Fylkir


Fylkir - 03.12.1977, Page 1

Fylkir - 03.12.1977, Page 1
29. árg. Vestmannaeyjum 3. clesember 1977 23. tbl. Enn um nýju Mln PRÓFKJÖR 14 til 19 daglega og í Reykjavík á skril Sjálfstæðisflokksins, Valhöll, fimmtudaginn 8. og föstudagi frá kl. 14 til 19 livorn dag. Magnús brást illa við! Síðara atriði Þá er komið að síðara atriði þessa andsvars, sem er: Um skrif tveggja flugstjóra F. í. (sbr. Fylki 22. nóv.), um stað- setningu flugstöðvar í Djúpa- dal, með byggingu nýrrar flug brautar í huga. Á fundi með bæjarráði. Þann 23. september 1975 bauð bæjarstjórinn í Vestmannaeyj- um, Sigfinnur Sigurðsson, hing- að fulltrúum frá Flugmála- stjórn og Flugfélagi fslands til skrafs og ráðagerðar, ásamt bæjarráði, um flugsamgöngu- mál Vestmannaeyinga. Einn fulltrúa F. f. á fu’ndi þessum var annar bréfritar- anna, Ingimar Sve'inbjörnsson, flugstjóri, en hann er nú ein- hver rey.idasti flugstjóri F. í. í innanlandsfluginu. Þarna kom fram áhugi flugmanna F. í fyrir „breytingu á A—V flug- brautinni”, ef breytingu á þeirri braut skyldi kalla, en ekki byggingu nýrrar brautar. Áhugamál flugmanna. Vesturendi A—V flugbrautar haldist óbreyttur þar sem hann er nú, en stefnu brautarinnar verði breytt til austurs, þannig að norðurkantur hennar verði ca. 100 metrum norðar e.i nú er, þegar komið væri austur á móts við Dljúpadal. Þetta þýð- ir að norðurkantur hinnar nýju brautar mundi skera hábrún hæðarinnar norðan við flugskýli Bjama Jónassonar, þar sem hún er syðst að sjá frá gamla flugturninum. Þannig skyldi á- fram halda í austur, og helst austur á Hauga. Þá væri þarna komin betri braut, bæði til flug- taks og lendinga, en gamla brautin, og einkum til vesturs, þar sem hún yrði fjær Sæfjall- inu. Allt má þetta satt vera, sem flugmennimir segja, enda eng- inn þeim færari að dæma um þessi efni, — út frá þeim sjón- armiðum sem þeir gera. Ef til stæði að byggja nýja braut eftir framangreindum óskum, þá verður að viður- kenna að flugstöðin nýja yrði óþægileg hindrun. En lítum á fleira. Breidd N—S flugbrautar að viðbættum öryggissvæðum er 90 m, þ. e. 45 m út frá miðlínu; 22,5 m frá kanti, og er það tal- ið of lítið. Flugskýli Bjarna Jónassonar er ca. 50 m frá kanti, þ. e. 80 m frá miðlínu A—V brautar. Það þykir hindrun vegna hæðar sinnar og sama er um skúrana þar austuraf. Flugstöðin nýja er ca. 150 m frá norðurkanti A—V brautar, þ. e. ca. 50 m frá norðurkanti hinnar nýju brautar. Löglegt hindrunarlaust öryggissvæði fram með norðurkantinum mimdi ná alveg að flugstöðinni og kannski vel það. Þá er vert að athuga annað. Þegar flug- stöðin nýja er orðin hindrun af því tagi, sem hér um ræðir, þá er Djúpidalur ekki lengur til. Til að hægt sé að byggja þessa óskabraut og nota hana, þarf að fjarlægja hæðimar sitt hvom megin Djúpadals eins og þær leggja sig. Og nýi flugturn- inn yrði hæðar sinnar vegna ekki síður hindrun í vegi þess- arar brautar, þó hefur enginn Framhald á 2. siðu. Gamanleikur eftir Duncan Greenwood. Leikstj.: Sigurgeir Scheving. SI. sunnudag frumsýndi