Fylkir - 16.06.1967, Blaðsíða 4
"N
Neðanfrá sjó.
v_________ _________J
Veðráttan: Ekki er nú hægt að
segja að tíðin sé góð. Flesta dag-
anna í vikunni voru bátar þó á
sjó — í leiðindaveðri. Sunnan og
suðaustan þræsing og þokudump-
ungi.
Bátafjölðinn: Eftir því, sem ég
hefi komizt næst munu 52 bátar
vera gerðir út á botnvörpuveiðar.
Af þessum 52 bátum eru 9 með
humarvörpu, og er það minna en
á undanförnum sumrum. Humar-
bátum kann þó að fjölga eitthvað
er á sumarið líður ef „krabbinn”gef
ur sig til. Auk þess er einn bátur
á lúðu og annar er með færi. Og
svo eru það trillurnar. Tvær af
þeim eru með línu, en hinar með
færi. Af þessu má sjá, að hér er
ekki um svo lítinn flota að ræða.
Er gott til þess að vita af svo þrótt
miklum útgerðarrekstri nú um há-
sumar og á þeim árstíma, er fyrir
nokkrum árum var meira að minna
„dauður tími” í útgerð.
Aflabrögð: Ekki er annað hægt
að segja en að afli í botnvörpuna
hafi verið góður s.l. viku, upp í
25 tonn eftir 3 daga túr. Enda
er aflamagnið er berst á land suma
daga vikunnar eins og á „góðum
degi” á vertíð. Er einna bezt hjá
Vinnslustöðinni. Þar hafa suma
dagana komið á land á annað
hundrað tonn. Það má nú nota
minna. Aflinn er að miklum meiri
hluta langa. Virðist óvenjuleg
löngugengd.
Um humarveiðina er aftur aðra
sögu að segja. Humarinn er enn-
þá sáratregur. Er það ef til vill að
vonum. Á miðum humarbátanna,
er mikil örtröð af bátum hvaðan-
æva af landinu, sem dæmi má
nefna að í Háfadýpinu töldu sjó-
menn einn daginn 40 báta, á hum-
arveiðum, meira segja vestan úr
Stykkishólmi, svo að maður tali
nú ekki um hafnirnar við Flóann
og hér úr nágrenninu. Og ekki er
því að leyna að uggur er í mönn-
um að þessi mikla ásókn báta úr
öðrum byggðarlögum á okkar mið
_t
kunni að segja til sín í minnkandi
aflabrögðum er á sumarið líður.
Gídeon: Alltaf er nú gaman að
labba niður við sjó, en aldrei eins
og þegar nýtt og glæsilegt skip bæt
ist í flotann og siglir að landi, fán-
um skreytt. Og Gídeon þeirra Gerð
isbræðra og Gísla Jónassonar er
glæsilegur farkostur og sannarlegt
augnayndi að horfa á hann við
bólverkið í Friðarhöfninni. Eg sé
ekki ástæðu til þess að fara að lýsa
skipinu sérstaklega, þar sem ég
geri ráð fyrir að flestir lesenda
minna og þeir er áhuga hafa á út-
gerð hafi farið um borð og skoð-
að skipið í hólf og gólf. Eg vil svo
óska eigendum Gideons til ham-
Eg þakka öllum, sem sýndu mér vinarhug með
heimsóknum, gjöfum og skeytum á 50 ára starfsafmæli
mínu hinn 1. júní 1967. Sérstaklega þakka ég öllum þeim
sem hafa starfað við afmælið.
Guð blessi ykkur öll.
ÓSKAR SIGURHANSSON.
D-lista íagnaðnr
í kvöld kl. 9 í Samkomuhús-
inu.
Allt starfsfólk og stuðnings-
fólk D-listans velkomið.
Kaffiveitingar.
Karl Einarsson skemmtir
Dans.
/
SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN
VERKFÚLL
Þeir halda að sér höndum og heimta meira kaup
og halda uppi málþófi, með þvermóðsku og raup.
Þeir vita að stöðvun vinnu er versti þjóðarbagi.
