Fylkir - 12.11.1977, Side 2
nruciK
Ritstj. og ábm.:
Björn Guðmundsson.
Pósthólí 116. — Vm.
Afgr. og augl.:
Símar: 1344 og 1129.
Utgefandi: Sjálfstæðisfélögin í Vestmannaeyjum.
Prentun: Prentsmiðjan Eyrún hf.
Aivinnumálin
Mikið hefur verið skrifað og margt sagt um atvinnu-
mál þessa byggðarlags. Er allt gott um það að segja.
Atvinnumálin þurfa alltaf að vera á dagskrá og í brenni-
depli.
í umræðunni um atvinnumálin hefur margt komið
fram sem áhugavert er og bent á ýmislegt sem huga
beri að. Þar á meðal það hve atvinnulíf er hér einhæft,
allt fellur og stendur með því sem úr sjónum fæst. Vissu-
lega er það svo og mun verða um ófyrirsjáanlega fram-
tíð að sjávarútvegur og fiskiðnaður verður hér aðalat-
vinnuvegurinn. Fram hjá því verður ekki gengið. Bæjar-
yfirvöld og fólkið verður að lifa samkvæmt því. Stefnan
hlýtur að verða og vera, að hlúa að og efla þessar höfuð-
greinar atvinnulífsins. Prátt fyrir þessa staðreynd er
rétt að gera sér grein fy.rir því að æskilegt og nauðsyn-
legt er að skapa meiri breidd í atvinnulífið. Bæði er að
ekki geta allir né vilja stundað þær aðalatvinnugreinar
sem fvrr eru nefndar. svo og hitt að eigi bæjarfélagið að
þróast eðlilega verða að vera fleiri atvinnutækifæri en á
eínu eða tveim sviðum.
Staðhættir gera það að verkum að ekki er í margt að
hlaupa til þess að gera atvinnulífið fjölbreyttara. Við bú-
um á eyju, landrými er nær ekkert, aðdrættir til og frá
dýrir og fleira mætti tilnefna er skapa mikla örðugleika
Einna helst virðist vænlegast að halla sér að einhvers-
konar iðnaði tengdum sjávarútvegi. Þar kæmi sjálfsagt
margt til. Mætti tilnefna skipabyggingar og viðhald skipa.
Ekki er vafi á að á því sviði eru miklir möguleikar. Þar
af leiðir að skipályftumálið er mjög aðkallandi. Það þarf
að koma meiri hreyfing á það mál. Það er vont til þess
að hugsa að stór hluti af viðhaldi skipaflotans verður að
sækja í önnur byggðarlög, svo að það eitt sé nefnt.
Iðnaður í sambandi við gerð og uppsetningu veiðar-
færa er líka mjög til athugunar. Svo er að sjálfsögðu
þeir möguleikar sem fyrir hendi eru í sambandi við
sjávaraflann, niðurlagning, niðursuða og þessháttar.
Atvinna er nóg í dag, en þrátt fyrir það held ég að það
sé nauðsynlegt að gera sér grein fyrir að í sambandi við
atvinnumálin verða menn að vera vel á verði.
Björn Guðmundsson.
^ SÍMNOTENDUR VESTMANNAEYJUM
Vegna útkomu nýrrar símaskrár (landsíma-
skrár) eru allir þeir, sem einhverju v-ilja breyta
eða bæta við frá því sem er í síðustu símaskrá
(frá 1977) beðnir að tilkynna það Pósti og
síma, Vestmannaeyjum fyrir 18. nóvember nk.
Best er að tilkynningar berist bréflega og
má í því sambandi nota eyðublað fyrir pöntun
á talsíma á blaðsíðu 351 í síðustu símaskrá.
Einnig má hringja í eftirtalin símanúmer:
1003, 1005, 1006 og 1000.
Póstur og sími’
Vestmannaeyjum
______________________________________________/
í minninguL
Astu Arsslsdóttur
írá Fögrubrekku
Einn af hornsteinum hvers
þjóðfélags eru heimilin. Gildi
heimilanna markast af ríkjandi
a'-ida þar og getur haft úrslita
áhrif á lífsviðhorf og gæfu bam
anna, er þess njóta.
