Fylkir - 21.05.1971, Blaðsíða 1
T$orhátíð
13. tbl.
Að venju halda Eyverjar Vorhátíð um Hvítasunnuna, og|
jverður þar margt til skemmtunar. Barnaskemmtun verður
/í Samkomuhúsmu kl. 3 á Hvítasunnudag og kvöldskemmtunl
'kl. 8.30 um kvöldið. — Dansleikir hefjast á mi'ðnætti í báð-l
Jum húsum og standa til kl. fjögur.
Tvær hljómsveitir úr Reykjavík koma fram á hátíðinni,
(auk nokkurra, þekktra skemmtikrafta. Ræðumaður á kvöld-'
^skemmtuninni verður ióhann Ilafstein forsætisráðherra.
Vorhátíðin verður nánar auglýst næstu daga.
n
Reynslai dl vinstri stjórn
Nú þegar gengið er til
kosninga, er eðlilegt að kjós
endur staldri við og íhugi
hvaða stefnu þeir vilja marka
í þjóðmálum með atkvæði
sinu. Þeir, sem muna vinstn
stjórnina hafa nokkuð til sam
anburðar við það sem gerst
hefur síðasta áratuginn.
Vinstri stjórnin var á sínum
tíma stofnuð með meira þing
fylgi á bak við sig, en nokk-
ur ríkisstjórn önnur, og hefði
því mátt ætla að um sterka
og langlífa stjórn yrði að
ræða.
En allt fór á annan veg
eins og kunnugt er.
Til þess að reyna að halda
dýrtíðinni niðri greip vinstri
stjórnin til þess ráðs, að setj
ast á laun hinna lægst laun-
uðu Dagsbrúnarverkamanna,
jafnt og annarra og brengluðu
kjör sjómanna með hlutfalls-
lega lægra skiptaverði, en
nokkurt dæmi er um bæði
fyrr og síðar.
Þrátt fyrir þessar harkalegu
aðgerðir tókst vinstri stjórn
inni verr en nokkurri ann-
arri ríkisstjórn að halda verð
bólgunni í skefjum. Og þeg-
ar svo var komið að kaupgjald
átti að hækka um 17 vísitölu-
stig um haustið 1958, fór rík
isítjórnin fram á við Alþýðu
sambandið að það frestaði
eða gæfi eftir töku þessara
vísitölustiga.
Þessu neitaði Alþýðusam-
bandið og leiddi það til þess,
eins og kunnugt er, að vinstn
stjórnin sagði af sér, með
hinni frægu yfirlýsingu þá-
verandi forsætisráðherra, að
stjórn hans sæi engin ráð til
lavsnar vandanum fyrst laun
þegasamtökin vildu ekki taka
á sig þá kaupskerðingu, sem
fram á var farið.
Þetta eru staðreyndir, sem
allir þekkja, sem nokkuð
muna aftur í tímann eða
kynnt sér hafa málin eins og
þau gengu fyrir sig í tíð
vinstri stjórnarinnar og þarf
engan í sjálfu sér að undra
þó að þannig hafi farið, pví
allir vita um þá hagsmuna-
streitu og það ósamkomulag,
sam ríkir innan vinstri flokk
anna og aldrei hefur verið
meira áberandi en nú, er þeir
ganga til kosninga í hvorki
meira né minna en fimm and
stæðum fylkingum.
Vinsri stjórn bæjarmálanna.
Ekki er eðlilegt, að þeir
kjósendur, sem nú kjósa í
fyrsta eða annað sinn, þekki
hörmungarsögu þeirra einu
vinstri ríkisstjórnar, sem hér
hefur setið að völdum.
Hinsvegar ættu þeir að í-
huga sögu vinstri stjórnar
| bæjarmálanna, sem hér var
| stofnað til eftir kosningarnar
| 1960.
Vitað er, að útsvör voru
j lægri hér i Eyjum fram að
| þeim tíma, meðan að Sjálf-
j stæðisflokkurinn réði, en í
nokkrum öðrum kaupstöðum
á landinu, og var þetta ljóst
orðið um tand allt og iðulega
rætt á fundum Sambands ís-
lenzkra sveitarfélaga.
Svo er nú komið eftir að-
eins rúmlega eitt kjörtímabil
vinstri stjórnar á bæjarmál-
unum, að Vestmannaeyingar
munu í ár verða með
hærri útsvör en nokkur
annar kaupstaður á landinu.
