Fylkir - 22.10.1977, Page 1
Steinn á Múla 85 ára
29. árg. Vestmannaeyjum 22. okt. 1977 16. tbl.
Fjárhagur bæjarins
Fyrir bæjarstjórnarfundinum
í fyrradag lágu niðurstöður á
greiðslustöðu kaupstaðarins
fyrstu 8 mán. ársins. Er þar
að fi'.ma ýmsar gagnlegar upp-
lýsingar fyrir bæjarbúa.
Samkvæmt fjárhagsáætlun er
gerð var á fyrsta ársfjórðungi
er greinilegt, að sú áætlun fær
hvergi staðist, heldur ekki á.
Athugasemd
Vegna höfundalausra skrifa
Brautarinnar um laun tyrir
setur á bæjarstjórnarfundum
vildi ég gera smá athugasemd.
Allir bæjarfulltrúar, að undan-
teknum Jóhannesi Kristinssyni
og Sigurbjörgu Axelsdóttur eru
á launum hjá ríki, bæ eða op-
inberum, aðilum.
Hvað vi'kemur Sigurbjörgu
verður oft á tíðum að fá
mánneskju í hennar starf vegna
ýmissa anna sem bæjarfulltrúa.
Ekki borgar ríki og bær þær
töpuðu vínnusiundir eins og
annarra bæjarfulltrúa.
Með vinsemd.
Axel Ó Lárusson.
ætlun, sem endurskoðuð var
um miðjan september.
Það sem kannski vekur mesta
athygli, er að yfirstjórn bæj-
armála virðist ætla að hækka
um 50% á árinu umfram áætlun
var sá liður kominn upp í 40
millj. kr. eftir 8 mán., er það sú
tala, sem áætluð var að nægja
mundi út árið. f umræðum kom
fram að áætluð tala fyrir yfir-
vir .nu ársi'.as var uppétin á
miðju ári. Svona ætlar stjórn-
og skipulagsleysið að komast
í algleyming, þegar aðstaðan er
komin í besta horf, með til.
komu Ráðhússins. Er þá full-
yrðingra um bætta stjórn og
skipulag er því átti að fylgja
rokin út í veður og vind.
Svo virðist ætla að fara að
eftir því sem toppum og titl-
um fjölgar verður fjárhags-
staðan bágari og minna fjár.
magn til framkvæmda, en nolck
ursstaðar aanarsstaðar þekkist
nú á landi hér.
Á næstunni verður málum
þessum gerð betri skil í Fylki,
en af nógu er að taka. Alvar-
legast er, að stjórnleysið gref-
ur undaa traust bæjarfélags-
ins, sem langan tíma tekur að
vinna upp aftur og hefst ekki
meðan ekkert fær haggað þeirri
stjórn sem nú ræður.
J.F.
Hínn vinsæli heiöursmað-
ur Steinn á Múla er 85 ára
á morgun. Steinn Ingvars
son er Rangæingur að ætt
og uppruna frá Minna-
Hofi, einn af stórum
bræðrahóp, sem allir hafa
orðið hinir mætustu
menn. Steinn fluttist til
Eyja ungur að árum eins
og þá var títt þegar upp-
gangurinn var mestur við
útveginn hér, en möguleikar takmarkaðir í sveit-
inni. Gæfa Eyjanna hefur verið hve mikið af úrvals-
fólki frá hinum sunnlensku byggðum hafa ílenst hér
og markað svipmótið.
Steinn vann við hverskonar störf til lands og
sjávar og var aUsstaðar jafn eftirsóttur fyrir dugn-
að og áreiðanleik.
Hann var um árabil ráðsmaður Sjúkrahússins
hér og framfærslufulltrúi, auk ýmissa annarra op-
inberra starfa. Voru þau störf Steins eins og önnur,
unnin af mikilli trúmennsku og hógværð, sem jafn-
an hafa einkennt framkomu hans, enda maður-
inn með eindæmum fágaður í framgöngu, þótt
skólagangan hafi ekki verið fyrir að fara.
Steinn hefur verið starfsmaður Samkomuhúss-
ins frá upphafi, og munu kynni bæjarbúa, yngri
sem eldri af honum á þeim vettvangi öll vera á
einn veg, sem ekki verður á betra kosið.
