Fylkir


Fylkir - 22.11.1968, Síða 1

Fylkir - 22.11.1968, Síða 1
2C. árgangur Vestmannaeyjum, 22. nóv. 1968 Málgagn Sjálfstæðis- flokksini , 1 15. tölublað Koipstaðurinn er 10 dn í / dag, 22. nóvember 1968, eru liðin 50 ár frá því, að Vestmannaeyjar hlutu kaupstað- arréttiiidi. / 1. grein laga nr. 26, 22. nóvember 1918, er kveðiö svo á, að „sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum skal vera bœjarfógetV’. / 3. rjrein segir ojnnfremur, að „bœjarstjórn stýri málefnum kaupstaðarins”, og í 4. grein, að , bæjarsjóður eignist allar eignir Vestmanna- ■'cýslu og Vestmannaeyjahrepps og tekur að :ér ailar skyldur hans og skuldbindingar”. sumri. Á næstunni mun und irbúningsnefndin leita til ein staklinga, félaga og félaga- samtaka um þátttöku í há- tíðahöldunum, og er það von hennar og ósk, að brugðist verði vel við' málaleitan hennar, enda eindreginn vilji fyrir hendi um, að vand að sé til alls undirbúnings og sem flestir aðilar leggi þar hönd á plóginn. Heill þér fimmtugum. Kosnin'gar í hina fyrstu 1 æjarstjórn Vestmannaeyja, fóru fram í janúarmánuði 1919, og fyrsti fundur bæj- arstjórnarinnar var haldinn 14. febrúar sama ár. Bæjar- stjórn Vestmannaeyja hefur ákveðið að minnast þessara tímamóta í sögu byggðar- lagsins, og hefur verið unn- ið að undirbúningi þess að undanförnu. Margvíslegar á- stæður lágu til þess, að ekki þótti fært að efna til hátíð- arhalda svo seint á árinu og hefur því verið ákveðið að fresta þeim til næsta sum- ars. Bæjarstjórn mun halda veglegan hátíðarfund hinn 14. febrúar nk., á þeim degi, sem fyrsti bæjarstjórnarfund urinn var haldinn fyrir 50 árum, en á sumri komandi verður efnt til hátíðahalda og sýninga í tilefni afmælis- ins. Eins og fyrr segir, hef- ur nokkurt starf verið unnið að undirbúningi væntanlegra hátíðahalda á komandi h HRMJiNN SVEINSSOM, stud. Jur Mmning Sú fregn, sem okkur barst iiinn 10 .nóvember s.l., að Ármann Sveinsson væri lát- inn, kom sem algert reiðar- slag. Það mun óhætt að segja, að Ármann hafi verið einn þeirra, sem ungir Sjálf stæðismenn hundu hvað mestar vonir við í framtíð- inni. Hann var fæddur hinn 14. april 1946, og því aðeins 22ja ára að aldri er hann lézt. Ármann heitinn var sonur hjónanna Margrétar L. Eggertsdóttur og Sveíns Sveinssonar, múrara, og elzt ur fjögurra barna þeirra. Hann lét alla tíð mikið að sér kveða í félagsmálum, átti siæti í stjórn Stúdenta- félaga Háskóla íslands, sat í stúdcntaráði og var formað- ur Vöku, félags lýðræðis- sinnaðra stúdenta, er hann lézt. Hann skipaði sér ung- ur að árum í raðir Sjálf- stæðismanna, átti sæti í stjórn Heimdallar 1966-1967. Hann var framkvæmdastjóri Sambands ungra Sjálfstæðis manna um skeið og gegndi auk þess fjölmörgum trúnað arstörfum fyrir S.U.S. og Heimdall. Áhugi Ármanns á þjóðfélagsmálum var mik- i!l og ekki á einu sviði frem- ur en öðrum. Eftir hann liggur nú mjög ítarleg grein argerð um kjördæmamál landsins, sem liann samdi fyrir S.U.S. á sl. sumri og bcr