Fylkir - 01.06.2007, Side 1
ii
Nýirtímar
á traustum
grunni..!
59. árgangur
Vestmannaeyjum 1. júní 2007
4. tölublað
Sjávarútvegur er
fjölbreytt og krefjandi
framtíðaratvinnugrein
Einar Kristinn
Guðfinnsson
Sjávarútvegs-
ráðherra
Sjómennskan er einn
mikilvægasti hlekkur-
inn í keðju íslensks
efnahagslífs. Þarásér
stað feiknaleg verð-
mætasköpun sem
þjóðarbúið allt nýtur
góðs af. Til þessa
starfa þarf færasta
fólk - útsjónarsama
dugnaðarforka. Því
miður hafa bönd
mjög margra íslendinga við sæinn
trosnað verulega. Það er hvorki jafn
sjálfgefið að ungmenni sæki
sumarvinnu í sjávarútveginn né að
þau hafi yfir höfuð kost á því eins og
áður var. Þetta leggur okkur þar af
leiðandi auknar skyldur á herðar að
kynna störfin í greininni. Störfin eru
mjög mikilvæg og eiga að vera
eftirsótt. í þessu sambandi má minna
á að þeim sem fara til sjós líkar það vel
samkvæmt niðurstöðum könnunar
Capacent-Gallup sem kynntar voru á
Sjómannadaginn ífyrra.
Þar kom fram - og ástæða er til að
Sjómennskan er einn
mikih/ægasti hlekkur-
inn í keðju íslensks
efnahagslífs. Þar á sér
stað feiknaleg
verðmætasköpun sem
þjóðarbúið allt
nýtur góðs af.
halda því á lofti - að um áttatíu og
fimm af hundraði sjómanna kváðust
bæði ánægðirog stoltiraf starfi sínu.
Þetta er með því besta sem gerist í
viðlíka könnunum meðal starfsstétta.
Tveir þriðju hugðust vera til sjós
næstu tvö til fimm ár eða þaðan af
lengur og þrír af hverjum fjórum
höfðu verið á sjó í áratug eða meira.
Af þessu er augljóst að þeir sem
gjörst þekkja til, telja sjómennsku
vera gott starf. Höfum það einnig
ávallt í huga að sjávarútvegurinn
færði okkur frá örbirgð til allsnægta.
Það gerist ekki af tilviljun. Þegar rætt
er um stefnumótun sem snertir
sjávarútveginn verður ætíð að hafa í
huga að hann þarf svigrúm til athafna
til þess að standast öðrum
atvinnugreinum snúning í baráttunni
um fólk og fjármagn. Hann þarf að
sýna þá arðsemi sem tryggir honum
aðgang að ódýru og hagkvæmu
lánsfé og hann þarf að vera
samkeppnisfær á komandi árum um
besta fólkið til að vera sem fyrr
starfsvettvangur þess afreksfólks sem
staðið hefur í stafni sjávarútvegsins -
og þar með þjóðarskútunnar.
Sjávarútvegurinn er hátæknigrein. f
honum felst mikil þekkingarstarfsemi
sem krefst menntunar í samræmi við
það og atgervis okkar færasta fólks.
Nú sem fýrr ersjávarútvegurfjölbreytt
og krefjandi framtíðaratvinnugrein
sem ungt fólk á mikið erindi í. Með
þetta í farteskinu göngum við
bjartsýn og samhent fram veginn,
landi og þjóð til heilla. Til hamingju
með daginn.
Til hamingju með
daginn sjómenn
aí mínum huga hefur
Sjómannadagurinn
alltaf verið mesti
hátíðisdagur ársins.
Þá er fagnað góðu
gengi okkar manna í
hættu mesta vinnu-
umhverfi landsins og
ÁrniJohnsen minnst þeirra sem
Aiþingismaður hafa Qrðið að |úta f
lægra haldi í baráttunni við ægi.
Þjóðhátiðin er mikilvæg í okkar
Eyjasamfélagi, en þar er tóm gleði og
gaman og lífið leikur við.
Ugglaust hefur það verið léttir í gegn
um tíðina að geta fagnað Sjómanna-
degi vegna þess að við sem höfum
alist upp og búið í veiðimanna-
samfélaginu höfum örugglega andað
léttar þegar lokadagurinn 11. maí
rann upp. Allan veturinn hafði
ákveðinn ótti búið í brjóstinu, ótti við
mannskaða á sjó og alltaf var það
ævintýralega spennandi að sjá
vertíðarbátana koma til hafnar að
kvöldi dags. Það var eins og sigur að
sjá hvern masturstopp koma fyrir
Klettsnefið, því á masturstoppunum
þekktum við bryggjupeyjarnir bátana.