En verkföll eru stríðsglæpir gegn hverju þjóðfélagi.
Óútkljáða deilu skyldi ætíð ieggja í dóm
þó alvís sé ei slíkur, hann fyllir rökum tóm,
og sáttarorð ber milli, sem sjálfsagt er að hlíta,
þó sínum augum hver vilji niðurstöður líta.
P. H. Á.
! íbúð óskast.
i
I 2 herbergi og eldhús eða meira, óskast
til leigu.
! UPPLÝSINGAR 1 SÍMA 1959.
ingju og vona að þeim farnist vel
og gæfa og gengi fylgi skipi og á-
höfn.
Ný vél: Svo sem öllum hér í Eyj-
um er kunnugt, er Sigmund Jó-
hannsson, hugvitssamur maður.
Hefur hugvit hans einkum verið
í þá átt að auðvelda og koma á
meiri hag- og vélvæðingu í vinnslu
sjávarafurða. Það nýjasta frá hans
hendi á þessu sviði er vél er garn-
hreinsar humar. Er fyrsta vélin
komin í notkun í ísfélaginu.
Garnhreinsun á humar með hönd
unum einum er seinlegt og fólks-
Visa dagsins
Þótt fum sé þar og fát um
kring
og Framsókn út sig belgi.
Ekki kemst hann inn á þing
auminginn hann Helgi.
frekt verk. Ef dæma má eftir
þeim stutta tíma er vélin hefur
verið í notkun má ætla að hún auð
veldi mjög vinnslu á humar og
geri hana hagkvæmari.
Bj. Guðm.
Landgkirkja: Messað kl. 10 f.h.
n.k. sÆnnudag. Séra Þorsteinn L.
Jónsson predikar.
Betel: Almenn samkoma kl. 4,30.
D-lista fagnaður: Athygli skal
vakin á kvöldfagnaði D-listans fyr
ir stuðningsfólk sitt, sem verður
í kvöld í Samkomuhúsinu kl. 9 e.
h. (Sjá nánar auglýsingu annars-
staðar í blaðinu).
Næsta blað: Vegna sumarleyfa í
prentsmiðjunni verður næsta blað
Fylkis hið síðasta, sem út kemur
að sinni.
Er auglýsendum og öðrum sem
þurfa að koma efni í blaðið bent
á að hafa sem fyrst samband við
blaðið í síma 1920.
Örnefnagelraunin
Þótt svo hafi tiltekizt með ör-
nefnagetraunina að ekkert rétt
svar hafi borizt, þykir okkur þó
rétt að birta svörin við henni, þar
sem um það hefur verið beðið.
Dufþekja er norðan í Heimakletti
og ber nafn af því, að þrællinn Duf
þakur hljóp þar fram af á flótta
undan Ingólfi Arnarsyni.
Glashóll er í Ofanleitistúni, vest-
anverðu, en þar er talið að séra
Jón Austmann hafi gefið gestum
sínum í staupinu.
Fiskiklettar voru í Ofanleitis-
túni austanverðu, en voru sprengd-
ir burt, þegar hafizt var handa um
flugbrautina.
Tindadalur nefnizt nú Herjólfs-
dalur, en Tindadalsnafnið er að
finna í Hauksbók.
Bærinn okkar
Bíó - hlé - kók
Eg er einn þeirra mörgu, sem oft
fara í bíó í Samkomuhúsinu.
(Mér finnst að eitt mætti betur
fara í rekstri þess að honum þó
ólöstuðum.
Fólki þykir mjög gott að geta
farið fram í hléinu til að fá sér
kók, og er ég einn þeirra. Sá bögg-
ull fylgir þar þó skammrifi að kók-
ið er aðeins selt á einum stað í
húsinu, það er að segja í sælgæt-
issölunni og myndast þar oft mik-
il þrengsli.
Gæti nú ekki bíóið bætt úr þessu
með því að opna skenkinn uppi á
ganginum og afgreiða drykkjar-
föng einnig þar í hléinu?
Því yrði áreiðanlega vel tekið.
Bíógestur,