Fylkir - 03.09.1977, Blaðsíða 3
FYLKIR
Aðallundui:
Frh. af 4. síðu
Rekstur skipsins hefur þetta
ár farið nokkuð á annnan veg
en stjórn félagsins gerði ráð
fyrir í ársbyrjun.
Kemur þar helst til — sú
mikla töf, er skipið varð fyrir
í sambandi vð ábyrgðarskoðun
þess — að 6 mánaða tímabilinu
loknu frá afhendingu þess.
Stjórnin gerði í upphafi ráð
fyrir að skipið þyrfti aðeins
að vera í slipp í Reykjavík í
þessu sambandi um eina viku
eða í hæsta lagi tíu daga. En
allt fór það á annan veg, eins
og kunnugt er, þar sem skipið
varð úr rekstri í tvo og hálfan
mánuð. Tel ég ekki ástæðu til
að rekja ástæðuna fyrir því,
þar sem hún mun flestum svo
kunn og hefur verið rædd í
fjölmiðlum bæði hér í Eyjum
og ekki síður í Reykjavíkur-
blöðunum og öðrum fjölmiðl-
um þar. — En eins og kunn-
ugt er, var öxull skipsins dæmd
ur ónothæfur af Norsk Veri-
tas, sem er flokkunarfélag
skipsinss. En að dómi sér-
fróðra aðila stöfuðu þær
skemmdir, sem fram komu á
byrðingi skipsins — aftan til
— út frá því að öxull skipsins
reyndist við athugun boginn á
tveimur stöðum.
Fjárhagstjón félagsins sök-
um viðgerðarkostnaðar og
stöðvunar á rekstri skipsins í
svo langan tíma varð mikið. —
Beinn kostnaður vegna endur-
bóta og lagfæringa á skipinu
varð um 40 millj. króna. Þar
af telur stjórn félagsins að
seljandi skipsins, Sterkoder
mek. verksted í Kristjansund,
eigi að greiða rúmar 32 millj.
Voru reikningar fyrir þessari
upphæð sendir strax að lok
inni viðgerð út til Noregs með
kröfu um að þeir yrðu þá þeg-
ar greiddir. En þrátt fyir ítrek-
anir fékkst greiðsla ekki. Fóru
þá um miðjan júlí sl. tveir af
stjórnarmeðlimum félagsins,
formaður ásamt Garðari Sig-
urðssyni til Osló til að fylgja
kröfum félagsins eftir eða að
reyna að ná samkomulagi um
endurgreiðslu, og var í förmeð
þeim Árni Grétar Finnsson,
hæstaréttarlögmaður.
En í stuttu máli sag, náðist
ekkert samkomulag. — Norð-
mennirnir virðast ákveðnir í
að láta málið fara fyrir norsk-
an gerðardóm, eins og heimild
er fyrir í 16. grein byggingar-
samningss.
Stjórnin hefur falið Árna
Grétari, hæstaréttarlögmanni,
að skrifa lögmönnum Sterko-
der, þar sem enn er boðið upp
á samninga og jafnframt til-
kynnt, að synji þeir slíku, verði
eftir 1. september næstkom-
andi gerðar ráðstafanir til þess
að þeir sérfræðinga, sem við
teljum okkur í hag að kveðja
til, þar með talinn umboðs-
maður Norsk Veritas, verði
kvaddir fyrir sjórétt til þess
að gefa álit sitt um, hvort öx-
ull skipsins hafi ekki verið
gallaður, þegar hann var sett-
ur í skipið. Einnig að þeir sem
unnu við að setja öxulinn nið-
ur í skipið í Kristjansund, svo
og umboðsmaður Veritas þar,
áður en skipið var afhent verði
einnig kallaðir fyrir sjórétt í
Kristjansund til þess að svara
spurningum lögfræðings okkar
og þess íslenska sérfræðings,
sem við munum láta honum í
té til aðstoðar.
Ég hef sagt lögfræðingi okk-
ar, að ef út úr þessum réttar-
höldum komi það, að veruleg-
ar líkur séu fyrir að öxull
skipsins hafi verið gallaður, er
hann var settur í, — muni það
verða mín tillaga innan stjórn-
ar Herjólfs hf., að hið norska
fyrirtæki, Sterkoder, verði kært
fyrir sakadómi í Kristjansund
fyrir svik. Því ef okkur tækist
að sanna með yfirheyrslum —
sérstaklega yfir þeim norsku
aðilum, sem unnu að niður-
setningu öxulsins — sem auð-
vitað verða látnir vinna eið
að framburði sínum — að öx-
ullinn hafi verið gallaður, þeg-
ar hann var settur niður, mun
aðstaða Herjólfs hf. fyrir gerð-
ardómi verða mun sterkari en
ella.
