Fylkir - 17.06.1978, Side 6
6
hYLKIR
IÞROTTIR IÞRi
ÍÞRÓTTIR ÍÞRi
ÍÞRÓTTIR ÍÞR<
I.B.Y. — BREIÐABLIK
S.l. midvikudag fór fram
leiku Í.B.V. og Breidabliks í 1.
deild. Eins og fyrri daginn voru
vedurgudirnir allt annad en
hlidhollir okkur. Austan rok og
rigning. íbv. spiladi á móti vindi
í fyrri hálfleik og voru mun
sprækari á móti rokinu, en
undan því. Þeir byrjudu med
krafti og oft voru Blikarnir
heppnir ad fá ekki á sig mark,
sér í lagi, er þeir björgudu
þrisvar á línu á 16. mín. 1 þeim
darradadansi sem þarna var,
meiddist Sveinn og vard ad
yfirgefa völlinn, en í hans stad
kom Óli inn sem tengilidur. En
á 33. mín. kom eina mark
leiksins. Tommi gaf góda send-
ingu inn í teiginn, þar sem
Óskar kom á fleygi ferd og
skalladi þad snöggt, ad mark-
madurinn rédi ekki vid knött-
inn, med þeim afleidingum ad
boltinn fór í markid. Gott hjá
Óskari.
ÍBV. byrjadi mjög vel í seinni
hálfleik og sést þad best á því ad
á 5. mín. vardi markv. Blikanna
mjög vel í tvígang frá Tomma
og Lása. Á 7. mín. skalladi
Fridfinnur rétt yfir, og á 10.
mín. var Kalli med hörkuskot,
en rétt framhjá. Lási var med
gott skot á 14. mín., en mark-
madur Breidabliks vardi mjög
vel.
Á 19. mín kom hættulegasta
færi Blikanna í leiknum, þegar
olafur Fridriksson átti hörku
skot, en rétt framhjá. Og einnig
er þeir áttu skot utan af kanti,
en í stöng og framhjá. Loka-
ordin átti svo Óskar á 43. mín.
er hann átti skot í slá.
í heild setti vedrid stórt strik í
reikninginn og einkenndist því
leikurinn af löngum spyrnum
og barningi um boltann úti á
velli. Einnig fannst mér okkar
menn óedlilega oft rangstædir.
Annars lýsa ord Sigga Gúm
gangi leiksins best er hann
sagdi ad þetta væri leikur hinna
glötudu tækifæra.
Besti madur lidsins var Ár-
sæll Sveinsson.
FASTEIGNA'
MARKAÐURINN
Nýr sölulisti vikulega.
Skrifstoía i Vestmannaejjum: \
Bárugötu 2. 2. hæö.
Viötalstimi: 15.30_10.00, þriöjud
— föstudaKa. Simi 1847.
Skrifst. i R\ik: Garðastræti 13.
YiðtaLstimi: 15.30—10.00. mánud.
Simi 13495.
JÓN HJALTASON, hrl.
f----------------------------------------------
/------------------------------------------\
Baráttuþing
ungra
sjálisíædismanna
__________________________________________/
S.l. laugardag héldu ungir Sjálfstædismenn á Sudurlandi
fund á Hellu, þar sem tekin voru til umrædu málaflokkar,
sem Alþingiskosningarnar munu snúast um. Ennfremur
voru mörg hagsmunamál kjördæmisins rædd.
Frambjódendur Sjálfstædisflokksins á Sudurlandi mættu
á fundinn og hvöttu fundarmenn til ad vinna ad sigri
Sjálfstædisflokksins í komandi kosningum.
Á fundinum voru eftirtaldar ályktanir samþykktar:
ÁLYKTUN UM SAMGÖNGUMÁL:
Vidreisnarstjórnin gerdi átak í varanlegri vegagerd undir
forystu Ingólfs Jónssonar. Sídan hafa þau mál nánast verid í
kyrrstödu.
Þad er löngu ordid tímabært, ad gert verdi stórátak í
varanlegri vegagerd og vid þad midad, ad lagt verdi
varanlegt slitlag á hringveginn á næstu 10 árum og
tengibrautir til þéttbýlisstada.
Ungir Sjálfstædismenn á Sudurlandi leggja áherslu á ad
þetta verkefni hafi forgang á svidi verklegra framkvæmda á
næstu árum og fjármögnun verdi tryggd med tekjum
ríkissjóds af umferdinni og framlögum úr Byggdasjódi.
