Fylkir - 06.10.1967, Síða 1
Málgagn
Sjálfstæðis^
flokksms
19. árgangur. Vestmannaeyjum, 6. október 1967 26. tölublað
HÆSTARÉTTARDÓMUR:
Árið 1967, þriðjudaginn 19. september, var í Hæsta-
rétti í málinu nr. 138/1967:
Valdstjórnin pp Sigfúsí J. L Johnsen
uppkveðinn svohljóðandi
DÓMUR
Pétur Gautur Kristjánsson, fulltrúi bæjarfógetans í
Vestmannaeyjum, hefur kveðið upp hinn kærða úrskurð.
Með kæru 29. júní 1967, sem hingað barst 4. sept.
1967, hefur varnaraðili skotið hinum kærða úrskurði til
Hæstaréttar, samkvagmt 4. tl. 172. gr. laga nr. 82/1961, og
krafizt þess, að hann verði úr gildi felldur, lagt verði fyrir
dómara að skipa honum verjanda í málinu og honum
dæmdur kærumálskostnaður úr ríkissjóði.
Málsatvikum er eigi lýst í hinum kærða úrskurði.
Þá hefur héraðsdómari eigi fært fram rök fyrir því, að
varnaraðilja skuli synja um skipaðan verjanda, er sé við
dómprófun málsins. Ber því að ómerkja hinn kærða úr-
skurð.
Greiða ber varnaraðilja kærumálskostnað úr rík-
issjóði, sem ákveðst kr. 5000,00.
DÓMSORÐ:
Hinn kærði úrskurður er ómerkur.
Kærumálskostnaður, kr. 5000,00, ,greiðist varnar-
aðilja, Sigfúsi J. Á. Johnsen úr ríkissjóði.
F0RSETI ÁTELUR BÆIARSTJÓRA
Á bæjarstjórnarfundi s.l. þriðju-
dag komu meðal annars til um-
ræðu viðtöl bæjarstjóra við Morg-
unblaðið 17. ágúst s.l. og Bergmál
14. f.m., þar sem fyllilega var gef-
ið í skyn að búið væri að ákveða
vatnsveitugjald væntanlegrar vatns
veitu kaupstaðarins og tilgreindar
ákveðnar upphæðir á meðal heim-
ili.
Spurðust bæjarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins fyrir um hvort
meirihlutinn væri búinn að ákveða
þetta án þess að formlegt sam-
þykki bæjarstjórnar lægi fyrir og
bentu réttilega á að vatnsskatt-
inn yrði að innheimta þegar þar
að kæmi, eftir reglugerð, sem ræða
ætti í bæjarstjórn og samþykkjast
við tvær umræður og staðfestast
síðan af ráðuneytinu. Annað gæti
ekki talist formleg ákvörðun þessa
gjalds.
Sigurgeir Kristjánsson, forseti
bæjarstjórnar varð fyrir svörum
og taldi það slæmt og ekki rétt af
bæjarstjóra að hafa verið að nefna
tölur eða ákveðnar upphæðir í
þessu sambandi, þar sem bæjar-
stjórn væri enn ekki búin að á-
kveða gjaldið fyrir vatnið.
Urðu nokkrar umræður um
vatnsveituna almennt og fullyrti
bæjarstjóri að búið væri að leggja
minnsta kosti þriðja hluta innan-
bæjarkerfisins. Tóku bæjarfulltrú-
ar almennt þessum upplýsingum
með nokkurri varúð.
Bílaþjónustan -
þatít fyrirtæki
í I
Eigendurnir, Jón Gauti og Kjartan við bifreið sína.
Hinn 1. júlí s.l. leit nýtt fyr-
irtæki dagsins ljós hér í Eyjum.
Nefnist það Bílaþjónusta Vest-
mannaeyja og eru eigendur
þess þeir Kjartan Guðmundsson
og Jón Gauti. Fyrirtækið hefur
aðsetur sitt, bar sem áður var
smurstöð B.S.V. og hefur um-
boð fyrir vörur Skeljungs.
í stuttu viðtali við annan eig-
andann, Jón Gauta, nú fyrir
skömmu tjáði hann, að tilgang-
urinn með Bílaþjónustunni
væri eins og nafnið benti til,
að veita bifreiðaeigendum hér
eins góða þjónustu og fyr-
irgreiðslu og unnt væri, ekki
sízt við útvegun varahluta, sem
oft hefur reynzt bæði tímafrckt
og kostnaðarsamt fram til þessa,
þar sem menn hafa oftast orð-
ið að eiga við það sjálfir.
Aðspurður, hvernig reynslan
hefði orðið, sagði hann, að dá-
lítið hefði borið á því, að menn
hefðu misskilið tilgang fyrir-
tækisins í sambandi við vara-
hlutaöflun, og hefðu jafnvel
að
1 sumir haldið, að verið væri
okra á sér með þessari þjón-
ustu, en sá væri þó auðvitað
ekki tilgangurinn, heldur sá að
bæta aðstöðu Eyjabúa þeirra, er
bifreiðir eiga.
Tók hann sefn dæmi um það,
ef menn ætluðu sér að panta
platínur í bíl upp á eigin spýt-
ur. Fyrir utan verð þeirra úr
varahlutaverzlun í Reykjavík,
þyrfti einnig að greiða fyrir sím
talið við pöntunina, svo og send
ingarkostnað allan. í mörgum
tilfellum yrði aukakostnaður-
inn jafnvel hærri en verð það,
sem greitt væri fyrir varahlut-
inn.
Þetta geta menn nú losnað við
ef þeir láta Bílaþjónustuna sjá
um að panta hlutinn fyrir sig,
þar sem þeir panta ekki eitt
eða tvö stykki í einu, heldur
fleiri, svo að kostnaðurinn dreif
ist í fleiri staði.
Auk varahlutaþjónustu þvo
þeir og þurrka bifreiðir fyrir
mjög vægt gjald, eða 25 kr. fyr-
ir bílinn. Þá sjá þeir um að
Framhald á 2. síðu