Fylkir - 28.04.1967, Blaðsíða 8
j~ui_fn_íi. —<ni*~~ri r*>»ir~«n«in i»i—»n«i1 «1 r\ii—xifi 1 n *mi—iniV«*»r1*Tj~*~—*~*-*~ *^~~~‘~^~*~*-*‘~ ** ^■^^**^^*^*-**^^*^^—***
SAMSÖNGVAR
Verða haldnir í Samkomuhúsi Vestmannaeyja laugardaginn 29. apríl 1967, klukkan 16,00 og klukkan 20,00.
Stjórnandi: Ragnar Björnsson.
EINSÖNGVARAR: Eygló Viktorsdóttir, Guðrún Tómasdóttir, Sigurveig Hjaltested, Svala Nilsen, Hákon Oddgeirsson, Kristinn Hallsson.
VIÐ HLJÓÐFÆRIÐ: Guðrún Kristinsdóttir, Carl Billich, Ólafur Vignir Albertsson. — EFNISSKRÁIN MJÖG FJÖLBREYTT
KARLAKORINN FÓSTBRÆÐUR
r ^
Neðan frá sjó.
V_________ ________)
Veðráttan: Ekkert lagast tíðin.
Sami þembingurinn og stórsjór
dag eftir dag. Segja sjómenn á
netabátunum, að í rauninni sé
aldrei sjóveður, þótt reynt sé að
hanga í „draslinu“. Eru netabátarn
ir þeir einu, sem geta „verið að“,
hinir geta skotizt út dag og dag eða
part úr degi. Eru menn nú al-
mennt búnir að gefa það frá sér,
að góður sjóveðursdagur komi á
þessari vertíð.
Nótabáfarnir: Ekkert hefur feng-
izt í nótina undanfarna daga, enda
ekki veður. Bátarnir aðeins skotizt
út og svo í höfn aftur. Er vertíðin
hjá nótabátunum mun lakari held-
ur en í fyrravetur. Aflahæstu bát-
arnir eru Gullberg með 299 tonn
og Gjafar 268 tonn. Sjá menn af
þessu, að ekki er of bjart yfir. —
Netin: Afli er góður í netin þessa
dagana. Tregaðist fyrir nokkrum
dögum og héldu men að það væri
„að dragast upp“, en þá brá til
sunnan og suðvestan áttar og lifn-
aði þá aftur yfir, og það svo, að
aflinn komst upp í tæp 40 tonn.
Eitthvað mun að vísu hafa verið
tveggja nátta af þessum afla en
sama er, þetta er prýðilegt. í gær
og fyrradag var aflinn hjá flestum
þetta um 20 tonn. Eru nær allir
netabátarnir búnir að gera vertíð.
Trollið: Aprílmánuður hefur ver-
ið alveg afleitur hjá trollbátunum.
Veðráttan verið á þann veg, að
þeir hafa nær aldrei getað verið
heila dagstund að. Er þetta því sár
ara, þar sem vitað er, að talsverð-
an fisk er að fá, ef hægt væri að
athafna sig við veiðarnar. En því
er nú ekki að heilsa. Marzmánuð-
ur var aftur svo sem menn muna,
alveg ágætur hjá botnvörpubátun-
um. En það getur vel verið, að
þeir eigi eftir að fá hann i trollið
ennþá, sagði Júlli á vigtinni í morg
un, þegar við vorum að spjalla um
ástandið „niður við sjó“. Maí-mán-
uður var nú alltaf bezti mánuðurinn
okkar hérna í gamla daga. Hæstu
trollbátarnir eru Guðjón Sigurðs-
son með 419 tonn, Hrauney með
376 tonn og Suðurey 368 tonn.
Hæstu bátarnir: Svo sem sjá má
á eftirfarandi aflaskýrslu, sem tek-
in var s. 1. miðvikudagskvöld, þá
hafa margir lagað rétt vel fyrir sér
upp á síðkastið. Hér er svo skýrsl-
an (talið í tonnum):
Sæbjörg .......:........... 842
Andvari ................... 745
Leó ....................... 716
Sæunn ..................... 684
Stígandi .................. 650
Eyfellingur ............... 645
Björg VE .................. 570
Ófeigur III ............... 539
Kap ....................... 535
Júlía ..................... 527
Hilmir II ................. 502
Aflamagnið: Um miðjan apríl
voru komin hér á land 17 þúsund
smálestir af fiski. Er það um 2
þús. lestum meira heldur en á sama
tíma í fyrra. Þetta er að sjálfsögðu
gott, svo langt sem það nær. Það
er nefnilega að athuga, að seinni
hálfur mánuðurinn af apríl hefur
verið mun lélegri hvað aflabrögð
snertir heldur en sama tímabil í
fyrra. Kann því svo að fara, að út-
koma vertíðarinnar í ár verði svip
uð og í fyrra. En vonin mér í
brjósti býr . . . og ef til vill eiga
þessir fáu dagar til loka eftir að
færa oss mikinn afla. —
Bj. Guðm.
Athygli skal vakin á tímasetn-
ingu samsöngs Fóstbræðra, sem mis
ritaðist í Framsóknarbl. — Rétt er:
kl. 16 og 20.
V V B
■ ■ ■
Þeim ku ekki hafa orðið um
sel hinum norrænu gestum, sem
sóttu okkur heim í fyrradag,
þegar þeim varð litið út úr flug
vélinni uppi á flugvelli. Það,
fyrsta, sem þeir sáu, var sveit
filcfldra lögreglumanna, sem
komin var á staðinn. Ekki er
trútt um, að gestunum liafi
brugðið í brún við sjón þessa,1
enda munu þeir allir vera hinir
mestu hæglætismenn og lítt fyr-
ir óeirðir gefnir. Sem betur fór
reyndist þetta aðeins vera í heið
urskyni við þá, en einhverjir
hvísluðust samt á um, að þetta
væri orðið svipað og viðbúnað-
urinn er, þegar von er á bítla-
hljómsveitum til hljómleika-
halds.
Vísa dagsins
Á langinn má lagfæring draga
og lítil er Sigurðar raun.
Nú Ingólf Iátum við Iaga
leiðina upp fyrir hraun.
Landakirkja.
Messað n. k. sunnudag kl. 2.
Betel.
Barnaguðsþjónusta kl. 1. Alm.
samkoma kl. 4,30 á sunnudag.
Innheimtuskrifstofa
Stefáns Árnasonar v/Ríkisútvarp
ið, verður flutt 2. maí í Dómssal-
inn við Heimagötu, og verður vo
allan maímánuð.
Frá Eyverjum.
N. k. þriðjudagskvöld kl. 9, boða
Eyverjar til almenns fundar í litla
salnum. Verður rætt um sam-
göngumál. Guðlaugur Gíslason mun
flytja erindi á fundinum og sýnd-
ar verða tvær kvikmyndir um loft
púðaskip og lagningu neðansjávar-
strengja. Allt sjálfstæðisfólk er vel-
komið á fundinn.
inunið ljósastillingar á
BÍLAVERKSTÆÐI
Krisfjóns & Bjarna
Sími 1535.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og
jarðarför 4 :i "A ■{
ÞORSTEINS ÓLAFSSONAR,
Kirkjubæjarbraut 4.
Gífúný Jóhannsdóttir og börn
i i I 1 . HLUTABRÉF. | t i
J Þeir, sem vilja láta skrá sig fyrir hlutafé í Eyjaflugi h. f. vegna i ?
: áframhaldandi starfsemi félagsins, hafi samband í síma 1534. 1
I EYJAFLUG H. F. 1 5