Fylkir - 12.05.1967, Blaðsíða 6
r : ^
Neðan f rá sjó.
v____ J
Kosningaskrifstðfa
SjálfsfæðisfEckksðns
Lokadagur: I gær var lokadagur,
vetrarvertíðarlok á Suðurlandi, og
er þá lokið einhverri erfiðustú ver-
tíð hér hvað veðráttu viðkemur, er
komið hefur í áratugi. Má segja, að
aldrei hafi komið dagur alla vertíð-
ina, er sæmilegur gæti heitið. Stór-
sjór og brim hefur verið einkenni
þessarar vertíðar. Ekki liggja enn-
þá fyrir tölur um heildaraflamagn
vertíðarinnar, en gera má ráð fyrir,
að aflamagnið á vertíðinni sé svip-
að og í fyrra, ef til vill aðeins
meira . Hlutur útgerðar og sjó-
manna er mjög misjafn. Á beztu
bátunum er afkoman viðunandi, en
þó ekki í neinu hlutfalli við það erf
iði og þann kostnað, er í er lagður.
Er þetta lærdómur, er taka verður
til athugunar, þó ekki verði gert
hér að sinni — enda varla hægt í
þessum stutta þætti, sem er nú
bara vettvangur rabbs og frétta
neðan frá sjó. — En eitt má ekki
fram hjá okkur fara, — og það eru
þau gleðilegu tíðindi, að ekki hafa
orðið mannskaðar eða alvarleg
slys á mönnum við öflun lífsbjarg-
arinnar. Fyrir það veri forsjónin
lofuð.
Aflahæstu skipin: Aflakóngurinn
í ár er Hilmar á Sæbjörgu, er hafði
fengið 965 tonn á miðvikudags-
kvöld. Bezt get ég trúað, að hann
hefði hug á, sá dugnaðarþjarkur, að
ná í 1000 tonnin. Hann fór á línu
eftir að hann tók upp netin, og hef
ur rótfiskað á línuna, allt upp í 18
tonn. Það má nú nota minna. Aflá-
hæstur í nótina er Rafn á Gjafari
með 448 tonn. Þar hefur heldur
ekki verið slegið af í vetur. Afli
botnvörpubátanna er mjög misjafn,
en þar er hæstur m.b. Guðjón Sig-
urðsson, með 457 tonn, sem er
prýðisafli, hafandi í huga allar að-
stæður.
Bátarnir, sem stunduðu neta- og
línuveiðar sitja að tiltölu bezt í því,
hvað aflamagni viðvíkur, þar sem
þeir nær allir hafa náð 500 tonna
afla og yfir.
Aflaskýrslan: Hér fara á eftir
nöfn þeirra báta, er hafa 500 tonn
og yfir miðvikudagskvöld):
Sæbjörg ................... 965
Andvari ................... 859
Leó ....................... 805
Sæunn ..................... 755
Stígandi .................. 747
Eyfellingur .............. 739
Björg ..................... 659
Kap ....................... 622
Ófeigur III ............. 612
Júlía .........;...:........606
Lundi .................... 587 .
Hilmir II ....„............ 574
Þráinn ................. 559.
ísleifur II ................535
Bj. Guðm.
er í Samkomuhúsinu. — Opin dag-
fiego frá ki. 1-7 fyrst um sinn.
Símar: 1344-1070-2233.
Þar verSur einnig afgreiðsla fyrir
happdrætti Sjálfstæðisflokksins.
SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN.
Þökkum hjartanlega öllum þeim mörgu, nær og fjær, sem auð-
sýndu samúð og hluttekningu, við fráfall og jarðarför
GUÐFINNU SIGBJÖRNSDÓTTUR,
Miðhúsum.
Kristinn Ástgeirsson,
Þórarinn Sigbjörnsson, Elínborg Sigbjörnsdóttir,
Svava Sigurðardóttir.
l>l>'
Þórarar
i '
Mætið vel á frjálsíþróttaæfingar bandalagsins á
mánudögum frá kl. 7—10 e. h.
ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ ÞÓR.
VORHÁTIÐ EYVERJA F.U.S. 1967
Hin átrlega vorhátíð félagsins verður
haldin 14. maí n. k., hvítasunnudag,
í Samkomuhúsinu.
DAGSKRÁ:
Kl. 16,00 Barnaskemmtun.
Kl. 20,20 Kvöldskemmtun.
Lúðrasveit Vestmannaeyja leikur.
Ræða: Ingólfur Jónsson, ráðherra.
Ríó tríó.
Ballet, 5 stúlkur úr dansskóla Þjóð-
leikhússins.
Guðmundur Jónsson og Svala Ni-
elsen syngja, undirleikari: Ólaf-
ur Vignir Albertsson.
Ómar Ragnarsson, skemmtir.
Þjóðlagasöngur: Sigríður Sigurðar-
dóttir.
Sextett Ólafs Gauks, söngkona er
Svanhildur Jakobsdóttir.
Kl. 00,01 Almennur dansleikur til kl.
4 eftir miðnætti. — Sextett Ólafs
Gauks leikur fyrir dansinum.
Sala aðgöngumiða verður sem hér segir: —
Á barnaskemmtunina kl. 13,00, verð 25 kr.
Á kvöldskemmtunina kl. 16,00 og á dans-
leikinn kl. 18,00. og verða borð tekin frá um
leið.
nrr r. r*in.~ nr~ * —-i---------- ~ -
Landakirkja:
Messað n. k. sunnudag kl. 2.
Betel:
Barnaguðsþjónusta kl. 1. Almenn
samkoma kl. 4,30.
Sjóstangaveiðimót
verður haldið hér um hvítasunn
una, 13. til 15. maí n. k. Er þetta
Alþjóða stangveiðimót og stendur
Sjóstangaveiðfélag Reykjavíkur fyr
ir þvi.
Tilhögun mótsins verður í stór-
um dráttum sem hér segir:
Flogið verður frá Reykjavík með
Flugfélaginu á laugardag kl. 16,30
til Vestmannaeyja.
Mótsgestir búa hér á Hótel HB.
Á hvítasunudag verður lagt frá
landi kl. 9 og fiskað til kl. 18, en á
2. í hvítasunnu verður fiskað frá
kl. 9 til 17. Að kvöldi þess dags
verður svo lokahóf að Hótel HB. —
Þar verða úrslit tilkynnt og verð-
laun afthent.
Flogið verður svo um miðnætti
til Reykjavíkur. Þátttakendur eru
um 70.
Vísa dagsins
Það er bitizt og slegizt á bóga tvo
og baráttan óðum harðnar.
Hannibal vill sínar hendur þvo
meþ hrekkjum leiðinni varnar.
*' ^ " * ^~r*liri rW~»i«ii» >Uj
9 9 0 I
■ ■ ■ |
I
1 Skyldu Framsóknarmenn og j
, kommar vera að gefa mönnum J
vísbendingar með rifrildi sínu I
um það, hvernig þeir hyggjast J
hafa samstarf sitt, ef svo færi, I
' að þeir kæmust í stjórn? 1
j
* ~* —mmrin ili.i > ii ilj
Barnakojur
ódýrar, litið notaðar, til sölu. —
Upplýsingar í síma 1626.
Gullbúðin auglýsir
Mikið úrval gjafavara.
fermingargjafir
fyrir stúlkur og pilta.
Brekastíg 1. _ sími 1495.
\