Fylkir - 14.06.1968, Blaðsíða 3
FYLKIR
3
17. Júni 1968
17. júní mófr í Frjólsum íþróttum.
13. júní kl. 8: 100 m. hlaup, langstökk,
kúluvarp, spjótkast.
15. júní kl. 1: 200 m. hlaup, þrístökk,
kringlukast.
16. júní kl. 1: Hástökk ^stangarstökk,
sleggjukast.
Mótinu lýkur með boðhlaupi drengja
17. júní.
17. júní á Stakkagerðistúni:
Kl. 2: Hátíðin sett.
Lúðrasveit Vestmannaeyja,
Hátíðarræða: Haraldur Guðnason,
Samkór Vestmannaeyja syngur
Handbolti stúlkna. Þór - TÝR.
o. fl.
Lúðrasveit Vestmannaeyja.
Kl. 4. Grasvöllurinn við Hástein:
Unglingalandslið KSÍ — ÍBV.
Um kvöldið dansað í báðum húsunum.
í Alþýðuhúsinu. Logar leika og syngja.
í Samkomuhúsinu. Eldar leika og syngja.
Frá kl. 3—6 Líknarkafii í Alþýðuhúsinu.
Heiðurskarlar, hefðarfrúm
hingað bjóðið rjóðum.
„Líknar" konur líkna þeim,
með „Líknar" sopa góðum.
Heimsins bezta meðlæti!
17. JÚNf NEFNDIN.
Auglýsing
FYRSRFRAMGREIÐSLU ÚTSVARA.
Sl. vetur samþykkti Alþingi breytingar á lögum um tekju-
stofna sveitarfélaga, þar sem segir m.a.:
„Útsvör sl. árs skulu einnig dregin frá hreinum tekjum,
ef þau hafa verið greidd að fullu fyrir áramót næst á undan nið-
urjöfnun. Hafi gjalddagar samkvæmt a-lið 47. gr. (Um jafnar
mánaðarlegar afborganir fyrirframgreiðslu) verið ákveðnir, er
sveitarstjórnum heimilt að láta reglu þessa gilda því aðeins, að
jafnframt hafi verið gerð full skil á fyrirframgreiðslu eigi síðar
en 31. júlí álagningarárið.
Hafi gjaldandi eigi greitt þá upphæð, hálft útsvar 1967, hjnn
31. júlí, en gerir síðan full skil á öllu útsvarinu fyrir áramót,
skal helmingur útsvarsins dreginn frá hreinum tekjum.”
Bæjarráð hefur ákveðið að notfæra sér þessa heimild og
koma þessar nýju reglur til framkvæmda fr áog með árinu 1969,
þ.e.a.s. fyrirframgreiðslu yfirstandandi árs þarf að vera lokið fyr-
ir 31. júlí n.k.
Jafnframt vil ég vekja athygli á því, að eftirleiðis verða
víxlar ekki teknir sem greiðsla gjalda til bæjarsjóðs.
BÆJARSTJÓRI.
Orðsending
fró lögreglurmi.
Mikið hefur borið á því í vor, að hús ,sem staðið
hafa auð, hafa ekki verið séð í friði. Rúður hafa verið
brotnar og ýmis spjöll ver%S unnin á þeim og hafa eig-
endur þeirra orðið fyrir tilfinnanlegu tjóni. Búast má
við, að þarna séu að verki unglingar, sem ekki enn hafa
hlotið fulla ábyrgðartilfinningu, því er nauðsynlegt að
þeir verði stöðvaðir í hessu sem fyrst.
Lögreglan óskar eftir aðstoð bæjarbúa til að stöðva
þennan ófögnuð og biður alla þá, sem upplýsingar geta
gefið, að snúa sér til hennar.
LÖGREGLAN.
Lóðahreinsun
Hér með er skorað ó húseigend-
!
! ur að hreinsa lóðir sínar og lendur
sem allra fyrst.
BÆJARSTJÓRI.
SIM111400 EGGERT KRISTJANSSON &CO HF
10 ÁRA ÁBYRGÐ
UMBOÐ í VESTMANNAEYJUM:
JÓNAS GUÐMUNDSSON, sími 1561 og 2061.
BARNALEIKVELLIR
Þessir barnaleikvellii eru nú stai-fræktir:
1. Leikvöllurinn í Brimhólalaut, sem er lokaður gæzluvöllur.
J 2. Leikvöllurinn við Breiðabljk, sem er lokaður gæzluvöllur.
I 3. Leikvöllurinn á Péturstúni, sem er opinn gæzluvöllur.
I 4. Leikvöllurinn á Barnaskólalóðinni, sem er opinn gæzluvöllur.
j
Starfstímí vallanna er 9_12 og 13,30—17,30 á virkum dögum,
j nema á laugardögum þá 9—12.
Aldurstakmörk barna til gæzlu er frá 3ja til og með 7 ára.
!
j Bæjarstjóri.
j