Fylkir - 07.10.1966, Qupperneq 2
2.
F Y L K I R
Vestmðnnaeyinðar hunna a5 meto stnrísemi
leihfélaðsins
Leikfélag Vestmannaeyja frumsýndi á þriðjudag ameríska
gamanleikinn „Pabba“ og var önnur sýning leiksins í gærkvöldi.
Við náðum^ali af einum af höfuðpaurum Leikfélagsins, Jóhanni
Björnssyni, og lögðum fyrir hann nokkrar spurningar.
Málgagn
Sjálfstæðisflokksins
Útgefandi:
Sjálfstæðisfél. Vestmannaeyja
Ritstjóri:
Sigurgeir Jónsson
Símar 1140 og 1343.
Auglýsingast jóri:
Bragi Ólafsson, sími 2009
Prentsmiðjan Eyrún h. f.
Samið um vatnsréttindii
við Syðstu-Merhurbœndur
Á fundi bæjarráðs hinn 29. ág-
úst sl. upplýsti bæjarstjóri að bú-
ið væri að semja við Syðstu-Merk-
ur bændur um vatnsréttindi til
handa fyrirhugaðri vatnsveitu Vest
mannaeyinga.
Verður það að teljast ánægju-
legt að meirihluti bæjarstjórnar
skyldi fara eftir tilögu Sjálfstæðis-
manna og semja við bændurna um
þessi réttindi, í stað þess að taka
hluta þessara réttinda þeirra með
dómsúrskurði, eins og meirihlut-
inn ætlaði sér.
Samið var um 25 þúsund króna
greiðslu til eigenda vatnsréttind-
anna, 20 þúsund króna þóknun til
lögfræðings þeirra og 5 - 10 þús-
und krónur munu hafa farið í
ferðakostnað vegna síðari ferðar
samningsnefndarinnar eða alls
rúmlega 300 þúsund krónur, sem
er heldur hærri upphæð en Sjálf-
stæðismenn lögðu til á s.l. vetri að
greidd yrði, ef samkomulag næð-
ist um það, sem trúlega var alltaf
fyrir hendi, ef umræddum bænd-
um hefði verið mætt á eðlilegan
hátt.
Hefur þá hver fengið sitt. Eigend
ur vatnsréttindanna að vísu held-
ur minna en þeir gerðu sér vonir
um. En óviðkomandi lögfræðingur,
Flugfélagið og Hótel Borg munu
hafa hreppt um 25 til 30 þúsund
krónur fyrir beina stífni vinstri
manna í bæjarstjórn og hefði inátt
forða bæjarstjórn frá vansæmandi
framkomu í þessu máli, ef samið
hefði verið í sumar um pessa upp-
hæð í stað þess að hafna henni þá.
Aðalatriðið er þó að siálfsögðu, að
kaupstaðurinn hefur eignast óaft-
urkræf réttindi yfir þeirri vatns-
uppsprettu, sem upphaflega v^r
reiknað með að yrði undirstaða
vatnsveitunnar.
Ertu ánægður með verkefnisval
Leikfélagsins, Jóliann?
— Já, heldur betur, þetta er að
mínum dómi eitthvert jafnasta verk
sem fært hefur verið hér upp. Eg
á við, að stykkið er gott og mjög
vel hefur tekizt að velja í hlutverk
in. Allir skiluðu sínu með prýði,
hvort sem um var að ræða stærri
eða minni hlutverkin.
— Nú hefur verið húsfyllir á
tvær sýningar. Hve oft er ráðgert
að sýna ennþá?
— Það hefur verið ákveðið að
hafa a. m. k. eina sýningu enn, svo
og barnasýningu, en ekki er enn
endanlega ákveðið, hvenær þær
snýingar verða; þó sennilega í
næstu viku.
— Þú ert ánægður með aðsókn-
ina?
