-
ir vatnsuppsprettu þeirri, sem fyr-
irhugað er að byggja vatnsveituna
á. Jafnframt verði í afsalinu for-
gangsréttur að fleiri uppsprettum
í landi jarðarinnar, ef vatnsveitan
þyrfti síðar meir á því að halda.“
Tillagan var felld af meirihlutan-
um, sem frekar virðist kjósa mat og
málaferli um þann hluta af upp-
sprettunni, sem vatnsveita bæjarins
þarf að nota, og veit enginn í dag,
hve hátt vatnsréttindin verða met-
in, en áætlað að kostnaður við mat
og yfirmat verði jafnvel hærri upp-
hæð, en nú er um deilt við eigend
ur vatnsréttindanna. Vatnsmagnið,
sem vatnsveitan þarf, þegar hún
er komin í fullan gang, getur orð-
ið allt að milljón tonn á ári.
3. Viðgerð á norður-
haf nargarðinum:
Norðurhafnargarðurinn varð fyr
ir skemmdum í vetur, en hafnar-
stjórn hafði enn enga samþykkt
gert um óhjákvæmilega viðgerð á
honum.
Fluttu fulltrúar Sjálfstæðisflokks
ins í þessu tilefni eftirfarandi til-
lögu: v'lí
„Bæjarstjórn beinir því til hafn-
arstjórnar, að nauðsynlegt er að
gera nú í sumar við skemmdir þær,
sem orðið hafa á norðurhafnar-
garðinum í vetur. Telur bæjar-
stjórn of mikla áhættu að láta
garðinn taka á sig haust- og vetrar-
veður eins og hann er á sig kom-
inn.“
Var tillögunni vísað til hafnar-
stjórnar til fyrirgreiðslu.
4. Um flutning öskuhauganna:
„Bæjarstjórn samþykkir að fela
verkstjóra bæjarins að fullgera
lagningu að fyrirhuguðu plani vest-
ur á Hamar, þar sem ætlazt er til
að öskubíll bæjarins losi rusl það,
er safnað er saman í hann. Verði
planið einnig fullgert og öskuhaug-
unum norðar á Hamrinum lokað að
því verki loknu.“
Þarf ekki að fjölyrða um þetta
mál. Öskuhaugarnir á Torfmýri
eru öllum orðnir til leiðinda bæði'
bæjarbúum og ferðamönnum, sem
hingað koma.
F YRIBSPURNIR:
1. Opnun sundlaugarinnar.
Bæjarstjóri svaraði fyrirspurn
um þetta á þá leið, að hann vissi
ekki betur en laugin yrði opnuð 1.
júlí, það er í dag, eins og auglýst
hafði verið og verða bæjarbúar
vonandi farnir að synda í lauginni
þegar blaðið kemur út.
r —já
2. Um ráðningu bæjarstjóra:
Fyrirspurn um þetta svaraði
meirihlutinn, að fyrir lægju þrjár
umsóknir, en ekki hefði náð sam-
komulag um neinn þessara aðila.
Hinsvegar hefði verlð samkomu-
lag innan meirihlutans um að ráða
Þorvarð Örnólfsson, lögfræðing, í
stöðuna, en hann ekki fengið sig
lausan frá kennslu við Kvennaskól
ann í Reykjavík þegar til kom. Var
Héraðsmót
Sjálfstæðisflokksins í
Vestmannaeyjum hald-
ið 26. ágúst n. k.
Hin árlegu héraðsmót Sjálfstæð
isflokksins eru um þessar mundir
að hefjast. Standa þau yfir um
hverja helgi mánuðina júlí og ág-
úst, víðsvegar um landið.
Hér í Vestmannaeyjum hefur
héraðsmót með þessu sniði ekki
verið haldið áður, en nú er ákveð-
ið að efna til slíks héraðsmóts hér
í Eyjum 26. ágúst n. k.
Ennþá er ekki ákveðið, hvaða
ræðumenn koma fram á héraðsmót
inu hér í Eyjum, en þeir skemmti-
kraftar, er skemmta á héraðsmót-
um Sjálfstæðisfloksins í sumar,
munu einnig koma fram hér, en
þeir eru landskunnir. Að loknu
héraðsmótinu verður dansleikur og
fyrir dansi mun leika hljómsveit
Magnúsar Ingimarssonár úr Rvík.
þetta að sjálfsögðu í samræmi við
marggefnar yfirlýsingar fulltrúa
meirihlutans, sérstaklega Framsókn
armanna, að ráða hingað ópólitísk-
an bæjarstjóra, þar sem vitað er, að
þetta var eini umsækjandinn, sem
bein afskipti hafði haft af stjórn-
málum, sem formaður Þjóðvarnar-
flokksins í Reykjavík á sínum
tíma og aðalsprautan í Keflavíkur-
göngunni, sem sá flokkur ásamt
„hernámsandstæðingum“ stóð fyr-
ir. Enn er því allt óráðið um bæj-
arstjórastarfið. Virðist fæðingin
ganga illa.
Gott verk.
Svo sem flestum bæjarbúum er
kunnugt, var tekin upp ný skipan
í sambandi við umferð bifreiða í
bænum þann 1. júní s. 1.. Nokkur
reynsla er nú komin á þessa ný-
skipan, þar sem umferð bifreiða
hefur farið fram eftir þessum regl-
um í mánaðartíma. Og reynslan er
að allra dómi mjög góð, umferðin
er í alla staði betri og gengur lið-
lega fyrir sig, og er um leið örugg
ari bæði fyrir þá, er aka og eins
gangandi fólk.
Eitthvað mun um, að þessi nýju
fyrirmæli séu ekki virt, og er það
þá einna helzt af einhverjum ung-
um ökuföntum, sem eru með bíla-
dellu og mikilmennskubrjálæði, og
er þess að vænta, að hart verði tek-
ið á sííkum brotum.
Þessum nýju reglum mun hafa
verið komið á fyrir tilstilli Guð-
mundar Guðmundssonar, yfirlög-
regluþjóns, og á hann þakkir skil-
ið fyrir þetta verk, sem svo vel hef-
ur tiltekizt.
INNBROT í FLUGFÍL.
Aðfararnótt s. 1. sunnudags var
brotizt inn í vörugeymslu Flugfé-
lagsins. Mun þjófurinn hafa verið í
brennivínsleit, því einskis var
saknað annars en liðlega 10 flaskna
af áfengi. Ekki er upplýst hver hér
var að verki og málið er í rann-
sókn.