Síðustu árin hefur Steinn m.a. séð um dreifingu
FYLKIS, og er það lang útbreiddasta blað hér
með tilliti til þess, að vera selt, en önnur blöð hafa
gefist upp á þessu rekstrarformi. Steinn á gott að
samlagast ungum sem eldri og eru blaðasöluböm
FYLKIS glöggt dæmi um það.
Steinn er gæfumaður í einkalífi sínu. Frú Por-
gerður Vilhjálmsdóttir frá Múla hefur staðið vð
hlið hans í meira en 50 ár. Eiga þau 4 dætur, sem
reynst hafa hinir nýtustu borgarar. Á þessum
merku tímamótum fjölskyldunnar munu bæjarbú-
ar taka undir árnaðaróskir og þakkir til Steins
Ingvarssonar. Jóh. Friðf.
Taugaveiklun
Eitthvað eru þeir orðnir taugaveiklaðir í
Brautinni. Ætla þeir þar að sýna fram á
hve óheyrileg laun bæjarfulltrúar hafa. Taka
þeir til 3 s,ðustu bæjarstjórnarfundi sem
dæmi, en þeir voru all stuttir eins og getið
var. Varaforseti bæjarstjórnar, Reynir Guð-
steibsson, setti alla þá fundi og sleit þeim
einnig. Sá fyrsti var vegna uppsagnar EHE,
Aðeins það eina mál á dagskrá. Næsti var að
sámþykkja átti samningsdrög, sem við felld-
um. Eg ætlaði að ýja að launamismuni starfs
manna. Magnús Magnússon sagði, að það
væri ekki á dagskrá, svo ekki varð fundur-
inn lengri í það sinn. Þriðji fundurinn var
haldinn til að samþykkja samningana. Ekk-
ert annað mál á dagskrá.
Flestir bæjarstjórnarfundir eru frá 6 til
10 tíma, svo reikningsiistin er góð hjá Braut-
inni.
Gúflbar Zöega, löggiltur endurskoðandi,
upplýsti m'g, þegar athuguð voru nefndar.
laun bæjarstjórnar, að hans aðal starf í
gegnum árin hafi verið að sjá um að starfs-
fólkið notaði ekki tékkhefti í eigin þágu og
það hafi tekist. Það kostar okkur Utlar 5
millj. á ári, svo allir mega vel við una.
NefndaMaun bæjarstjóra og bæjarfulltrúa
frá janúar til júní:
1. Páll Zophoníasson 254.200
2. Sigurður Jónsson 165.200
3. Sigurgeir Kristjánsson 164.900
4. Þórarinn Magnússon 154.800
5. Magnús Magnússon 142.200
6. Jóhannes Kristinsson 81.700
7. Einar H. Eiríksson 80.600
8. Reynir Guðsteinsson 78.300
9. Jóhann Friðfinnsson 65.000
10. Sigurbjörg Axelsdóttir 63.800
ATH.: R.G. fær greitt í september 1977 kr.
31.200 fyrir nefndarstörf ijölbrautarskóla.
Nefndarstörf eru greidd tvisvar á ári í
júní og des., að undanteknum launum fyr-
ir fjölbrautarskóla er greidd voru í sept ’77.
Nefndarlaun fyrir Sjúkrahús eru ekki með-
talin, R.G. og J.F. mundu hafa um 20 þús.
hvor í laun. c *
G. H. T. SITUR SEM FASTAST
Fyrirspur’n var borin upp á
bæjarstjörnarfundinum í vik-
unni, hvað liði fækkun á topp-
um Ráðhússins, en eins og bæj
arbúa rekur mi'nni til lét Sig-
urgeir bóka eftir sér í apríl,
við ráðningu J.P.A., að G.H.T.
færi í sumar, þessu andmælti
Mm og ætlar hans vilji að
verða ofaná í meirihlutanum að
vanda. ,
Aðspurður um fækkun og
hvort G.H.T. væri á förum,
svaraði bæjarstjóri, að sem
betur fer hefði ekki borist upp
sögn frá G.H.T.
Þá er ennþá komin staðfest-
ing á því ofurkappi sem kratar
lögðu á það að Páll yrði ráð.
inn bæjarstjóri svo öruggt væri
um völd þeirra Magnúsar og
Georgs áfram. Sem sagt allt
skal verða óbreytt og engu
um þokað, en bæjarbúar borga.