Sífellt á verði í
öryggismálum sjómanna
Ennersjórinn samurviðsig, enn þarf
sífellt að vera á verði, en menn hafa
sem beturfer lagt sívaxandi áherslur á
öryggi sjómanna um árabil. Eitt að því
sem mér sjálfum þykir vænst um af
öllum þeim málum sem ég hef komið
að á undanförnum áratugum er starf
í Öryggismálanefnd sjómanna sem
sett var á laggirnar í tengslum við
Alþingi. Þar unnum við Pétur
sjómaður og fleiri góðir menn að
byltingarkenndum tillögum um átak í
öryggismálum sjómanna og það var
hrundið fram yfir 40 verkþáttum í
þeim efnum sem hafa skilað
stórkostlegum árangri, fækkun
sjóslysa og mannskaða.
En við megum aldrei slaka á klónni í
þessum efum og til að mynda þarf nú
að hnykkja á betri gerfihnatta-
þjónustu vegna öryggismála, betri
þjónustu í fjarskiptum við skip og
betri þjónustu í tæknibúnaði til
björgunar hvort sem það er
tæknibúnaðurá landi, björgunarskip,
þyrlureða flugvélar.
Þakkirfyrir mikinn
stuðning sjómanna
f kjölfar kosninga vil ég þakka
sjómönnum mikinn stuðning og
saman þurfum við að vinna að
framgangi hagsmunamála sjómanna.
Þar þurfa markmiðin að vera skýr og
baklandið klárt vegna þess að
lenskan í þjóðfélaginu er allt önnur en
að sinna til að mynda málefnum
sjómanna, kerfisbúskapurinn í
Ugglaust hefur það
verið léttir í gegn um
tíðina að geta fagnað
Sjómannadegi vegna
þess að við sem höfum
alist upp og búið í
veiðimannasamfélaginu
höfum örugglega
andað léttar þegar
lokadagurinn 11. maí
rann upp. Allan
veturinn hafði
ákveðinn ótti búið í
brjóstinu, ótti við
mannskaða á sjó og
alltaf var það
ævintýralega
spennandi að sjá
vertíðarbátana koma til
hafnar að kvöldi dags.
stjórnkerfi landsins hrópar sífellt á
meiri umsvif, meir afskipti ,meiri
fyrirhyggju. Þessu þurfum við lands-
byggðarmenn að sporna gegn og
það hefst aðeins með vinnu, vinnu,
vinnu og meiri vinriu.
Hér í Eyjum skipti það miklu máli fýrir
marga sjómenn og fjölskyldur þeirra
og útgerðir að skerðing á útflutning
fersks fisks verður afnumin í haust.
Tveir þriðju af þeirri skerðingu hafa
bitnað á útgerðarmönnum og einn
þriðji á sjómönnum. Það er um miklar
upphæðir að ræða, skerðing sem
engin rök voru fyrir.
Endurnýjun bátaflotans
er mikið gleðiefni
Þá fögnum við innilega magnaðri
endurnýjun bátaflotans í Eyjum,
lífsankeris Eyjanna. Framtak og
metnaður útgerðarmanna okkar er
stórkostlegur. Það er gott dæmi um
sýndarmennskuna í mörgu í þjóð-
félaginu hvernig ráðist hefur verið á
útgerðarmenn fyrir þeirra störf, en
égv minnist þess ekki að nokkur
fjölmiðill hafi minnst á það þegar
Magnús Kristinsson tók fjármagn
beint úr viðskiptum sínum óháð
útgerðinni og keypti nýtt fiskiskip
sem væntanlegt er í haust. Það er
undarlegt eftirtektarleysi að fjölmiðlar
skyldu ekki sjá þetta. Góð skip eru
heimili og starfsvettvangur sjómanna
að stórum hluta og þess vegna skiptir
svo miklu máli að vinna fram á
veginn.
Til hamingju með daginn sjómenn,
megið þið eiga góða ferð í hverri
sjóferð og góða heimkomu. Megi lífið
leika við ykkur eins og kostur er á
aðstæðum hafsins. Baráttukveðjur í
starfi og leik.