Fylkir - 19.05.1967, Blaðsíða 1
19. árgangur.
Vestmannaeyjum, 19. maí 1967.
fctálgogty
ffoklcsiiiD
17. tölublað.
Hvers vegna að
stöðva uppbygginguna
* l ^rFri^Tn|][fl||MM f
p ik m *«*»**«**. , ?. :•?. 43 j *
mr'tr’T'n ■ V * gffe|ga5|Í||
f' ^£1131 mg'm "7,1
f Wiisr Eta Jpp Ipisssr »»s fcsjs Sáas iJ 'JÆÁitM ****»»i ■ i . ■■ --■ ■: • • msmsl i ií s «» - o* - jf idijsf mif
í'
É|11m i tytt ’*■* '*(lwP ,?FF
mm íþmi ** IW ! * t -
Skömmtun!
Skömmtunarseðlar
þekkjast ekki á íslandi
lengur. Á valdatímum
Framsóknarflokksins
og kommúnista voru
þeir lifsnauðsynlegir
hverjum manni. Vill
nokkur ungur maður
slíkt stjórnarfar á ný?
Allir vita og vijSurkenna, hvar í
flokki, sem þeir standa, að undan-
farin ár, eða síðan að núverandi
ríkisstjórn tók við, hefur verið
meiri gróska og uppbygging í þjóð
félaginu en nokkurn tíma áður.
Þetta viðurkendu þeir Lúðvík
Jósefsson og Karl Guðjónsson á
fundinum, sem þeir héldu hér í AI-
þýðuhúsinu fyrir nokkru, þó að
þ'eir að sjálfsögðu hefðu sínar skýr-
ingar á því, sem þeir töldu heppi-
legastar fyrir þá áheyrendur, sem
þar voru. Fóru þeir ekkert dult
með, að meiri velmegun ríkti nú
hér á landi en nokkurn tíma fyrr.
Framsóknarflokkurinn hefur held-
ur hvergi þorað að mótmæla þessu,
enda væri slíkt algerlega tilgangs-
laust, svo augljóst sem það er öll-
um almenningi.
En þrátt fyrir þetta og þrátt fyr-
ir að báðir þessir flokkar ganga
innbyrðis meira og minna sundrað
ir til kosninga og reyna auk þess að
ná sem mestu fylgi hvor frá öðr-
um, hafa þeir sett sér eitt sameig-
inlegt takmark, en það er, að
stöðva uppbygginguna og þá vel-
megun, sem þeir báðir viðurkenna,
að hér ríki.
Almenningur hlýtur að spyrja:
Hvaða tilgangi þjónar slíkt? Og
hvað myndi taka við, ef vinstri
flokkunum tækist þetta?
Um tilganginn er fyrirfram vit-
að. Hann þjónar ekki almennings-
heill. Heldur óttast Framsókn og
kommúnistar fylgistap í framtíð-
inni, ef uppbyggingin og velmegun-
in heldur áfram.
Að sjálfsögðu dettur engum í
hug að halda því fram, að á þeim
uppbyggingar og umbrotatímum,
sem verið hafa síðan viðreisnar-
stjórnin tók við, hafi ekki ýmislegt
farið öðruvísi en æskilegt hefði
verið. En hitt vita allir og viður-
kenna, að í grundvallaratriðum hef
ur viðreisnarstefnan heppnast og
leitt til allsherjar uppbyggingar og
framfara á flestum sviðum og betri
efnahags almennings og þjóðar-
heildarinnar en nokkurntíma fyrr'
hefur þekkzt hér á landi og meiri
almennrar velmegunar en víðast
hvar annars staðar.
Þetta liggur ljóst fyrir og verð-
ur ekki í móti mælt.
En hvað myndi taka við, ef
vinstri flokkarnir næðu aftur völd-
um hér á landi?
Bifreiðainnflutning-
ur 1960 og 1966
Þegar velmegun cykst, leyfir
fólk sér ýmis lífsþægindi, sem
það dreymdi ekki um áður.
Þannig verður það æ algeng-
ara, að hver fjölskylda eigi sína
bifreið.
Árið 1960 var ein fólksbifreið
á hverja 12 íbúa landsins.
Nú eru rúmlega sex ibúar
um hverja fólksbifreið og er
lieildartala fólksbifreiða um 31
þúsund.
Þegar viðreisnarstjórnin tók
við, þurfti leyfi stjórnarherr-
anna til að kaupa bifreið og
fengu það leyfi færri en vildu.
Þetta er spurning ,sem hver ein
asti verður og hlýtur að gera upp
við sig áður en hann gengur að
kjörborðinu.
Vill fólkið aftur kjósa yfir sig þá
haftastefnu og það ófrelsi, sem
ríkti í tíð vinstri stjórnarinnar á ár-
unum 1956 til 1958?
Óskar fólkið aftur eftir vöru-
þurrð, skömmtun og svartamarkaðs
braski?
Óskar fólkið aftur eftir gjald-
miðli, sem hvergi var seljanlegur
utan landssteinanna og af engri
þjóð skráður eða viðurkenndur?
Eða óskar fólkið eftir athafna-
frelsi, frjálsu vöruvali og gjald-
miðli, sem allsstaðar er seljanlegur
á fullu verði erlendis?
Allt eru þetta spurningar, sem
hljóta að koma upp í huga kjósenda
þegar þeir með atkvæði sínu marka
þá stjórnarstefnu, sem ríkja mun á
næstu árum.
Ein staðreynd liggur alveg ljós
lega fyrir.
Vinstri flokkarnir fengu tækifæri
til að sanna getu sína á árunum
1956 til 1958.
En hvernig fór?
Eftir fálmkenndar stjórnarathafn
ir í tvö og hálft ár gáfust þeir
hreinlega upp og lýsti þáverandi
formaður Framsóknarflokksins því
yfir við stjórnarslitin, að skollin
væri á óðaverðbólga, sem vinstri
flokkarnir réðu ekkert við og yrðu
því stjórnarskipti að verða.
Gamalt máltæki segir ,að til þess
séu vítin að varast þau, og ættu
kjósendur einnig að hafa þetta í
huga.
Sjálfstæðisflokkurinn biður um
það eitt, að kjósendur geri það
upp við sig við kjörborðið hvort
þeir telji það ekki hagkvæmara fyr
ir sig og þjóðarheildina að áfram
ríki fullt athafnafrelsi til áfram-
haldandi uppbyggingar, heldur en
að verða við óskum Framsóknar og
kommúnista um stöðvun viðreisn-
arinnar.
■Ma
*
Hefur þú efni á að neita nýjum bíH
Þar, sem við búumst við að svarið verði neikvætt, getum
við bent þér á, að miðar í hinu glæsilega happdrætti Sjálfstæðis-
flokksins fást í skrifstofu flokksins í Samkomuhúsinu og kosta að-
eins 100 kr. Einnig viljum við biðja þá, sem fengið hafa senda
miða, að gera sem fyrst skil, en nú fer hver að verfca síðastur, þar
sem dregið verður hinn 23. maí n. k.
Munið, að það eru 5 bílar í boði. Aldrei hefur gefizt betrá
tækifæri til að eignaat jafnmikið fyrir jafnlítið!