Fylkir


Fylkir - 26.11.1977, Blaðsíða 1

Fylkir - 26.11.1977, Blaðsíða 1
29. árg. Vestmannaeyjum, 26. nóvember 1977 21. tbl Sigurður Scheving skrifstofustjóri Kveðjuorð Siguröur Scheving lést að heim ili sínu hinn 10. þ.m. Hann var fæddur í Vestmanna eyjum 9. apríl 1910, sonur hpónanna Sveins Scheving og Þrðlítum gagnrýnanda svarað Að undanfömu hefur einn af okkar dgætu bæjarfulltrúum, og sem jafnframt er byggingar- nefndarmaður, gagnrýnt opin- berlega staðsetningu flugstöðv- arinnar nýju, sem verið er að reisa í Djúpadal, og starfs- hætti þeirra manna sem þar hafa einkum komið við sögu. hetta hefur gerst æ ofaní æ, og ekkert lát er á þótt nú séu framkvæmdir hafnar fyrir löngu, flestum bæjarbúum (öðrum am.k.) til óblandinnar gleði. Ekki má spilla fyrir Ég tel mig eiga töluverðan þátt í því, hvSr flugstöðinni var endanlega valinn . staður. Samt hef ég ekki fram að þessu séð ástæðu til að svara þessari gagnrýni, því iauðvitað eiga menn rétt á að hafa sína skoð. un á málum og að birta hana almenningi. En nú er svo kom- ið, að mér finnst gagnrýnin komin á stig sem gæti orðið hættulegt þeim framkvæmdum, sem nú fara fram við Vest- mannaeyjaflugvöll, með því að gefa bæjarbúum almennt og bæjaryfirvöldum og öðrum ráðamönnum, sem sækja þarf til ýmsa vandfengna hluti, brenglaða hugmy.id um það sem þarna er að gerast; hugmynd, sem væri ef til vill til þess fallin að svipta þessar kær- komnu og nauðsynlegu fram- kvæmdir þeim fyrirgreiðsluvilja ráðamanna þjóðarinnar, sem nú virðist vera fyrir hendi. Allir vildu vel Staðsetniig flugstöðvarinnar í Djúpadal er ekki augnabliks. ákvörðun. Hún er gerð að vel athuguðu máli. Þeir menn sem að henni stóðu, höfðu ekki ann- að í huga en gera sitt besta. Rökin fyrir því að byggja flug- stöðina í Djúpadal fremur en vestanu idir Hrafnaklettum eru svo mörg og sterk og öllum aug- ljós, sem um þessi mál hugsa af þekkingu og velvilja, að ekki kom til greina að ganga fram- hjá þeim. Aðeins það meinlegasta Þessi rök verða ekki rakin hér. Til þess gefst ekki rúm í blaðinu. Það er aðeins tvennt það meinlegasta, sem komið hefur fram í sambandi við þessa gagnrýni, sem ég mun elta ólar við. Það er: 1. Um skert útsýni úr flug- turii yfir athafnasvæði við flug- stöð og vandkvæði því samfara. Skrif tveggja flugstjóra F.f. (sem auðvitað eru pöntuð) um staðsetningu flugstöðvar í Djúpadal, með byggingu nýrr- ar flugbrautar í huga. Fyrra atriði Reykjavíkurflugvelli 15. nóv. 1977 Byggingamefnd, Vestmannaeyjum. Vísað er til eftirfarandi bókunar á fundi byggingar- nefndar, Vestmannaeyjum: „Bygginganefnd vill jafnframt taka fram, að fram hefur komið, að út- sýni frá nýbyggðum flugtumi að væntanlegu at- hafnasvæði við flugstöð er mjög skert. Auk þess vill nefndin gera fyrirspum um það hvort forsend- ur vegna byggingu flugstöðvar hafi breyst.” Af þessu tilefni er rétt að eftirfarandi kom fram: 1. Samkvæmt alþjóðareglum um flugumferðar- stjórn (ICAO Doc. 4444-RAC/501/10, PANS-RAC, Part V, Aerodrome Control Service), er verksvið flugturna takmarkað við umferðarsvæði (manoeuv- ring area) hlutaðeigandi flugvallar. í flugreglum nr. 415/1975, sem sámhljóða em ICAO Annex (Rules