Fylkir


Fylkir - 13.05.1978, Side 5

Fylkir - 13.05.1978, Side 5
FYLKIR 5 Álit Stýrimannaskólans Að undanförnu hafa farið fram miklar umræður um það, hvort stofna eigi samræmdan framhaldsskóla (Fjöl- brautarskóla) hér í Eyjum. Einnig, hvort og þá hve hratt, sérskólar eins og Stýrimannaskólinn, Vélskólinn og Iðnskólinn myndu fara inn í þetta nýja kerfi. í þessu eins og mörgu öðru sýnist sitt hverjum. Við kynnum hér álit skólastjóra og skólanefndar Stýrimanna skólans á þessu ináli. Fer hér á eftir greinargerð er nefndin gerði hæjarráði grein fyrir. Hinn 2. maí sl. vorum við undirritaðir, skólamefnd og skólastjóri Stýrimannaskólans í Vestmannaeyjum boðaðir á fund bæjarráðs Vestn annaeyja. Á fundinum voru einnig skóla- nefnd og skólastjóri Iðnskóla Vestmamiaeyja og framkv.. nefnd að stofnun samræmds framhaldsskóla í Vestmanna- eyjurrPessa framkvæmda- nefnd hafði bæjarráð skipað 13. febrúar sl. og voru í henni eftirtaldir menn: Bjöm Bergs. son, kennari, Gísli Friðgeirsson, fyrrv. menntaskólakennari og Kristján Jóhannesson, forstöðu maður Vélskólans í Vestmanna- •eyjum. Gíli Friðgeirsson og Bjöm Bergsson kynntu lítillega skýrslu þeirra nefndarmanna. Skólanefnd og skólastjóri Stýri mannaskólans röfðu ekki fyrr séð né heyrt þessa skýrslu og urðu umræður því nánat engar um hana. Það þarf ekki hér nú í þess- ari skýrslu að rekja þær um- ræður, sem urðu á fyrrnefnd- um fundi. Bæjaráðsmönnum eru þær að sjálfsögðu kunnar. í lok fundarins var ákveðið að útbýtt yðri eintaki af skýrsl. unni til skólanefndar og skóla- stjóra Stýrimannaskólans, sem athuguðu hana og gæfu síðan umsögn sína. Áður en komið er að efni skýrslunnar skal þetta tekið fram, sem öllum er kunnugt: Pegar Stýrirr annaskóli og Vél. skóli hófu göngu sína hér að nýju eftir gos, var það gert með nokkurs kc.iar fjölbraut- arfyrirkomulagi við Iðnskól- ann. Áður höfðu þessir þrír skólar starfað sitt í hvoru lagi. I Stýrimannaskólann innrituð. ust 5 nemendur og 5 nemendur í Vélskóla'in. Samstarf þessara þriggja skóla gekk mjög vel í tvö skóla ár. Merntamálaráðuneyti og bæjaryfirvöld hér voru ánægð með n innkun kosnaðar og bætta.i árangur á öðmm svið. rim skólastaírfsins. Kennarar> sem við skólana störfuðu voru allir ánægðir með þetta sam. starf. Pað sama er hægt að segja um nemendur skólanna, enda fjölgaði nen.endum Stýri. mannaskóla.rs úr 5 í 25 skóla. árið 1977—78 cg Vélskólans úr 5 í 18 á sama tíma. f byrjun skólaárs 1977 — 78 var þetta samstarf útfært meira, þannig aðfyrrnefnd skólasamsteypa fór í samkennslu í kjarnagrein um með framhaldsdeildunj Gagnfræðaskólans hér. Allir að. ilar samþykktu þetta fyrir. komulag til reynslu þetta skóla ár, fyrst og fremst vegna þess að fyrir alþingi lá og liggur frumvarp til laga um sam. ræmdan framhaldsskóla, sem allir töldu að samþykkt yrði á yfirstandandi þingi. Núna í lok þngtímans er það augljóst, að fyrrnefnt frumvarp verður ekki samþykkt og er það vegna þess að ótal athugasemdir hafa bor. ist til alþingis veg'.ia galla, sem færustu menn í skólan.álum telja á því. Pegar sanstarf framhalds- deilda Gagnfræðaskólans, Iðn. skólans, Stýrimannaskólans og Vélskólans hófst, var sam. þykkt að kennt yrði eftir svo- nefndu fimmundarkerfi, sem kennt er við fjölbrautarskóla Suðurnesja. Kennarar fram. haldsdeildar Gagnfræðaskólans fengu námsskrár Stýrimanna. skóla og Vélskóla í hc.idur til þess að tryggt yrði að nem. endur þessara skóla fengju það nám sem þeim ber. Fyrr. nefnd kennsla kjamagreina fór fram í Gagnfræðaskólanum og sáu kennarar þaðan um hana. Það þarf svo ekki að orðlengja um framhaldið. Bæjarráðs. menn hafa fengiö skýrslu frá neméndum Stýrimannaskóla og síðar frá nemendum Vél. skóla, þar sem lýst er efndregn um stuðningi við nemendur Stýrimannaskóla og harmað að ekki skyldi hafa verið leit- að álits Vélskólanema. Það, sem stendur upp úr þessu san.starfi er fyrst og fremst þetta: N-emendur Stýri- mannaskóla og Vélskóla fengu ekki það nám, sem