Fylkir - 22.11.1977, Blaðsíða 1
29. árg.
Vestmannaeyjum 22. nóv. 1977
20. tbl.
Svoiia íer þegar kerfið hunds-j
ar hagsmuni almennings
Harðduglegt lið frá Val-
geir Jónassyni hefur nú tek-
ið til við framkvæmdirnar við
flugstöðina. 30 ára draumur er
nú að verða að veruleika og
fög'-ium við því öll. Aðstaðan
við flugvöll okkar hefur verið
með slíkum endemum, að ekki
þarf að eyða því frekari orðum,
svo oft hefur það verið gert á
þessum vettvangi og hinir fjöl-
mörgu sem átt hafa ótal leiðir
þarna um á síðustu áratugum
eru dómbærir á ástandið.
Ekki get ég látið hjá líða í
framhaldi af mótmælum mín-
tim í hyggingarnefnd og bæj1-
arstjórn fyrir staðsetningu flug
stöðvarinnar að bæta aðeivis við
til að sýna bæjarbúum, hvern-
ig farið er með almanna fé að
þarflausu.
Áður hefur komið fram,
hversu mikið hagræði, það væri
fyrir bæjarbúa, að flugstöðin
hefði fengið að vera norður
frá næst bænum, eins og á-
kveðið var 1975, þar voru flest-
ar lagnir tiltækar og vegagerð.
arkostnaður í lágmarki.
Pá þykir mér rétt að birta
bréf til flugmálayfirvalda, sem
sýnir að það var ekkert einka-
mál mitt að reyna að koma í
veg fyrir þau óþarfa mistök
sem hér hafa orðið, til að þjóna
duttlungum embættismannakerf
isins.
y/i/£/efaf J?/<7j/(f^
ÆJ?
MCEM-AI\IDÆMR
RtYKJAVtK. 1977-07-05
Hr. deildarstjóri flugvalladeildar,
Hrafn Jóhannsson,
Flugmálas t j órn,
Reykjavík.
Tilefni þessa bréfs er a6 undirritaðir hafa fengiÖ þær
fregnir aÖ^til standi að hefja byggingu flugstöðvar-
byggingar á Vestmannaeyjaflugvelli.
Okkur skilst að þessi bygging eigi að standa í kvosinni
fyrir norðan núverandi farþegaskyli á flugvellinum. Þér
er minnisstæð ferð okkar til Vestmannaeyja til viðræftna
við bæjarstjórn um mögulega breytingu á A-V flugbrautinni.
Við getum ekki annað séð, að ef úr verður að byggja flug-
stöðvarbygginguna^á ofangreindum stað, þá se úr sögunni
möguleg breyting á A-V flugbrautinni.
Þér er kunnugt um áhuga okkar á aö þessi breyting gæti
orðið aö veruleika, þar sem við teljum aö flugbrautin
yrði betri til lendingar og flugtaks, þar að auki yrði
næturlending auðveld til vesturs, sem er óframkvæmanleg
á núverandi flugbraut.
Með þessu bréfi viljum við vekja' athygli stofnunarinnar
á þeim mögulega ska6a sem yrði um ókomna framtíÖ, ef ekki
verður haldið opnum þeim möguleika á að snúa A-V flugbraut
frá Sæfellinu.
Virðingarfyllst,
niuiiigarijiisL, yj
Lirfgimar 1C SveinK^öriísson
Samrit:
Bæjarstjórn Vestmannaeyja
Umboósmaour Fl - VEY
Jóhannes Einarsson REK
Einar Helgason REK
Þjálfunarflugmenn F-27
FLUGF2LAG ISLANDS H/F
Kerfið hlustaði ekki á rök flugstjóranna, sem hafa ára-
tuga reynslu í starfi og þekkja best aðstæður okkar. Því
var þessu bréfi stungið undir stól og hefur mér vitan-
lega aldrei verið svarað.
Nú er komið fram í vegagerð-
aráætlun, að miðað við '.lúgild-
andi verðlag kostar fyrirhug-
aður vegur frá Dalaveginum yfir
strynturnar og austur í Djúpa-
dal tæpar 30 milljónir króna
sbr. bls. 47 í framkvæmda og
byggðaáætlun Vestm.eyja 1977
— 1986.
Pessi ágæta mynd Sigurgeirs Jónassonar sýnir glöggt
hve staðurinn norður frá hefði verið ákjósanlegur fyrir
flugstöðina, enda staðsetning flugturnsins greinlega í
samræmi við ákvörðun flugmálayfirvalda frá 1975.
Fremst á myndinni sést umdeilda vegasvæðið í Djúpa-
dalinn, 30 milljónir takk.
Þessu svara embættismenn-
irnir, allt í lagi, það er ríkið
sem borgar þetta. Svona er því
miður hugsunarhátturi'.in.
Embættismannakerfið virðist
svo slitið úr tengslum við fólk-
ið í landinu, að hægt sé að
bjóða upp á hvað sem er, því
miður er það svo að æðstu
embættismenn ríkisins eru skip
aðir eða æfiráðnir, svo varla er
hugsanlegt að hrófla við þeim,
árangurinn er eftir því, þeir
verða svo heimaríkir að þeifh
finnst þeim líðist allt.
Og fróðlegt verður að fylgj-
ast með því, hver verður gerð-
ur ábyrgur fyrir þeim furðu-
lega klaufahætti, að ekki verð-
ur mögulegt að sjá frá flug-
turninum, sem virðist staðsett-
ur með hliðsjón af því, að
flugstöðin væri byggð norður
frá, og inn á svæðið í Djúpa-
dal. Sem sagt, frá flugturni'.ium
að sjá „gleypir" jörðin og'
landslagið flugvélarnar þegar
þær eiga upp undir 100 -metra
eftir að flugstöðinuii.
Þessi mynd Sigurgeirs er tekin frá flugturninum í átt að
flugstöðvarbyggingunni. Engin getur af henni séð hvað
er bak við holt og hæðir og engir möguleikar fyrir flug-
stjórnarmenn að fylgjast með því frá vinnustað sínum
með berum augum, sem fram fer á flugstöðvarsvæðinu,
hvað þá að líta eftir þeim geysilegu verðmætum, sem í
framtíðinni verða oft og tíðum á þessum stað.
Sjálfsagt verður farið fram
á við 'náttúruverndarnefnd að
fá að ryðja klettunum vestan
Djúpadals í burtu, frekar en
byggja ofan á flugturninn, þar
sem hann er. Við bíðum og sjá-
um til.
Það hefur verið giskað á að
flutni'ngur flugstöðvarinnar frá
upphaflegum stað norður frá
og austur í Djúpadal muni gera
framkvæmdirnar milljónatug-
um dýrari og þær upplýsingar
sem nú liggja fyrir um vega-
gerðarkostnaðinn staðfesta það
fullkomlega.
Það er ekki að ófyrirsynjuðu,
sem ungir Sjálfstæðismenn hafa
gert að kjörorði sínu: Bátoið
burt. Það er ekki seinna vænna
að unga fólkið rísi upp gegn
óstjórninni, sem því miður blas
ir allt of víða við.
— Jóh. Friðf.