Fylkir - 12.11.1977, Blaðsíða 1
29. árg. Vestmannaeyjum 12. nóvember 1977 19. tbl.
Að gefnu tilefni
Eftir Surtseyjargosið vakn-
aði mikill áhugi vísindamanna
fyrir athugunum á eldvirkni og
hita í iðrum jarðar Heimaeyj-
ar. Allt fram að þeim nátt-
úruhamförum virtist áhugi
meðal núlif.andi javCvísinda.
manna ekki umtalsverður fyrir
slíkum raniisóknum og töldu
a.m.k. sumir þeirra ekki mark
takandi á áliti Porvaldar Thor-
oddsen, er hélt því fram í
sínum athugunum, að eyjarn-
ar væru virkar eldstöðvar.
Því var það, að leyfi fékkst
þá fyrir djúpborun á Heima-
ey og var boruð ein dýpsta hola
á landinu eða 1565 m., var ekki
hvað síst vonað af heima-
Lyklar
afhentir
S.l. miðvikudagskvöld af-
henti stjórn Verkamannabú-
staðanna íbúðareigendum í Ás-
hamri 75 lyklana að íbúðum
sínum. í tilefni af þessu bauð
stjórni'n íbúðareigendum og
nokkrum gestum upp á kaffi-
sopa á Hótelinu.
Sigurður Jónsson, kennari,
sem er formaður stjórnar
Verkamannabústaðanna hér í
bæ hafði orð fyrir stjórninni
ng skýrði gang mála í sam-
l>and,i við þann byggingará-
fanga er hér urr ræðir, en það
er fjölbýlishúsið að Áshamri 75.
Er hér um 18 íbúða hús að
ræða, 3 og 4 herbergja að stærð.
Verð hverrar íbúðar var frá
8,3 milljónum til 9,5 millj. með
fjármagnskostnaði 400 þús kr.
á íbúð, og taldi Sigurður það
all vel sloppið með tilliti til
verðlagsþróunarinnar í landinu.
Þá gat Sigurður þess að með
afhendingu þessara íbúða hefði
stjórnin afhent alls 36 íbúðir
í tveim sambýlishúsum.
Athygli mína vakti hve þeir
íbúðareigendur er hér um ræð-
ir var kornungt fólk, um og
innan við tvítugt. Er það sannar
lega ekki ónýtt að leggja út í
lífið, þannig nestaður, góða í-
búð, á viðráðanlegu verði og
með góðum greiðslukjörum.
mönnum, að með slíkri borun
fengist sá árangur, að neyslu-
vatn eða jafnvel heitt vatn
fyndist.
Árangur borunarinnar varð
frekar neikvæður en ekki ár-
angurslaus, þar sem nokkurt
magn af heitu vatni virtist
virkjanlegt úr holunni. Enn
því miður koðnaði málið nið-
ur og verður engum um kennt,
þótt fullyrða megi, að með nú-
tímatækni hefði verið hægt að
virkja holuna til nokkurs gagns.
Eftir að jarðeldarnir brut-
ust út á Heimaey, 23. jan. 1973,
var fljótlega frá því sagt, að
nokkrum vikum áður hefði ver
ið farið að koma vatn upp úr
holunni af sjálfsdáðum. Nokk.
uð var það, að á gostímanum
voru reglulegar mælingar fram
kvæmdar í holunni og talið að
þar mætti finna ýmsar mikil-
vægar upplýsingar.
Þessu var svo hætt, og um-
búnaður holunnar sem staðsett
er í næsta nágrenni Steypu-
stöðvarinnar, varð fyrir hnjaski
vegna aukinnar umsvifa þess
fyrirtækis og hefur svo verið
um 3ja ára tímabil. Umræður
hafa orðið um þetta í bæjar-
stjórn og hefur því verið lof-
að þar að þessu yrði kippt í
lag, myndi það kosta lítið fé
og fyrirhöfn.
1 Efndirnar hafa þó engar orðið
og er holan á mörkum þess að
vera ekki týnd.
Svo sem við heyrum daglega,
er kostnaður við slíkar holur
talinn um og yfir 100 millj. kr.
Þetta er rifjað upp nú að
gefnu tilefni. Við Vestmanna-
eyingar hugsum með samúð til
fólksins á Mývatnssvæðinu,
sem nú lifir í stöðugum ótta
og kvíða vegna náttúruham-
fara.ina, sem yfir virðast vofa.
Við biðjum þess og vonum, að
mannlífum verði þyrmt og aft-
ur komist eðlilegt ástand á
náttúru þessa landshluta.
\'.ð vitum orðið svo ekki verð
ur um villlst, að við búum í
virku eldfjallalandi og verðum
að haga okkur samkvæmt því.
Það er skylda okkar að færa
okkur í nyt þekkingu vísinda-
manna og fengna reynslu, þess
vegna ber okkur að sjá svo
um að hér sé jafnan höfð gát
á, sem möguleg er. Við meg.
um ekki láta kæruleysi og and-
varaleysi ráða.
— Jóh. Friðf.
