Fylkir - 22.10.1977, Blaðsíða 4
FYTJCIR
Aflabrögð: Það eru alveg hrein-
ar línur, þa<5 er alveg dautt í
hotnvörpuna, ekki titt að fá.
Þeir eru líka fáir bátarnir að.
Líklega aðeins 7 — 8 bátar.
Spærlingsbátunum fer fækk.
andi, eru að fara yfir í síldina
sumir hverjir. Pó eru nokkrir
að og fengið kropp við og við.
Pessir lönduðu í vikur. ii: ÁIs-
ey 78 tonn, Heymaey , Emma
27, Þorbjörn II 8, Draupnir 63,
Bergur 115.
Togararnir: Klakkur var inni
á mánudag með 118 ton'.i, mest
þorskur og ufsi. Vestmannaey
var líka inni í vikunni með 110
tonn, þar var aflin'.i að megin-
hluta karfi. Sindri var að í
gærmorgun með um 60 tonn.
Síldin: Það virðist vera að lifna
yfir síldinni. f gær lö'.rduðu
þessir reknetabátar, Jóhannes
Gunnar um 300 tunnum, Árni
í Görðum 40 og Dala-Rafn 150.
Gu'nnar Jónsson, sem er með
nót var með 100 tonn og er sá
bátur þá búinn að fylla kvót.
ann, og er hann annar bátur í
'.lótabátaflotanum sem það ger-
ir.
Sfldarsöltunin: Þrjár stöðvar
eru byrjaðar söltun, Fiskiðjan,
Hraðfrystistöði'.i og ísfélagið
Fiskiðjan hefur þegar saltað
1500 tunnur og Hraðfrystistöð-
in 800. fsfélagið hóf svo söltun
í gær.
Línan: Það er að verða „vakn-
ing” á línunni. Elliðaey hefur
farið 8 eða 9 róðra og fengið
43 tonn. Besti róðurinn komst
upp í 8 ton'i, sem er býsna
gott. Þá er nýbyrjaður Sif RE,
bátur á vegum Sigga Þórðar.
Sif hefur komist upp í 9 tonn
í róðri, en er búin að fá 15
í 3 róðrum. Þá var Öðlingur
í útdrætti í fyrradag og var
með um 5 tonn.
Nýr bátur í bæinn: Richard
Sighvatsson, Rikki í Ási, hefur
nýlega fest kaup á m.b. Sæ-
fara frá Akranesi. Er hér um
að ræða 130 lesta ctálskip, er
R’chard hyggst gera út á al-
hliða veiðar og er nú að búa
bátin'.-i út á síldveiðar í nót.
Sigurður RE: Um síðustu helei
kom hingað aflaskipið Sigurð-
ur RE, með hvorki meira en
1361 tonn af loðnu. sem bað
að sjálfsögðu landaði í FESinu.
Er þetta mikil og góð búbót
fyrir bæjarfélagið, en lakara
var heldur til þess að vita, að
skipið varð að bíða 5 klst. efiir
því að komast inn í höfni.ia
vegna þess að það hreinlega
flaut ekki inn.
Óskar Gíslason: Sú gamla afla
kló, Óskar Gíslason, hefur ekki
setið auðum höndum, þó að
nauðsynjavörubúðin sem hann
veitir forstöðu sé lokað vegna
verkfalls. Hann hefur þessa
dagana verið að róa til fiskjar
á trillunni sinni, einn á báti,
og fengið gott. Fékk til að
mynda 330 kg. í fyrradag. Gott
hjá ríkisstjóranum.
Um afla togaranna:
Á dögunum rakst ég á skýrslu
um afla og úthaldstíma íslensku
togaranna frá áramótum. Sjá
má þar að ekki sitja allir við
sama trogið. Aflahæsti togarinn
er Guðbjörg ÍS 46, með skipta-
verðmæti á úthaldsdag 1120
þús. kr. og meðal afla á úthalds
dag 14,8 tonn. Aftur á móti er
Bjartur NK 121 með hæst með-
alskiptaverð, kr. 79,40 pr. kg.
Það sem hér er sagt, þá er
miðað við að skip er hafa 200
úthaldsdaga eða meira.
Um Eyjatogarana er það að
segja, að afli þeirra er nokkru
min.ii en meðalafli alls togara-
flotans. Klakkur er með 8 tonna
meðalafla á úthaldsdag, Sindri
7,3 tonn og Vestmannaey 8,6
tonn. Meðalafli alls togaraflot-
a'.is á úthaldsdag er hinsvegar
10,1 lest. Ef við tökum meðal-
skiptaverð á kg., þá er lands-
meðaltalið 70,30 kr. kg., en með-
al verð Eyjatogaranna er: Klakk
ur kr. 71,10, Sindri kr. 88.10, og
Vestmannaey kr. 68.10.
f samba'.idi við þennan sam.
anburð er rétt að geta þess að
Klakkur og Sindri hafa mun
færri úthaldsdaga heldur en
reiknað er út frá, svo sem fyrr
er sagt. Klakkur með 128 út-
haldsdaga, en Sindri með að-
eins 76. Einnig verður að hafa
þetta í huga þegar skiptaverðið
er skoðað.
