Fylkir - 23.06.1967, Blaðsíða 2
f
2.
F Y L K I R
Málgagn
Sjálfstæðisflokksins
Útgefandi:
Sjálfstæðisfél. Vestmannaeyja
Ritstjóri:
Sigurgeir Jónsson
Sími 1920
Auglýsingastjóri:
Bragi Ólafsson, sími 2009
Prentsmiðjan Eyrún h. f.
A/broð Framsóknar
Þótt nokkð su^ nú liðið frá kosn
ingum, og nokkuð farið að jafnast
um tal manna yfir þeim, er þó
langt frá, að þær séu þar með úr
sögunni. Það er ennþá eitt helzta
umræðuefni manna á förnum vegi
að rifja upp úrslit þeirra, og hvaða
merkingu megi leggja í þau úr-
slit.
Hæst ber þá jafnan, hver hlutur
Framsóknarflokksins hefur orðið
að afstöðnum kosningum og er sá
hlutur ekki talinn sérlega góður.
Enda er heldur dauft hljóð í flest-
um forkólfum Framsóknarmanna
um þessar mundir og þeir ekki sér
lega viðræðufúsir um úrslitin, og
má segja að um hreina uppgjöf sé
að ræða af þeirra hendi. Heldur
blæs nú óbyrlega fyrir þessum
næststærsta stjórnmálaflokki þjóð-
arinnar, að hann skuli hafa beðið
ósigur í kosningunum, en ekki unn
ið stórsigur, eins og var þó þeirra
álit fyrir kosningarnar.
Þetta afhroð er því meira, þegar
þess er gætt, að Framsóknarmenn
eru í stjórnarandstöðu, og eiga því
jafnan sterkari leik á borði en hin
ir við að benda á það, sem mis-
tekizt hefur, en slíkt hefur oft
reynst öllu þyngra á metunum hjá
kjósendum, en það, sem vel hefur
verið gert.
Þessi úrslit, sem liggja nú fyrir
um meirihluta stjórnarinnar, eru
því óræk sönnun á því, að vel
hefur verið haldið um taumana, og
mikið starf og gott verið unnið í
málefnum þjóðarinnar.
Málflutningur Framsóknarflokks
ins fyrir kosningar var með ein-
dæmum svo að ekki sé meira sagt
og hvergi hikað við að halla stað-
reyndm, ef þeir töldu, að með
þyrfti. Kjósendur sýndu það í
verki við kjörborðið, hvaða álit
þeir hafa á rangtúlkun Framsókn-
Nýtt tilleofl til hennslumdla
Núna í vor, rétt áður en skóla
lauk, var haldinn kennarafundur
kennara í Barnaskólanum. Á fundi
þessum bar Stéttarfélag barnakenn
ara í Vestmannaeyjum fram nokkr
ar tillögur til úrbóta í skóla- og
kennslumálum. Voru tillögurnar
samþykktar á fundinum og þeim
vísað til fræðsluráðs. Fræðsluráð
hefur nú nýlega haldið fund, þar
sem samþykkt var að vísa tillögun-
um áfram til fræðslumálastjóra.
Tillögur þessar eru í stuttu máli
á þessa leið:
í stað þess að kennsla hefjist kl.
9 á morgnana, eins og verið hefur,
verði hún hafin á tímabilinu milli
8 og 8,15. Hefði það í för með sér,
að laugardagurinn yrði frídagur
Þetta íyrirkomulag hefur verið tek
ið upp í flestum skólum Reykjavík-
ur og gefizt vel. Ennfremur má
benda á þá staðreynd að margar
stéttir manna vinna nú af sér laug
ardaginn sem kallað er, og má þar
til nefna iðnaðarmenn og fleiri.
Einnig er talið að kostur sé að
armanna, með því að lýsa yfir van
trausti við flokkinn og hans stefnu
eða réttara sagt stefnuleysi.
Það er athyglisvert, að meðan
Eysteinn Jónsson hefur haft for-
mennsku á hendi fyrir flokkinn,
hefur verið að smá reytast utan
af honum fylgið, og mun það nú
orðið Framsóknarmönnum nokkurt
umhugsunarefni hvort samband
sé þ'ár á milli. Talið var, að þriðji
maður á lista flokksins hér í Suð-
urlandskjördæmi, Helgi Bergs,
væri næsta formannsefni flokksins,
(og skyldi þá auðvitað ráðherra-
stóll fylgja með í kaupunum) en
þær vonir brugðust heldur hrapal-
lega, eins og ljóst er orðið.
Það er því skiljanlegt, að Fram-
sóknarmenn séu ekki upp á marga
fiska þessa dagana. Sú afstaða, er
þeir tóku til stórframkvæmda á
vegum landsins var ekki vel þokk-
uð. Þegar þeir lögðust eindregið
móti framkvæmdum á borð við
Búrfellsvirkjun og Álverksmiðjuna
í Straumsvík má telja víst, að þeir
hafi með því fyrirgert trausti
margra kjósenda, sem hafa það
mikla framsýni, að þeir sjá hví-
lík lyftistöng þessar framkvæmdir
munu verða fyrir íslendinga. Það
er þessi afstaða, ásamt fleirum, er
veldur því, að Framsóknarflokkur-
inn er fallandi stjarna í íslenzkum
stjórnmálum í dag.
S. J.
byrja daginn sem fyrst, þá verði
meira úr honum. Gagnfræðaskól-
inn hefur þennan hátt einnig á, og
telur hann betri en að byrja
kennslu seinna að morgninum.