Listsýning
S.l. fimmtudag opnaði Ást-
þór Jóhannsson (Friðfinnsson-
ar) sýningu á myndverkum sín-
um í Akógeshúsinu.
Verk þau er hér um ræðir
eru gerð á síðastliðnum tveim
árum og unnin í olíu, vatnsliti
og með bleki, og liðlega 30 að
tölu.
Ástþór er ungur að árum og
þessi sýning hans því frumraun
á þessu sviði. Verður gaman að
fylgjast með hver frami hans
verður á braut listarinnar, en
sýningin bar þess vott að hér
er gott efni á ferðinni, verkin
vel unnin, hugmyndir vel út
færðar og margt skemmtilegt.
Við opnunina var fjöldi fólks,
er tók Ástþór mjög vel, að
minnsta kosti seldust um helm-
ingur myndanna fyrsta daginn.
Sýningin er opin í 4 daga. Bæj.
arbúar ættu að líta inn í Akó-
ges núna um helgina, aðgangur
er ókeypis, ég hygg að fáir
verði fyrir vonbrigðum.
ÞÓR — UMFA.
Ekki sóttu þeir Aftureldingar
menn gull í greipar Þórs um
síðustu helgi því þeir töpuðu
verðskuldað 22-16.
Fyrir leikinn yljaði það áhorf-
endum þegar Bói tilkynnti að
Týr hefði sigrað Akranes 19 -17
uppi á Skaga. Enda áttu áhorf.
endur eftir að hvetja sína menn
óspart og það er óhemju mik-
ill stuðningur fyrir hvert lið
sem hefur slíka „kórfélaga”.
Áfram áhorfendur.
Fyrri hálfleikur einkemdist
mjög af góðum varnarleik
beggja liða. Fyrir aftan sterka
vöm Þórs stóð Steini eins og
kóngur í ríki sínu og varði
hvorki meira né minna en 9
skot og þar af eitt víti. Aftur-
elding tók það til ráðs að
taka Hannes úr umferð eins
og hann verður fyrir hjá öll-
um hinum. Staðan í hálfleik
var 8-7 Þór í vil.
Seinni hálfleikur var miklu
skemmtilegri en sá fyrri, mun
fjörugri og hraðari. Þarna held
ég að Afturelding hafi gert þá
skissu að reyna að taka bæði
Hannes og Andrés úr umferð
í ei'.iu, því þá brá Þórarinn Ingi
sér svo sannarlega á leik og
lék andstæðinga sína oft grátt.
í byrjun hélst bilið á milli lið-
anna jafnt, en breikkaði svo
um munaði.
Ekki má gleyma Herberts
þætti Þorleifssonar. Tók hann
6 vítaköst og skoraði úr þeim
öllum, þrátt fyrir að skotin
færu á sama stað.
Flest mörk skoruðu: Þórar-
inn Ingi 7, Hebbi 6 (öll úr víti)
og Hannes 5.
Bestu menn: Steini í mark-
inu og Þórarinn Ingi. Ljótt
þykir mér að Þóraramir hafa
ekki getað haft hann með' sér
í öllum leikjum sínum. En von-
um samt að ha.in hliðri til og
reyni eftir mætti að koma til
liðs við félag sitt, því hann
gleður svo sannarlega augað.
Lokatölur 22 -16.
KARFAN AF STAÐ
Þá er komið að körfubolt.
anum að rúlla af stað í íslands
mótinu.
Eins og menn eflaust muna,
vann ÍV. sér rétt til þess að
keppa í 2. deild þetta keppn-
istímabil. Er ég ræddi við ei'.m
af forráðamönnum ÍV. um
daginn, skyldist mér á honum
að áhugi hefði verið takmark-
aður framan af hausti og illa
mætt á æfingar, en þó hefði
ræst úr upp á síðkastið. Liðið
var þjálfaralaust í allt haust
en nú er kominn hingað ungur
Borgnesingur sem leikmenn
binda miklar vonir við.
Liðið hefur misst þrjá sterka
menn, Jóhann Pétur er hætt-
ur, Sigurður Daníelsson flutt-
ur úr bænum og Friðfinnur
frá vegna meiðsla.
f staðinn fá þeir Borgnesing
inn og Halla Geir sem mun
koma til móts við liðið frá
Laugarvatni þar sem hann er
við nám.
Fyrsti leikur liðsins verður
í dag, mæta þeir þá Grindvík-
ingum á útivelli. Þótt Grindvík-
ingar hafi staðið sig vel í
deildin’ni í fyrra vona ég að
peyjarnir okka spjari sig.
góð FERÐ hjá þór
Þórararnir gerðu það gott um
síðustu helgi í handboltanum.
Þeir fóru og kepptu við ÍA og
Breiðablik. Fyrst kepptu þeir
við ÍA og sigruðu þá með 16-
15. f byrjun komust okkar
menn fimm mörk yfir, en
Skagamenn söxuðu smátt og
smátt á þetta forskot en Þór
var bó alltaf yfir. Markverðirn-
ir báðir áttu stórgóðan leik,
þó áér í lagi Steini, sem varði
Framhald á 3. síöu.