þeim bar, skv. námsskrá þessara skóla þrátt fyrir það að kennarar Gagnfræðaskólans vissu um það. Þetta stafaði af því að kerfið, sem þeir voru alltof bundnir af, leyfði það ekki. Mik. il óánægja með niðurröðun í bekkjardeildir, þar sem full. orðnir rr enn, sem voru komn. ir af alvöru í skóla til þess að læra, voru settir með ungling- um, fullum af námsleiða svo árangur kennslu var lélegur. Þarna var kerfið að verki, sem ekki mátti hvika fá. Enginn nemenda Stýrimanna. skóla eða Vélskóla, sem voru í þessu skólasamstarfi í vetur munu korra hingað næsta vet. ur, ef þetta fyrirkomulag verð. ur áfram. I lögum um Stýrimannaskól. ann í Vestmannaeyjum segir, að skólanef.idin skuli fylgjast með kennslutilhögun og náms. efni og vera skólastjóra til að- stoðar í málefnurr. skólans al- merrnt. Þess vegna vill nefndi'.i taka fram þar sem segir um kennslu fyrirkomulag. Ekki hefur verið lokið samræmdri skráningu námsáfanga né samræmdum 'námsvísi fyrir þá fjölbrautar. skóla, sem fyrír eru í land- inu. Nefndin er sammála því að fylgjast verði náið rræð þeirri samræmingu, en mun ekki taka afstöðu til hennar nema í samráði við Stýrimanna skólann í Reykjavik. Þar sem talað er nú um námsleiðir í skýrslunni mun. um við ekki sarr.þykkja skip- stjórabraut á 1. og 2. ári fyrr en fyrmefndar leiðir liggja ljós. ar fyrir, þ.e, skráning í áfanga og samræmdar námsleiðir er henta námi skipstjórnarmanna. í sambandi við aukin útgjöld er ekki hægt að sjá á skýrsl- unni, hvernig því mundi reiða af. Skv. einkasamtölum við nefndarmenn hefur korr.ið fram að kostnaðarauki yrði talsverð. ur ef farið yrði út í breyti.igar. Sem almennir borgarar taka nefndarmenn fram, að þeir eru á móti auknum ríkisútgjöld- um, nema sannað sé, að þau séu til bóta. Reynsla þessa skólaárs sýnir an.iað. Nefndin er fylgjandi þeim hugmyndum um nýtingu skóla- húsnæðis, sem fram kemur í skýrslunni. Ekkert er því til fyrirstöðu að nemendur úr framhaldsdeild um Gagnfræðaskólans komi í Iðnskólahúsið í eðlisfræði og efnafræði með kennumm sín. um. Þetta er ekki nýtt hér í Eyj- urrj. Meðan Gagnfræðaskólinn var á Breiðabliki sóttu nemend- ur þaðan alla leikfimike'.mslu í Barnaskólann og piltar úr Barnaskóla verklega kermslu f kjallarann að Breiðabliki. Um breytingar á kennslutil- höguji vill nefndin taka fram: Þar sem talað er um kjörsviðs stærðfræði 223 fyrir 1. stig vél- stjóra og stýrimanna. Skóla- stjóri Stýrimannaskóla og kenn arar margbáðu um þetta at- riði í upphafi skólaárs og rr.arg kvörtuðu um að því værí ekki sinnt, en því miður, jcerfið leyfði það ekki og þar við sat. Um liðinn framkvæmdaáætl- un tekur 'nefndin fram: Engin skólansfnd verði sett á fót fyrir vænitanlegan samræmdan fram haldsskóla hér í Eyjum, né neinar stöður auglýstar við hann. Skólarnir, þ. e. fram- haldsdeildir Gagnfræðaskólans, Iðnskóli, Stýrimannaskóli og Vélskóli starfi sitt í hvoru lagi næsta skölaár eins og gerí var skólaárin 1975—76 og 1976—77. Farið verði þess á leit við Gísla Friðgeirsson, að ham fylgist með námi skólanna þannig. Geri hann síðan tillögur um samræmingu. Út í hött er að ætla að ræða við væntanlega neme idur Stýri mannaskólans í apríl—maí. Væntanlegir nýir nemendur Stýriman.raskóla imrita sig yf- irleitt ekki fyrr en rétt fyrr skólatírr.a í byrjun október. Þeir sem vom í 1. stigi þessa Framhald á 8. síðu. ||aíj* Eimskipafélag ísiands ADALFUNDUR Aöalfundur H.f. Eimskipafélags íslands veróur haldinn í fundarsalnum í húsi félagsins í Reykjavík fimmtudaginn 18. maí 1978, kl. 13,30. DAGSKRÁ: 1. Aðalfundarstörf samkvæmt 13. grein sam- þykkta félagsins. 2. Tillögur til breytinga á samþykktun félagsins samkvæmt 15. grein samþykktanna (ef tillögur koma fram). 3. önnur mál, löglega upp borin. Aögöngurniöar aó fundinum veröa afhentir hluthöfum og umboösmönnum hluthafa á skrif- stofu félagsins, Reykjavík 12-17. maí Reykjavík, 20. mars, 1978 STJÓRNIN.

x

Fylkir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.