Ég harma það vissulega, ef
slíkri hörku þarf að beita, en
ég tel, að um ekkert annað sé
að ræða.
★
Rekstursstöðvun Herjólfs og
sá mikli kostnaður, er varð
við lagfæringu skipsins hefur
að sjálfsögðu valdið félaginu
miklum fjárhagsörðugleikum.
Fram úr þeim hefur þó verið
komist nokkurnveginn skamm-
laust. Fengið var 10 millj. kr.
bráðabirgðalán hjá Byggða-
sjóði, út á væntanlegan rekst-
ursstyrk ríkissjóðs á þessu ári.
Ríkissjóður veitti einnig bráða
birgðalán að upphæð 10 millj.
kr. og nú standa yfir viðræð-
ur um 30 millj. kr. aukningu
á hlutafé ríkisins. Þá lánaði
Útvegsbankinn hér einnignokk
urt fé til bráðabirgða og enn
hfur ekki endanlega verið
gert upp við þrjá af þeim
aðilum, sem stóðu að viðgerð
skipsins. En ef af hlutafjár-
aukningu verður að ræða, mun
félagið komast vandræðalítið
fram úr því áfalli, sem það
varð fyrir við stöðvun skips-
ins í vetur.
★
Rekstur skipsins hefur geng-
ið allsæmilega síðan það hóf
ferðir aftur um 20. maí. Hefur
það frá þeim tíma og fram til
22. þessa mánaðar flutt sam-
tals 19.458 farþega — 3.592 bif-
reiðar og rúmlega 2 þús. tonn
af vörum.
Ég held, að þessi miklu not
af skipinu sanni alveg greini-
lega, að full þörf og eðlileg
krafa var að koma á daglegum
ferðum milli Vestmannaeyja og
fastalandsins.
Og vonandi eru þeir erfið-
leikar, sem við var að etja í
vetur, yfirstignir — enda var
ekki annað vitanlegt en að allt
sé komið í lag um borð í skip-
inu — þannig að vonandi get-
ur skipið þjónað Vestmanna-
eyingum í framtíðinni án nokk
urra óeðlilegra tafa.
★
Stjórn félagsins var öll endur-
kjörin, en hana skipa:
Guðlaugur Gíslason.
Formaður félagsstjórnar er
kosinn sérstaklega af aðalfundi
Og var Guðlaugur Gíslason, al-
þingismaður, endurkosinn for-
maður stjórnarinnar.
Garðar Sigurðsson.
Magnús H. Magnússon.
Sigurgeir Kristjánsson.
Stefán Runólfsson.
Varastjórn:
Heiðmundur Sigurmundsson.
Jóhann Friðfinnsson.
Sigurður Gunnarsson.
Endurskoðendur:
Arnar Sigurmundsson.
Jóhann P. Andersen.
Varaendursko ðandi:
Eyjólfur Martinsson.
TxTxX)CT}(T)cT5CX>(T>(T>cT)'T>cT!>cT3cT)(T)(T>T>T)T)T>cT!>T>ðoðooCðoðooooooocTSooðoooobooðooGoooCðoðocTSðC
88 88
æ © *
88 rr- x . st
■■ *
IRUNABÓTArÉUfl ÍSLANDSI
gagnkvæmt trygglngarfélag —
| Vér bjóðum yður allar tryggingar á einum
stað.
88
88
æ
æ
08
æ
æ
æ
æ
88
88
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
Komið í hið nýja og vistlega húsnæði vort
og reynið viðskiptin.
ALLAR TRYGGINGAR
Á
EINUM STAÐ
'Oernclið heimiliyfyr....
BRUNABÓTAFÉLAG ÍSLANDS
Skólavegi 6
Vestmannaeyjaumboð —
Sími 1926
Opið kl. 13.00
laugardaga.
17.00 alla virka daga nema
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
w
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
88
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
«888 * 888888888888888888888888888888888888888888888888!$ 88888888868888888888388888888888
LANOAKIRKJA
Messa næstk sunnudag
kl. 11. Séra Ólafur Oddur
Jónsson prédikar. Kirkju-
kór Keflavíkurkirkju syng-
ur.
Sóknarprestur.
Besti knattspyrnumaðurinn
1977
Tómas Pálsson með farandbik-
ar ÍBV. — Fylkir óskar Tómasi
innilega til hamingju með verð-
skuldað sæmdarheiti. —
Ljósm.: Guðm. Sigfússon.