Fylkir - 22.01.1971, Blaðsíða 7
F^’kir
7
Bœiarsljóm i önnum
i
íþróttir
í desembermánuöi sl. lauk
samningsgerð milli ríkisins
annarsvegar og Bandalags
starfmanna ríkis og bæja hins
vegar um kaup og kjör ríkis-
slarfsmanna. Samningurinn
gildir írá 1. júlí 1970 til 31.
des. 1973, og er að því leyti
til athyglisverður, að hann
verkar aftur fyrir sig um
hálfi ár.
Samningur þessi er gerður
vegna ríkisstarfsmanna einna,
cn mun þó verða tekinn til
fyrirmyndar við ákvörðun á
kjörum starfsmanna sveitar-
félaga að öðru leyti en því,
að launauppbætur vegna lið-
ins tíma greiðast ekki til
þeirra. Þessi tilhögun mun
vera óumdeild af aðilum að
þeim starfsm. undanskildum,
sem sérstaka samninga hafa
um annað ,og a. m. k. sumir
helztu ráðamenn Vestmanna-
eyjakaupstaðar hafa fyrir
nokkru lýst sig vera ófúsa
til að mæla með afbrigðum
Eignir
til Sðlll
Einbýlishús við' Hrauntún:
Verð kr. 2.000.000.00. Út-
borgun kr. 600.000.00 • Húsið
er næstum fullgert, ca. 115
fermetrar með 40 fermetra
geymsluplássi í kjallara.
Lítiö einbýlisliús
rið Vcstmannabraut:
Verð kr. 450000.00. Út-
borgun kr. 100.000.00. — Hent
ugt fyrir einhleypan mann
cða ung hjón.
7 licrb. íbúö viö Bakkastíg:
Hæð og ris í forsköluðu
timburhúsi, verð kr. 900.000.00
G licrb. íbúö viö Heiöarveg:
Hæð og ris í tvílyftu stein-
húsi. Verð kr. 1.400.000.00
Útborgun kr. 100 000.00. I
Einbýlishús viö Kirkjuveg:
9 herb. íbúð á þremur hæð-
Verð kr. 1.650.000.00. Útborg
un kr. 600.000.00
JÓN ÓSKARSSON,
HDL.
jögfræðistofa Vestm.braut 31
ViðtaJstími milli kl. 5 og 7
síðdegis. _ Sími 1878.
í þessu efni, eða að bæjar-
stjórn aðhefðist neitt það,
sem gefið gæti fordæmi til
slíks.
Úr sauðarleggnum.
En nú gerist það á fundi
bæjarstjórnar Vestmannaeyja
hinn 5. þ. m. að fyrir liggur
til umræðu og afgreiðslu til-
laga frá bæjarráði þess efnis
að hækkuð verið laun bæjar
| fulltrúa úr kr. 600,- í kr.
1500,- og bæjarráðsmanna úr
kr. 500,- í kr. 1000,- fyrir
hvern fund. í fyrrnefnda til-
fellinu er um að ræða 150%
launahækkun og 100% í hinu
síðara.
Tillaga þessi vakti þegar í
stað verulega athygli í fund-
arsalnum. Ekki vegna þess
að þeim, sem á hlýddu þætti
það skipta öllu máli, hvort
bæjarfulltrúum væru greidd-
ar 600 kr eða 1500 kr. fyrir
fundarsetu. Hitt þótti meira
um vert að fá svarað þeirri
spurningu hvort bæjarstjórn-
armeirihlutinn væri loks, eft-
ir meira en fjögurra ára valda
setu, að sanna afdráttarlaust
án undanbragða virðingu
sína og vináttu við lágt laun-
aða bæjarstarfsmenn og launa
menn yfirleitt, með því að
veita nú slíkt fordæmi til
verulegra kjarabóta þeim til
handa. Kannski máttu sendi-
herrar og saksóknarar fara
að snúa sér til veggjar.
Ekki endasleppt.
En tillagan var svo sem
ekki búin ,og jókst nú spenn-
an í salnum um allan helm-
ing, þegar forseti las fram-
haldið þess efnis, að launa-
hækkanir ráðamanna bæjar-
ins skyldu vei’ka aftur fyrir
sig til 1. júlí s. 1. Þótti nú ein
sýnt, að bæjarstjórn ætlaði
ekki að gera það endasleppl.
Voru menn nú í góðu skapi
og gerðu að gamni sínu. Fór
svo fram um hríð.
Stendur þá upp höfuðóvin-
urinn, friðarspillirinn Guð-
laugur Gíslason, og beinir
peirri spurningu til meiri-
hluta bæjarstjórnar, hvort
ekki beri að líta á seinnipart
tillögunnar sem fyrirheit um
það, að fyrii'hugaðar launa-
bætur annarra stai-fsmanna
yrðu einnig látnar verka aft-
ur fyrir sig til 1. júlí
Ráð undir rifi hverju.
Bomba var fallin. Gleðin
yfir góðu verki að engu orð-
in. Vitrir menn virtu hvern
annan fyrir sér. Bæjarstjóri
varð fyrstur til að átta sig
og lýsti því yfir stuttorður ,að
alls ekki væri gert ráð fyrir
því. Laun annarra starfs-
manna bæjarins munu aðeins
hækka frá áramótum, sagði
hann.