Dæminu er þannig alveg snú-
ið við til óhagræðis fyrir bæj
arbúa.
Verið að eyðileggja
lánstraust bæjarins.
Áður en vinstri flokkarnir
tóku hér við, eftir kosningarn
ar vorið 1966, var Vestmanna
eyjakaupstaður talinn einn
fjárhagslega sterkasti kaup-
staður landsins, sem stóð
við skuldbindingar sínar gagn
vart einstaklingum og lána-
stofnunum, bæði utanbæjar
og innan.
Á þessu hefur því miður
einnig orðið breyting.
Greiðslum er að vísu enn
nokkurn veginn haldið í horf j
inu innanbæjar. En allt aðra
sögu er að segja um skuldbind
ingar bæjarsjóðs út á við.
Þar virðast vera að safnast
fyrir hættulegar óreiðuskuld-
ii'.
j Vanskil frá fyrra ári nema
{ á einu láni 5.3 millj. króna.
| Á rniðju ári 1969 tók bæjar
i sjóður 8 millj. króna lán til
J aðeins tveggja ára hjá At-
j vinnujöfnunarsjóði. Fulltrúar
| Sjálfstæðisflokksins í bæjar-
j stjórn vöruðu við þessari lán-
I töku, þar sem ráðamenn bæj
j arins gátu enga grein gert bæj
arstjórn fyrir hvernig lánið
ætti að greiðast upp á svo
skömmum tíma og það auk
þess fengið á fölskum for-
scndurn, þar sem það var feng
ið til greiðslu kostnaðar við
lagningu innanbæjarkerfis
vatnsveitunnar, sem búið var
að leggja útsvör á bæjarbúa
fyrir, en hinsvegar fyrirfram
vitað að það yrði að mestu
leyti notað til greiðslu óreiðu
skulda, sem þá höfðu safnast
fyrir. Reynslan hefur sýnt, að
þessi aðvörun fulltrúa Sjálf-
Frh. á síðu 2.
Skólaslit Stýrimannaskólans
Stýrimannaskólanum hér |
var slitið s .1. laugarlag, 15. J
maí og útskrifuðust 14 nem- |
endur með fiskimannapróf 2. j
stigs ,sem veitir skipstjórnar j
rétt.intíi á islenzk fiskiskip |
af hvaða stærð sem er og j
hvar sam er. Lauk þar með I
|
7. starfsari skolans.
Hæstu einkunn á prófinu
hlaut Atli Einarsson, Vest-
mannaeyjum 170 1/3 stig eða
7,41, sem er ágætiseinkunn,
en hæst er gefið 8. Annar
var Sigurpáll Einarsson
Grindavík með 169 1/3 stig
eða 7,36, einnig ágætisein-
kunn. Þriðji var Gísli Krist-
jánsson Vestm. með 7,12, sem
er mjög góð 1. einkunn, og
þá Guðmundur Vestmann
Ottósson, Neskaupstað, með
7,00.
Hæstu einkunn í siglinga-
fræði hlaut Sigurpáll Einars-
son 45 1/3 stig af 48 mögu-
legum.
Nemendur og skólastjóri.
Við skólaslitin var hæstu
ncmendum veitt verðlaun fyr
ir góðan námsárangur og á-
stundun í námi.
Einar Sigurðsson, útgerðar-
maður, og frystihússeigandi
hér hefur frá því árið 1966
gefið forkunnarfagran vegg-
skjöld sem verðlaun fyrir
hæstu einkunn og er fyrir-
myndin alltaf sitthver mynd-
in héðan frá sjávarsíðunni í
Vestmannaeyjum. Afhenti
Friðfinnur Finnsson skjöid-
inn, en auk þess fékk Atli
frá skólanum bókaverðlaun
og síðar mun hann fá áletr-
aða bókapressu Sjóvá og svo
á Sjómanndaginn hin glæsi-
legu verðlaun skipstjóra- og
stýrimannafélagsins Verðanda
_ VERÐANDA _ úrið. Sigur
páll Einarsson fékk vandaða
landabréfabók og fyrir hæstu
einkunn í siglingafræði bók-
ina Hafísinn.
Verðlaun úr verðlaunasjóði
frú Ástu Sigurðardóttur og
Friðfinns Finnssonar fyrir sér
staka reglusemi og ástundun
Framhald á 2. síðu.