Einnig leggur stjórn stéttarfélags
in til, að miðsvetrarpróf í núver-
andi mynd verði lögð niður. Miðs-
vetrarprófin eru ákaflega tímafrek
taka oft hálfan mánuð, sem nem-
endurnir eru alveg frá námi, að
öðru leyti en til upplestrar fyrir
próf, sem oft vill fara fyrir ofan
garð og neðan hjá mörgum. í stað
miðsvetrarprófanna er lagt til, að
kennari hvers bekkjar gefi nem-
endum svokallaða vetrareinkunn
fyrir námsárangur hvers og eins
og getur hann þá bæði stuðzt við
frammistöðu í tímum og einnig við
skyndipróf. Þetta væri auðveldlega
hægt að fella inn í skólastarfið
sjálft, án þess að nokkur truflun
á pví ætti sér stað. Þar fyrir ut-
an er það álit margra kennara, að
miðsvetrarprófin slíti einum um of
í sundur starfið og nokkurn tíma
taki að koma nemendunum aftur
á strikið, eftir að prófin eru um
garð gengin, vegna hlésins, sem
myndast vegna prófanna.
Um nokkurt skeið hefur sá hátt
ur verið á hafður, að lesgreinarn-
ar þ.e. landafræði, saga, náttúru-
fræði og heilsufræði hafa verið
teknar fyrir ein í einu, en ekki
allar samtímis, eins og áður tíðk-
aðist. Hefur fslandssagan verið tek
in fyrst að haustinu og lokið við
hana nokru fyrir jól, og þá tekið
próf endanlega í greininni. Þá hef-
ur landafræði verið tekin á sama
hátt og loks náttúru- og heilsu-
fræði. Kristinfræði hefur aftur á
móti verið kennd allan veturinn.
Það mún vera einróma álit kenn-
aranna, að þetta fyrirkomulag sé
mun betra en það sem var, þegar
allt var tekið saman í belg og biðu,
og mun haganlegra sé að geta ein-
beitt sér að einu viðfangsefni í
stað þess að verða að hafa mörg
í takinu í einu. Á þetta ekki sízt
við eftir, að nýir kennsluhættir
hafa komið til sögunnar, til dæmis
flokkavinna, sem sífellt er að ryðja
sér meira til rúms, og léttir að
miklu leyti staglinu og hinu þurra
námsefni af nemendum og kenn-
urum. Það er því eindregið álit
stjórnar stéttarfélagsins, svo og
kennarana í heild, að þessu fyrir-
komulagi verði haldið áfram, svo
sem verið hefur.
í bainu framhaldi af því, sem áð
ur var sagt um að felia niður miðs-
vetrarpróf og tímasparnað, sem af
því leiðir, er lagt til, að sá tími
verði beinlínis nýttur í þágu kenn
aranna sem nemendur njóti auð-
vitað góðs af um leið. Kennarar
eru nú yfirleitt kvaddir til starfs
1. september, og hefst þá kennsla
strax. Kennarar eru þá oftast illa
undir það búnir að hefja kennsl-
una samtímis, því að margt er að
gera til undirbúnings svo sem fjöl
ritun, verkefnaval, niðurskipun
námsefnis og fleira. Vill því oft og
tíðum ýmislegt verða laust í reipun
um til að byrja með, sem betur
gæti farið, ef betur væri undirbú-
ið. - Mætti taka hliðstætt dæmi úr
sjávarútveginum álíkt þessu, ef
skipstjóra væri skipað strax að af-
lokinni vetrarvertíð að hefja troll-
veiðar, án þess að „skvera af” eða
athuga hvort veiðarfæri væru í
lagi. Myndu sennilega margir skip-
stjórar skirrast við að gera slíkt,
enda óvíst um árangur af slíkum
aðferðum. — Þess vegna er lagt til
í tillögunni, að kennarar verði
kvaddir til starfa hinn 1. septem-
ber eins og áður, en nemendur
mæti ekki fyrr en hinn 15. sept-
ember til náms. Þennan hálfa mán
uð noti svo kennararnir til að und
irbúa starf vetrarins og geti þá,
að eins miklu leyti og unnt er, lok
ið því, og verið viðbúnir að ein-
beita sér að kennslunni eingöngu
og þurfi ekki einlægt að vera á
hlaupum til að undirbúa hana.
Þessi hálfi mánuður ætti algerlega
að endurheimtast með því að fella
niður miðsvetrarprófin, eins og áð-
ur er sagt, auk þess sem tíminn
nýttist betur, ef starfið væri vel
skipulagt í upphafi.
f sambandi við þennan hálfa
mánuð, frá 1. fram til 15. sept-
ember, mætti einnig nefna, að öll
þau námskeið, sem haldin eru fyr-
ir kennara hér á landi, eru ein-
mitt haldin á þessum tíma, og því
ógerlegt fyrir kennara að sækja
þau, ef svo verður áfram, sem ver-
ið hefur, að kennslan sé hafin
strax hinn 1. sept. Með því að
kveðja nemendur ekki til starfs
fyrr en um miðjan mánuðinn, væri
kennurum gefinn kostur á að sækja
þessi námskeið, en það hlýtur að
verða óhjákvæmilegt fyrir kenn-
ara í framtíðinni að sækja nám-
skeið sér til frekari menntunar,
jafn ört og allir kennsluhættir
breytast. [Merkur skólafrömuður
í Svíþjóð hefur sagt, að eftir svo
sem 10 ár, verði allt skólakerfi í
Framhald á 4- síðu.