Fylkir - 24.02.1967, Side 4
/--—-----------V
Neðan frá sjó.
v.____ ____J
Veðráttan: Aðeins hefur veðrátt-
an lagazt, það hefur þó verið kom-
izt á sjó. Annars eru sjóveður
hvergi nærri góð, vindstrekkingur
alla daga, og úfinn sjór.
Línan: Róið hefur verið alla daga
daga vikunnar, misjafnlega margir
dag hvern. Afli hefur verið í treg-
ara lagi, nema í gær, þá var ágæt-
ur afli, nokkrir bátar með 11—12
tonn, flestir með 7—10 tonn. Yfir-
borðið af aflanum er langa, en þó
er farið að sjást í honum meira af
þorski en verið hefur. Hæstu bát-
arnir eru (miðvikudagskvöld): Sæ-
björg 157 tonn, Stígandi 120 tonn,
og Kap 101 tonn.
Netin: Segja má, að netavertíðin
sé byrjuð. Fyrstu bátarnir lögðu í
vikubyrjun. Beztan afla hafði
Björg, fékk liðlega 10 tonn, eftir
nóttina, á miðvikudaginn. í gær
var aftur tregara 4—5 tonn. Bát-
arnir eru ýmist vestur undir Mel
eða þá austur undir Pétursey.
Trollbátarnir: Það er að glæðast
hjá togbátunum. Aflinn er ennþá
yfirleitt tregur, en bátur og bátur
rekur þó í góðan túr, t. d. fékk
Siggi á Freyjunni 17 tonna túr í
vikunni. Og í gær landaði Sveinn
Valdemarsson Sæbjörgu BA, 14
tonnum og var sá afli eftir dag-
inn, og það er alveg ágætt.
Loðnan: Góður loðnuafli hefur
verið þessa dagana. Júlli á vigtinni
sagði, að flestir hefðu verið með
fullfermi í gær. Fór mestalhir sá
afli í Fiskimjölsverksmiðjuna og á
■ -j\. .
hún nú orðið um 35 þús. tunnur
óbræddar. Hjá Einari eru birgðir
um 5 þús. tunnur. — Gert er ráð
fyrir, að bræðsla í verksmiðjunum
hefjist núna um helgina.
FRÁ eýverjum.
Á morgun, laugardag, efna Ey-
verjar til helgarráðstefnu í Sam-
komuhúsinu. Mun Styrmir Gunn-
arsson, lögfræðingur, þar flytja er-
indi um stjórnmálaviðhorfið. Allt
sjálfstæðisfólk er velkomið á ráð-
stefnuna, er hefst kl. 4.
Sjálfvirk vatnsdæla
óskast til kaups. — Upplýsing
ar í prentsmiðjunni.
Framkvæmdamenn!
Tek uð mér hvers konar trésmíða
vinnu innan húss sem utan.
Smíða útihurðir með stuttum
fyrirvara á mjög góðu verði.
ÁGÚST HREGGVEÐSSON
Brimhólabraut 35.
Simi 2139 >
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
jarðarför
JÓNS GUÐJÓNSSONAR,
frá Þorlaugargerði.
Sérstaklega færum við Dráttarbraut Vestmannaeyja þakkir.
Ingibjörg Jónsdóttir, Garðar Arason,
Sigurgeir Jónsson, Katrín Magnúsdóttir,
Anna J. Oddgeirs, Friðrik Hjörleifsson.
Stjúpmóðir og systkini.
JARÐARFÖR
LÁRUSAR G. ÁRNASONAR frá Búastöðum, fer fram frá Landa-
kirkju laugardaginn 25. febrúar n. k. kl. 2.
AÐSTANDENDUR.
Hugheilar þakkir til allra, nær og fjær, er minntust mín á
áttræðisafmælinu. Ykkar heill. Sigurður Sæmundsson, Brekastíg 11.
Fermingar Ka fötin upfé komin. lag Vestmannaeyja
JÓN GUÐJÓNSSON, minning.
Framhald af 1. síðu.
mun Jóni og Guðrúnu hafa fundist
eins og Gunnari forðum, að þarna
vildu þau una, alla þá daga, sem
Guð, þeim sendi. Og okkur, sem til
þekkjum finnst að eftir hans löngu
samleið við þetta umhverfi, sé sem
hlý ástúð felist í þögninni, er ríkir
eftir hann látinn.
Jón missti konu sína Guðrúnu
1953, en hún hafði átt við vanheilsu
að stríða. Þau eignuðust tvö börn,
sem hefur lánazt vel, Ingibjörgu
húsfreyju í Þorlaugargerði, gifta
Garðari Arasyni og Sigurgeir kenn
ara. Auk þess ólu þau upp frá
Náttúrugripasafnið: Friðrik Jes-
son umsjónarm. gat þess við okk-
ur að nú um helgina gæfist fólki
kostur á að sjá enn eitt sjávardýr í
safninu. Er þar um að ræða selkóp,
sem hafði villzt inn fyrir ramma-
þilið í Friðarhöfn. Friðrik náði
kópnum, þvoði af honum grút og
olíu og verður nú eitt af búrunum
rýmt fyrir gestinn, meðan heim-
sókn hans stendur yfir. Er þess að
vænta að marga fýsi að sjá kópinn.
Safnið er opið laugard. og sunnu
dag frá kl. 3—7.
barnsaldri Önnu Oddgeirs, sem bú-
sett er hér í bæ, og reyndust henni
sem beztu foreldrar.
Eftir lát konu sinnar bjó Jón á-
fram með börnum sínum í Þorlaug-
argerði.
Með Jóni Guðjónssyni ir geng-
inn merkur maður, sem hægara
verður að muna en gleyma. Hann
andaðist 12. febrúar s. 1.
En á ströndinni handan hafsins
mun honum fagnað af henni, sem
reyndist honum sannur lifsförunaut
ur á þeirra samleið hér a jörð.
Friðfinnur Finnsson,
Oddgeirshilum.
---------------.—--------------------SfcMúAVT-
BÆJARBLÖÐIN í HÖNDUM KENNARASTÉTTARINNAR
Bæjarblöðin eru nú öll með tölu komin að mestu leyti í hendur kennarastéttarinnar. Þannig koma rit-
stjórar þeirra snillingnum Sigmund fyrir sjónir á meðfylgjandi mynd.
Fyrst skal frægan telja Framsóknarspekúlantinn Hermann Einarsson, sem eins og flokksbræður hans,
reynir með öllum ráðum að hefta verðbólguófreskjuna og notar auðvitað það haft, sem nærtækast er.
Garðar Sigurðsson bendir í austurátt og fer að dæmi kollega sinna í flokknum og dansar línudans á haft-
inu.
Hið bezta samstarf hefur verið :milli stjórnarflokkanna, Sjálfstæðisflokksins og Alþýðuflokksins, og er
ekki annað að sjá en sú sé einnig raunin á með Sigurgeir Jónsson og Reyni Guðsteinsson í gervi tveggja vel
.þe.kktra sjónvarpshetja.-Ekki.munum við leggja dóm á það, hvort slíkur dýrðarljómi leikur um Fylki og hans
ritstjóra, "að' 'réttmætt "sé* áð“líkja því við sjálfan Dýrþnginn, né heldur,- að Brautin sé svo steinrunnið blað,
að líkt sé við steinaldarstigið, en hvað um það hér er ritstjórnarkennaraliðið og það í allri sinni dýrð.