— Já, Þetta ber sannarlega vott
um það, að Vestmannaeyingar
kunna að meta starfsemi okkar,
sem að verkinu stöndum. Óþarft er
að taka fram, að allt er þetta sjálf-
boðavinna og leikfólkið leggur sinn
frítíma í þetta.
— Og erfiðar æfingar?
— Já, svo sannarlega. Síðasti mán
uður hefur verið ein æfing, ef svo
mætti segja. Hvert einasta kvöld
frá klukkan átta og fram yfir mið
nætti.
— Er ráðgert að sýna úti á lanðs
byggðinni?
— Já, það hefur komið til mála
að fara eitthvað út á land og þá
einna helzt til Hornafjarðar, en
þar fengum við fádæma góðar við-
tökur síðast.
— Hvenær mundi það verða?
Það er ekki endanlega ákveðið.
Komið hefur til greina að það
yrði um næstu mánaðamót, en ég
þori ekki að láta hafa neitt ákveð-
A síðasta bæjarstjórnarfundi
flutti Sigurður Stefánsson, bæjar-
fulltrúi kommúnista tillögu um, að
Magnús H. Magnússon, fyrrverandi
símstöðvarstjóri, yrði ráðinn bæj-
arstjóri.
Taldi S. St. sig hafa náð sam-
komulagi við M. M. um þetta og
lagði hann til að launakjör hans
yrðu kr. 30 þúsund á mánuði og
kr. 3 þúsund í bílastyrk. Taldi hann
sér vera bölvanlega við þennan
bílastyrk, en við því væri víst ekk-
ert að gera.
Áður en S. St. lagði tillögu sína
fram las hann upp umsóknir frá
þremur aðilum utanbæjar og taldi
að fleiri hefðu komið til greina,
og lét í því sambandi orð falla um
ið eftir mér um það.
— Og svo að lokum, Jóhann, er
ætlunin að setja fleira á svið í vet-
ur?
Hólmfríður Pálsdóttir setti í okk
ur talsverðan fjörkipp með upp-
setningunni á Pabba, sem er senni-
lega eitthvert erfiðasta verk, sem
hér hefurv erið sviðsett, og við höf
um fullan hug á að koma upp öðru
verki í vetur, og hugsum þá sérstak
lega til þeirra ungu og efnilegu
starfskrafta, sem við höfum nú
fengið í lið með okkur. Margir
þeirra fengu sína prófraun í Pabba
og er óskandi, að þeir eigi eftir að
verða leiðandi í Leikfélaginu og
leysi þá gömlu af hólmi í framtíð-
inni.
að það væri svona þar sem þrír
flokkar réðu, að einum sýndist
þetta og öðrum hitt og hefði ekki
náðst samkomulag innan meirihlut
ans um neinn umsækjandann eða
aðra, sem til greina komu af ut-
anbæjarmönnum.
Aðspurður kvað S. St. að bæj-
arstjóra hefðu verið sett ýms skil-
yrði, en þau væru ekki til umræðu
á fundinum.
Geta fulltrúar meirihlutans án
efa allir verið ánægðir.
Draumur Framsóknarmanna um
ópólitískan bæjarstjóra virðist hafa
orðið að veruleika með ráðningu
M. M. og S. St. fengið nýjan bæj-
arstjóra á hækkandi launum og
hærri bílastyrk en áður var.
ir
Vesfmannaeyingar, afhugið
Hin lágu haustfargjöld Flugfélagsins ganga í gildi enn á ný 15. september. Á tímabilinu 15. september til 30.
október getið þér ferðast til 16 borga í Evrópu fyrir 25% lægra verð en endranær.
Fjölskyldufa rgjöld!
Hin hagstæðu fjölskyldufargjöld
Flugfélags fslands eru í gildi árið
um. kring'.
Allar nánari upplýsingar um þessi
hagstæðu fargjöld fáið þið á skrif-
stofu Flugfélags íslands,
Skólavegi 2.
Ráðning bæjarstjóra