of the Air), er umferðarsvæði skilgreint sem „sá hluti flugvallar sem ætlaður er fyrir flug- tök og lendingar loftfara og ferðir þeirra í sam- bandi við flugtök og lendingar, að hlöðum þó undan- skildum.” Par sem við verður komið er æskilegt að flug- turn hafi einnig yfirsýn yfir hlöð síns flugvallar, en aðstæður á Vestmannaeyjaflugvelli leyfa slíkt ekki. Staðurinn, sem endanlega var valinn fyrir flug- turninn, veitir hins vegar besta yfirsýn yfir flug- brautimar og umferðarhringinn fyrir flugvöllinn. Pess skal hér getið, að hlað Keflavíkurflugvallar sést ekki frá flugturni hans. 2. Flugmálastjórn er ekki kunnugt um að nein- ar forsendur fyrir byggingu flugstöðvar á Vest- mannaeyjaflugvelli hafi breyst, enda hefur bygging hennar þegar hafist af fullum krafti. Leifur Magnússon (sign) Þess má geta hér að Leifur Magnússon, verkfræðingur og varaflugmálastjóri, er viður. kenndur á alþjóðavettvangi sem sérfræðngur í þessum efn- um. Auk þess hef ég ekki heyrt annað en hann þyki hinn samviskusamasti embættismað- ur í hvívetna. Atriði númer tvö, sem er í sjálfu sér miklu alvarlegra mál, verður vegna rúmleysis að bíða næsta blaðs. Steingrímur Arnar. Byggingaaefnd Vestmannaeyja mun í ofboði hafa sent flug- málayfirvöldum skeyti um þetta fram komna atriði, og fengið eftirfarandi svar: konu hans Kristolínu Berg- steinsdóttur. Sigurður ólst upp hjá foreldr um sí'ium að Steinsstöðum og síðar að Hjalla við Vestmanna- braut. Fyrstu kynni okkar Sigurð. ar voru eftir að hann fluttíst i bæinn þá ungur að árum, því Heiðrarbrún er næsta hi’is við Hjalla, en þar átti ég þá hsima. Við lékum okkur saman sem drengir, sem síðar færðist upp í félagsskap unglingsáranna. Þegar Sigurður var um 18 ára gamall fór hann til náms í Samvinnuskólann í Reykja- vík, fyrir tilstilli bróður síns Páls, sem kostaði námsdvöl hans, en Sigurður lauk námi eftir tvo vetur. Við urðum herbergisfélagar í Reykjavík þennan fyrsta vetur því ég fór til náms þangað um sama leiti. Við deildum saman herbergi að Laufásvegi 20, en borðuð- um sitt á hvorum stað. Eg minnist þessa tíma með ánægju enda vorum við báðir á þeim aldri, að ástæðulaust var að láta sér leiðast, þó fjárhagur- beggja væri nokkuð knappur. Eg hafði aðstöðu til að vi'.rna við smíðar fyrir mínum náms- kostnaði en Sigurður fékk sinn skammt mánaðarlega frá Páli bróður sínum. Það fór ekki framhjá mér þegar Sigurður hafði fengið „sendingu” því gjarna.i vildi hann halda uppá daginn með nokkrum glaðning og taldi hann þá ekki eftir veiti.igar til mín, en kannski hef ég eitthvað hjálpað upp á sakirnar við hann síðustu daga mánaðar- ins þar sem ég hafði mínar tekjur vikulega. Að námi sínu loknu fór Sig- urður að vinna við skrifstofu- störf, sem hann og gerði alla sína starfstíð, fyrst um árabil í Vestmæyjum og síðar á fasta landinu og nú síðast sem skrif stofustjóri við Kaupfélagið Þór að Hellu, þar til heilsan bilaði og hann flutti til Reykjavíkur. Sigurður var félagslyndur maður, samleið áttum við í Lúðrasveit Vestm.eyja og víðar. En mesta áhugamál hans í þeim ef:ium var starfscmi hans Frainhalil á 3. s>íðu

x

Fylkir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.