Leik- félag Vestmannaeyja ofannefnt leikrit. Leikarar eru níu. Með aðalhlutverkin fara þau Ásta Bjartmars og Sveinn Tóm- asson. Eru þau bæði vön á sviði hér og gerðu hlutverkum sínum, en þau voru hjón, ágæt skil. Framsön þeirra var skýr og hressileg og mikil hreyfing í leik þeirra. Inga Jóhannsdóttir lék dóttur þeirra og Ólafur H. Matthíasson unnusta hennar. Ekki voru þau hlutverk eins skemmtileg frá höfundarins hendi, en bæði komust þau vel frá þeim. Konu með vafasama fortíð lék Kristín Baldvinsdóttir. Hún er alltaf skemmtileg. Dóttur hennar lék Baldvina Sverrisdótt ir. Hún er alger byrjandi, gerði þessu litla hlutverki góð skil. Best gerða hlutverkið frá höf- undarins hendi er Benjamin Á síðasta bæjarstjórnarfundi bað Jóhann Friðfinnsson — Magnús H. Magnússon í fullri vinsemd að biðja kjöma bæjar- fulltrúa Sjálfstæðisflokksins af- sökunar á þeim alvarlegu að- dróttunum, sem hann hefur orð Tappworth, ríkisstarfsmaður. Lék Guðmundur Páll þenn- an mömmualda piparsvein með ágætum og hefur Leikfélaginu þarna bæst góður leikari. Var óspart hlegið, er hann birtist á sviðinu, sérstaklega eftir að hann hafði fengið sér heldur of mikið neðan í því. Héldu þau hjónin og hann uppi mikilli kát- ínu, en Sveinn var mestallan tímann á sviðinu. Leikstjórn var ágæt, skipting- ar hraðar og engar þær va.id- ræðaþagnir, sem oft verða á frumsýningu áhugafólks, fyrst og fremst vegna þess, að leik arar kunna ekki nógu vel hlut- verk sín og eru taugaóstyrkir. Er gleðilegt, að þessa varð ekki vart núna, og ber að þakka það góðri æfingu og leikstjórn. Er fólk hvati til að meta þetta framtak og stytta skamm- degið með góðum hlátri. Ekki var gott að skilja hvaða hlutverkum þær Yvonne og Est- ella áttu að geg'.ia, þó alltaf sé gaman að sjá ungar og fallegar stúlkur stuttklæddar. Gestur. ið uppvís að, — samanber Brautina og Dagskrá. Magnús brást illa við þessum tilmælum, sem hann sagðist ekki hafa sagt, en bætti því við, að sér hafði verið hótað miklu verri hlutum, þegar þessi orða- skipti áttu sér stað. í fyrsta lagi er M. H. M. orð- inn margsaga í þessu máli eins og oft áður. Viljum við sem kjörnir bæjarfulltrúar Sjálf- stæðisflokksins krefjast þess að M. H. M. svari eftirfarandi: 1. Hver hótaði honum og hverju? 2. Við hvað á M. H. M. þeg- ar hann talar um gylliboð sér til handa? Þar sem við höfum aldrei heyrt orð um það, að M. H. M. hafi verið boðið eitt eða neitt af Sjálfstæðisflokknum, þá ber honum skylda til að upplýsa þessi tvö atriði. Undirrituð létu bóka eftirfar- andi vegna þessa alvarlega máls. „Við kjörnir bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lýsum von- brigðum okkar með það, að Magnús H. Magnússon skuli ekki þrátt fyrir tilmæli okkar, sýna þann drengskap nú, að biðja okkur afsökunar á mjög alvarlegum aðdróttunum að okkur, sem á hann hefur sann- ast í blöðum bæjarins, Braut- inni og Dagskrá að undanförnu. Sigurbjörg Axelsdóttir, Jóhann Friðfinnsson, Sigurður Jónsson.” Allir í verkfall

x

Fylkir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.