Stærstu verkefnin í samgöngumálum Sudurlands er ad
byggd verdi brú yfir ölfusá vid Óseyrarnes og ad flug-
samgöngur Vestmannaeyja og Sudurlands Verdi bættar,
rekstur Herjólfs verdi tryggdur.
Ungir Sjálfstædismenn á Sudurlandi gera þá kröfu, ad nú
þegar verdi lagt varanlegt slitlag á Þorlákshafnarveg og
Þrengsli, enda er um mjög fjölfarna vegi ad ræda og ástand
þeirra óvidunandi.
Vegna hafnleysis frá Þorlákshöfn til Hafnar í Hornafirdi
hafa Sunnlendingar sérstödu í samgöngumálum. Þad er því
krafa ungra Sjálfstædismanna ad Sunnlendingar hafi
forgang í fjárveitingu til vegamála.
ÁLYKTUN UM EFNAHAGSMÁL:
Ungir sjálfstædismenná Sudurlandi telja ad beita verdi
öllum tiltækum rádum til ad kveda nidur verdbólguna á
næstu misserum. Medal þess sem gera þarf er:
1. Koma samningsgerd á vinnumarkadi í þad horf ad
ekki verdi verdbólgusprenging vid hverja samninga. Því
takmarki verdur best nád med samkomulagi verkalýds,
vinnuveitenda og ríkisvalds. Náist ekki slíkt samkomulag
verdur ad beita skattalegum adgerdum til ad hvetja adila
vinnumarkadarins til raunhæfra vinnubragda. Vísitölu-
bindingu launa verdur ad mida vid þjódhagsvísitölu í stad
vísitölu framfærslukostnadar svo ad tekid sé tillit til
raunverulegrar stödu þjódarbúsins.
2. Taka upp virka stjórnun heildareftirspurnar í
þjódfélaginu og nýta markadsformid á þeim svidum sem
þad er best fallid til ad ráda uppbyggingu þjódfélagsins. í
þessu sambandi má nefna:
Virka notkun verdjöfnunarsjóda.
Rétta gengisskráningu.
Frelsi til verdtryggingar fjárskuldbindinga og jákvæda
raunvexti.
Jafnan adgang atvinnugreina ad fjármagni.
Ennfremur verdur ad endurskoda alla starfsemi opin-
berra adila med þad fyrir augum ad hid opinbera gegni sínu
hlutverki fyrir fólkid í landinu. Draga þarf úr ríkisumsvifum
og beita ríkisfjármálum til þess ad jafna hagsveiflur og
minnka verdbólgu. Jafnframt því verdur ad stjórna
peningamálum þannig, ad hætt sé ad kynda verdbólgubálid
med taumlausri peningaprentun. Ungir sjálfstædismenn
benda á ad áform um gjaldmidilsbreytingu muni ekki draga
úr verdbólgunni án þess ad ödrum adgerdum sé jafnframt
beitt.
ÁLYKTUN UM UTANRÍKISMÁL:
Baráttuþing ungra sjálfstædismanna á Sudurlandi, haldid
á Hellu, laugardaginn 10. júní 1978, minnir á þá frum-
skyldu hverrar þjódar ad tryggja öryggi sitt, annad hvort af
eigin rammleik eda í samvinnu vid vinveittar þjódir.
Island hefur vegna Iegu sinnar mikla hernadarþýdingu.
Mikill og sívaxandi hernadarumsvif Sovétríkjanna í lofti og
á hafsvædunum umhverfis fsland sýna hættuna á ad ísland
lenti á rússnesku yfirrádasvædi ef íslandingar tækju ekki
þátt í varnarsamvinnu vestrænna ríkja og hefdu vidbúnad
til varna í landinu.
Sjálfstædisflokkurinn er eini flokkurinn, sem fylgir skýrri
og afdráttarlausri landvarnarstefnu. Hann adhyllist nána
samvinnu vid vestrænar vinaþjódir á svidi stjórnmála og
vidskipta og er ekki til vidtals um neinn afslátt frá þeirri
stefnu ad öryggi og sjálfstædi þjódarinnar skuli tryggt med
adild ad Atlandshafsbandalaginu og varnarsamvinnu vid
Bandaríkin.
Þeir kjósendur, sem vilja ad ísland skipi sér í sveit
vestrænna lýdrædisríkja og tryggi öryggi landsins med
varnarsamvinnu vid þessi ríki, kjósa því Sjálfstædis-
flokkinn.
Fái Alþýðubandalagid aukid fylgi verdur ný vinstri stjórn myndud, sem hefur það ad
megin markmidi ad reka varnarliðid á brott úr landinu