Loðnan: Eg náði í Loðnunefnd
á miðvikudag eftir mikið streð.
Þar var að fá þær fxéttir að
Eyjabátunum hefði gengið al-
deilis prýðilega. Gullberg orðið
næst hæsta skipið með 8896
tonn. Heildaraflinn orðinn 186
þús. tonn, en var alla sumar.
og haustvertíðina í fyrra um
110 þús. tonn. Var létt í Andrési
í Loðnunefnd hljóðið og sagði
að mikið gæti enn borist að
landi, ef veður og ís hamlaði
ekki veiðum. Annars er afli
Eyjabátanna sem hér segir:
Kap 7818 tonn
ísleifur 5278 tonn
Gullberg 8896 tonn
Huginn 6400 tonn
Bj. Gutkn.
88
88
88
88
88
88
88
88
88
88
88
88
88
88
88
88
88
88
88
88
88
88
88
88
88
88
88
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
Árshátíðin
Árshátíð Sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum
verður haldin í Samkomuhúsinu laugard. 22. okt.
og hefst með borðhaldi kl. 7 e.h. Létt tónlist verð-
ur leikin á meðan á borðhaldi stendur.
Hátíðin sett:
1. Ávörp þingmanna kjördæmisins: Guðlaugur
Gíslason, Ingólfur Jónsson, Steinþór Gests-
son
2. Tvísöngur: Sigurður Björnsson og Sieglende
Kahmann. Undirleikari Carl Billich.
3. Gamanvísur: Sigurbjörg Axelsdóttir.
4. Ómar Ragnarsson
5. Tískusýning.
6. Söngur.
7. Happdrætti.
Að því loknu heldur Samkomuhúsið dans-
leik þar sem EYMENN leika og syngja.
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
æ
iyti txj 1J[) ycj yo yu yo yo yei yo yo yriyoyr» <y> c^> qn yo yo yo yöyn cvj yo CV) nr) <Y)no nr) CV) (V) no no (V)nr)m(V)(V) (V? CV) rv)
Okkar d milli
Fyrir nokkru rakst ég á heljarmikinn
doðrant, mikið á annað hundrað blaðsíður.
Gat þar að líta drög að framkvæmdaáætlun
Vestmannaeyjakaupstaður fyrir næstu 10 ár-
in að ég held. Sagt er að plagg þetta sé unn-
ið af Andra nokkrum ísakssyni, sem sé sér-
fræðingur í svona áætlanasnakki, og ekki
aldeilis „billegur á prísinn”. Ku taka svona
um 3 þús. kr. um tímann — takk.
Nú veit ég ekki hve maður þessi er af-
kastamikill, og þar af Ieiðir að vont er að
geta sér til um hve langan tíma verkið tók.
Varla hefur þó þetta tekið meira en 300 klst.
L'ggur því fyrir að áætla að doðranturinn
kosti bæjarsjóð ekki undir 1 millj. kr.
Sé þessi ágiskun rétt, er vægt til orða tek-
ið, þótt sagt sé að þarna fáist lítið fyrir aur-
inn. Doðranturinn er að mestum hluta um
hvað sé ómalbikað af götum, í hvaða röð
þær skulu malbikaðar, þarna sé barnaleik-
völlur og hvað sé æskilegt að gera hér og
svo framvegis.
Mér kom það dálítlð á óvart að það þyrfti
að fá mann „að sunnan” til þess að setja á
blað hvaða götur væru hér ómalbikaðar. Ég
hélt endilega að hægt og nægt hefði að skrifa
þetta öðrumegin á umslag. Þetta er nú ekki
stórkostlegra en það, hérna hjá okkur. Nú
um röðun og hraða framkvæmdanna segir
ekki buddan mest mn það?
Annars er það merkileg árátta að þurfa
alltaf að sækja einhvern „suður” ef koma
á handarviki í verk. Ætli þetta sé einhver
minnimáttarkennd eða hvað? Það væri ann-
ars fróðlegt að vita hve miklu fé bæjar-
sjóður hefur á undanförnum árum eytt í
samskonar fígúruverk og þetta með fram-
kvæmdaáætlunina, sem líklega hefur eins
og fyrr er sagt kostað um eina milljón kr.
Gaman var að heyra hve mikið og vel í-
þróttamiðstöðin eða íþróttahöllin er notuð
af bæjarbúum. Tölurnar um aðsókn eru alveg
stórkostlegar. Er þess að vænta að fram-
háld verði á, því yfir allan efa er hafið að
þangað sækja menn bæði andlegan og líkarn-
legan styrk og heilbrigðt lífsviðhorf.
Verslið ódýrt í Kaupfélaginu
í FYRRA FENGU VIÐSKIPTAVINIR OKKAR 17,6 MILLJ. KRÓNA VÖRUMARKAÐSAFSLÁTT.