Fyrirspurn Guðlaugs virtist
ennþá valda meirihlutamönn-
urn þó nokkrum heilabrotum,
þótt bæjarstjóri væri búinn
að svara skýrt og skorinort.
Og eftir að hafa stungið sam-
an nefjum um stund, fundu
þeir réttan mótleik. Þeir létu
bi-eyta bókun bæjarróðs þann
ig að í stað 1. júlí komi: frá
byi-jun kjöi-tímabilsins, þ. e.
frá 1. júní s. 1. Síðan var
allt samþykkt með pomp og
prakt.
Þannig verka nú kjarabæt-
ur í-áðamanna Vestmannaeyja
kaupstaðar einum mánuði
lengra aftur í tímann, en rík-
isstarfsmenn geta státað sig
af. Aðrir starfsmenn bæjar-
ins koma þar ekki við sögu.
Er nú þyngri þrautin að
geta sér til um, hvar hús-
bóndavaldinu verður næst
brugðið á leik, öllum almenn-
ingi til gagns og gleði.
Framhald af baksíðu.
launin. Voru það verðlauna
peningar úr gulli, sem á var
grafið nafn handhafa penings
ins, síðan kom íslm. 2. fl.
1970, íslm. 3. fl. 1970 og íslm.
4. fl. 1970, en undir þessu
stóð svo Þór. Eins og fyi-r seg
ir, voru það alls 17 drengir
sem fengu þessa peninga. Þá
fengu þær fjórar stúlkur, sem
skipuðu sveit þá, er setti ís-
landsmet í 4x100 m boðhlaupi
á Íþróttahátíðinni í júlí s. 1.
Fengu þær sömuleiðis gull-
peninga, sexstrenda hangandi
í borða í íslenzku fónalitun-
um. Á þeim stóð nafn, en
siðan íslm. í 4x100 m hlaupi
— Þór. Loks fengu svo, eins
og fyrr segir 2 lyftingamenn
viðurkenningu og voru það
samskonar peningar og
frjálsíþróttastúlkurnar fengu
með textanum: íslm. í lyft-
ingum _ Þór.
Nú tók til máls Gísli Magn-
ússon, formaður HRV og af-
henti verðlaun í Jólamóti ÍBV
Þar sigraði Þór í öllum flokk
um og hlaut félagið að laun-
um þrjár veglegar styttur,
sem félögin Týr og Þór og
ÍBV gáfu. Auk þess fékk hver
stúlka verðlaunapening. Úr-
slit mótsins urðu þessi:
I. fl Týr - Þór - 11 - 13
II. fl Þór - Týr - 14 - 6
III. fl Týr - Þór - 9 - 10
Að vei’ðlaunafhendingu lok
inni var félögum boðið upp á
gos, pönnukökur og súkkulaði
kex, en síðast á dagskránni
var svo sýning kvikmyndar,
sem tekin var 9. sept 1968 á
afmælisdegi Þórs. Myndin er
frá leik OLD BOYS og
YOUNG BOYS, sem þá fór
fram í tilefni 55 ára afmælis
félagsins.
Ág. Karlsson
Löndunarbóma og spil
á Bæjarbryggjuna
í sambandi við endurnýjun
á dekki Bæjarbryggju og aðr
ar nauðsynlegar framkvæmd-
ir við bryggjuna gerði ég,
undirritaður, tillögu á bæjar-
stjórnarfundi, 27. nóv. s. 1.
um, að athugun verði gerð
á uppsetningu á föstu raf-
drifnu löndunai’spili á Bæj-
arbryggju af þeirri gerð, sem
myndin sýnir.
Með fáum orðum vildi ég
nokkru frekar skýra þessa
hugmynd, sem ekki er ný af
nálinni og hefur iðulega bor-
ið á góma meðal sjómanna
hér i Vestmannaeyjum, t. d.
á fundum Skipstjóra- og stýri
mannafélagsins Verðanda fyr
ir fjölmörgum árom og ef til
vill víðar þó ekki sé mér það
kunnugt.
Löndunarbóman er norsk
að gerð frá fyrirtækinu
Munck og getur rafmagns-
spilið híft 1000 kg. með 10
metra hraða á mínútu eða 500
kg. með 20 m hi-aða á mín.
Ef bómam er staðsett á
hentugum stað getur spilið
og allur útbúnaður oi’ðið smá
bátaeigendum til mikils hag-
ræðis við löndun. Bómunni
er unnt að hífa löndunarmál
beint upp úr bát og á bíl eða
kerru ,en smábátarnir hafa
sem kunnugt er, hvorki svo
kraftmikii spil né bómu, að
hægt sé að landa þannig fiski
frá þeim.
Vonandi myndi hér, sem
annarsstaðar, fást góð í-eynsla
af svona krana, og teldi ég,
að þá væri vel til athugunar
að setja þannig löndunarspil
og krana á fleiri bryggjur og
ef til vill stóran krana við að-
al útskipunar og löndunar-
bx-yggjuna í Friðarhöfn. Þann
ig kranar eru mjög víða í
miklum útskipunar- og lönd-
unarhöfnum. Þess má t. d.
geta, að hjá frændum vorum
Færeyingum er ágætur og
stór löndunarkrani við eina
bryggjuna í Þórshöfn.
Guðjón Ármann Eyjólfsson