Fyrir Vestmannaeyinga var
Fögjfubrekkuheimilið, þeirra
samstilltu sæmdarhjóna, Lauf-
eyjar Sigurðardóttur og Ársæls
Sveinssonar, með sinn stóra
barnahóp, en þau eignuðust 9
böm, til mikillar fyrirmyndar
og eftirbreytni.
Yfir vötnunum svifu fornar
dyggðir, er vom í heiðri hafð-
ar. Jafnframt því, að fylgst var
með tímanum og umsvif Ársæls
í verklegum athöfnum, einkum
við sjávarsíðuna og þátttaka á
félagsmálasviðinu, mörkuðu
farsæl og djúp spor í byggðar.
laginu.
Á Fögmbrekkuheimilið komu
ár eftir ár tugir vertíðarfólks
og fengu þá aðhlynningu og
skjól, sem það segist eiga hvað
best í minningum sínum, er
þess urðu aðnjótandi. Með mildi
og reisn stjómaði Laufey sínu
stóra heimili, en Ársæll dróg
mikla björg í bú, enda maður-
inn með ólíkindum dugmikill
og heppinn með þau mörgu
verk, er hann tók sér fyrir hend
ur um dagana.
Guðrún Ásta, eitt Fögru-
brekkusystkinanna, er kvödd
frá Laidakirkju í dag, en Ásta
eins og hún var jafnan kölluð
lést langt um aldur fram 2.
nóvember s.l. aðeins 47 ára að
aldri.
Ásta var gædd því besta í
fari sinna ættmenna og vakti
hvarvetna athygli fyrir fágaða
framkomu og Ijúfa. Frá ung-
dómsárunum og lengst af tók
hún virkan þátt í störfunum
mörgu á æskuheimilinu við hlið
móður sinnar og systkina, sömu
leiðis í fyrirtækjum þeirra og
dróg hvergi af sér, til að gera
hlut fjölskyldunnar sem mest-
an.
Hún var alla tíð mjög sam.
rýmd ættfólki sínu, og var
tryggðin í blóð borin, ávallt til-
búin að rétta hjálparhönd og
það kom í hennar hlut að verða
stoð og stytta foreldra si'.ina
eftir að systkinin fluttu burtu
og stofnuðu' heimili.
Til eftirbreytni, sem ekki
gleymist var Ásta, er hún sá
um heimili foreldra sinna, þeg-
ar kraftar þeirra þverruðu, síð
ast með föður sinn einan í
nokkur ár, eftir að móðir henn-
ar féll frá.
Ásta tók virkan þátt í störf-
um fyrir Sjálfstæðisflokkinn og
var þar sem annarsstaðar góð-
ur liðsmaður sem alltaf mátti
treysta.
Það var ástvinum Ástu og
vinarfjöld , mikið áfall, er það
spurðist fyrir nokkrum vikum
hve alvarlegur sjúkdómur henn
ar væri og sýnt var að hverju
dróg. )
Hún hafði alltaf verið auga-
steinn fjölskyldu sinnar og því
mikið skarð fyrir skildi, er hún
í blóma lífsins er öll.
E'.n sárastur er harmur henn
ar ágæta eiginmanns, Ágústar
Helgasonar frá Birtingarholti,
af merkum ættum Árnesinga,
en hann er okkur að góðu kunn
ur, sem forstjóri Mjólkursam-
sölunnar hér um árabil.
Samvistir Ástu og Ágústar
voru stuttar, en ástríkar og
þeim til gag'.ikvæmrar ham-
ingju. Þau giftu sig 1971 og
höfðu búið sér fagurt heimili
að Þorfinnsgötu 6 í Reykjavík.
Við biðjum Alföður að styrkja
Ágúst, systkini Ástu og fjöl-
skyldur þeirra við ástvinamiss-
int.
Drottinn gefi dánum ró,
hinum líkn sem lifa.
Jóhann Friðfinnsson
ISFÍLAG
Vestmannaeyja hf.
AÐALFUNDUR
Aðalfundur ísfélags Vestmannaeyja h.f. er
halda átti 19 nóv n.k., er frestað til fimmtu-
dagsins 29. desember n.k. Nánar auglýst síðar.
Stjórnin