höfundinum glöggt vitni um vandleg vinnubrögð. Hann birti am það tvær greinar í Morgunblaðinu nú í haust og vöktu þær verð- skuldaða athygli. Ármann var sókndjarfur og bjó yfir miklum baráttuvilja, jafn- framt því, sem allar gerðir hans einkenndust af Iieiðar- leika og hreinni framkomu. Það verður erfitt að fylla það skarð, sem myndaðist við andlát hans. Konu Ár- manns, Helgu Kjaran og syni beirra, Birgi, vottum við okkar dýpstu samúð, um leið og við minnumst góðs drengs, hvers minning aldrei mun gleymast. Eyverjar, Vestmannaeyjum I OMDVEGI - Það var í sannleika sagt á nægjulegt að skoða sýning- una, sem Sig’jrfinnur Sigur- finnsson hélt í Akóges núna dagana frá 16. til 20. þessa mánaðar. Þarna voru til sýn is, 29 myndir eftir listamann inn, 9 olíumálverk, 5 grafík- myndir, 10 kolteikningar og | 5 myndir unnar með olíu- krít og þekjulitum. Voru 26 myndanna til sölu og seld- ust 12 þeirra, sein má telja afbragðsgott hjá nýliða í myndlistinni. Aðsókn var mjög góð að sýningu þessari, þótt hún stæði stutt yfir, og munu um 909 gestir hafa sótí liana. Mestan áhuga og aðdáun manna munu kolteikningarn ar liafa vakið, í það minnsta þess, sem þetta ritar, enda seldust flestar þeirra. Finn- i ur liefur greinilega náð góð- j um tökum á þessari grein j myndlistarinnar, og er mér | sérlega minnisstæð myndin j „Bátur minn einn”, sem ég I tel beztu mynd sýningarinn- | ar. Ef lýsa ætti verkunum J með einu orði, yrði það | VANDVIRKNI, því að auð- séð er, að Finnur hefur lagt mikla vinnu í myndirnar og ekki kastað höndunum að viðfangsefninu. Grafíkin vakti einnig verðskuldaða at hygli sýningargesta, enda um skemmtilegt tjáningar- form að ræða. Aftur á móti virðist mér liann ekki hafa náð fullu valdi á olíulitun- um ennþá og nokkur við- vaningsblær yfir sumum þeirra olíumálverka, sem þarna voru sýnd. En það er heldur ekki langt síðan Finnur byrjaði á olíunni, og eflaust á hann eftir að gera betri hluti með henni, þegar fram líða stundir. Þó hefur hann náð sérstæðum stíl í nokrum þeirra, t.d. „Gamlir bátar” og „Horft af Naust- hamri”. Og þótt undirritaður hafi ekki séð marga tugi mynd- listarsýninga, er þessi ein meðal þeirra skemmtilegustu, hvað lieildarsvipinn snertir. í það minnsta er ég strax farinn að hlakka til næstu sýningar. S. J. |Frd hjördcemisrdði Aðalfundur Kjördæmis- ráðs Sjálfstæðisflokksins í Suðurlandskjördæmi, var haldinn að Selfossi 3. nóv. sl. Fundurinn var mjög vel sott ur og mættir voru fulltrúar úr öllum sýslum kjördæmis- ins. Héðan úr Eyjum sóttu fundinn 11 fulltrúar. Að loknum venjulegum að alfundarstörfum flutti Ing- ólfur Jónsson, ráðherra er- indi um vandamálin í dag og viðhorf Sjálfstæðisflokks- ins til þeirra. Er ráðherra hafði lokið máli sínu tóku margir fundarmanna til máls og urðu fjörugar og gagn- legar umræður. í stjórn kjördæmisráðs voru kosnir, Lárus Ág. Gíslason, bóndi, Miðhúsum, Framhald á 4. síðu.

x

Fylkir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.