Fylkir - 23.12.2007, Síða 13
FYLKIR - jólin 2007
13
Vestmannaey eftir að hún var lengd og breytt í frystitogara.
því þrátt fyrir þessa erfiðleika og
óvæntu áföll í Eyjum í upphafi
útgerðarsögu Vestmannaeyjar VE
54 þá einkennist útgerðarsaga
skipsins af lánsemi, farsæld og
fengsæld.
Vestmannaey gat ekki lagt afla
sinn upp í Eyjum, eins og til stóð,
fyrstu mánuðina en það hamlaði
þó ekki rekstrinum. Fyrsta löndun
Vestmannaeyjar í Eyjum var 4.
september 1974, einu og hálfu ári
síðar en ráðgert var og síðan þá
hefur heimahöfnin og lön-
dunarstaðurinn f flestum tilfellum
verið Vestmannaeyjar.
Breytingar á eignarhaldi
Breytingar urðu á eignarhaldi
Bergs Hugins ehf árið 1974 er
Huginn hf. seldi hlut sinn í
fyrirtækinu en á svipuðum tíma
keypti Eyjólfur Pétursson,
þáverandi skipstjóri á skipinu,
hlut í félaginu.
í upphafi árs 1992 sameinaðist
Bergur Huginn ehf. ísfélagi
Vestmannaeyja en sleit sig á ný út
úr þeirri sameiningu átta
mánuðum síðar og hélt áfram
útgerð undir nafni Bergs Hugins
ehf. Frá þeim tíma var eignarhald
félagsins í höndum Kristins
Pálssonar og fjölskyldu en nú er
félagið í eigu bræðranna
Magnúsar og Birkis Kristinssona
og er eignarhlutur Magnúsar um
85%.
Höfuðstöðvarnar á Geirseyri
Höfuðstöðvar Bergs Hugins ehf.,
skrifstofa, veiðarfærahús og verk-
stæði voru frá upphafi á Geirseyri
en árið 1993 keypti fyrirtækið
skrifstofuhúsnæði Herjólfs á
Báskersbryggju og hefur haft
aðsetur sitt þar og nefnt húsið
Geirseyri þannig að útgerð
Vestmannaeyjar hefur nær alla tíð
verið stýrt frá Geirseyri.
ísfisktogari sem breytt
var í frystitogara
Vestmannaey VE 54 var upphafle-
ga hönnuð sem ísfisktogari og var
gerð út sem slík til ársins 1987 en
þá fór skipið í endurbyggingu og
breytingar í Póllandi þar sem því
var þreytt í frystitogara. Árið 1996
var skipt um Ijósavél í skipinu og
árið 1997 var allur spilbúnaður
endurnýjaður. Síðustu stóru
endurbætur á Vestmannaey voru
gerðar árið 2002 en þá var
milidekk endurnýjað og settur í
skipið veltitankur.
Vestmannaey kom síðan úr sinni
síðustu veiðiferð á vegum Bergs
Hugins ehf. í desember 2006 en
eftir það var skipinu lagt enda
smíði á nýju skipi fyrir útgerðina
komin á lokastig.
Nýtt skip Bergs Hugins ehf., sem
smíðað var í Póllandi og kom til
hafnar í Eyjum 15. mars á þessu
ári fékk nafnið Vestmannaey og
tekur því við að skrifa annann
kaflann í útgerðarsögu
Vestmannaeyjar VE.
20 milljarða aflaverðmæti
Á þeim 34 árum sem Vest-
mannaey var gerð út má gera ráð
fyrir að hún hafi aflað nálægt
140.000 tonnum og aflaverð-
mætið hafi numið rúmlega 20
milljörðum króna. Ljóst er því að
útgerð Vestmannaeyjar skilaði
umtalsverðum fjármunum inn í
samfélagið í Vestmannaeyjum
þau 34 ár sem skipið var gert út
frá Eyjum.
Skipstjórar
Eyjólfur Pétursson var skipstjóri
frá upphafi til ársins 1991. 1. stýri-
maður í byrjun var Þorleifur
Björnsson og yfirvélstjóri í
upphafi var Örn Aanes. Aðrir sem
gengdu stöðu skipstjóra á
Vestmannaey voru Sverrir
Gunnlaugsson, Snæbjörn Tryggvi
Össurarson og Birgir Þór
Sverrisson en hann var skipstjóri á
skipinu frá 1993 þar til því var lagt
í desemþer á síðasta ári, en Birgir
Þór hafði þá verið á skipinu í tæp
30 ár, lengst.
Það var svo Jón Eyjólfsson, fyrrum
skipstjóri á Herjólfi, sem var skip-
stjóri í síðustu ferð
Vestmannaeyjar frá Eyjum er siglt
var til þaðan áleiðis til stranda
Argentínu 22. október sl.
Eftirminnilegir
áhafnarmeðlimir
Breytingar á mannskap voru ekki
tíðar á Vestmannaey og störfuðu
margir áhafnameðlimir áratugum
saman á skipinu. Meðal þeirra
sem nefna má eru Guðmundur
Alfreðsson sem var vélstjóri þar
frá því á vordögum 1973 til ársins
1985 en þá tók þá við stöðu
útgerðarstjóra Bergs Hugins og
gegnir henni enn. Þorvaldur
Þorvaldsson var þar frá árinu
1978, að undanskildum tveimur
árum, þar til skipinu var lagt.
Bjössi Þorleifs, en við hann var
stjórnborðs gilsinn á
Vestmannaey kenndur og
kallaður Bjössagils. Kristján
Kristjánsson vélstjóri, nú Anna
Kristjáns, Dáni kveikur, Baldvin
kokkur og Halldór Waagfjörð, svo
að nokkrir séu nefndir, eru meðal
eftirminnilegra nafna úr áhöfn
Vestmannaeyjar gegnum árin.
Hjónabönd hafa fæðst um borð í
Vestmannaey og má í því sam-
bandi nefna að systurnar Sigrún
og Snæbjörg Logadætur, sem
báðar voru um árabil í áhöfn
Vestmannaeyjar, kynntust eigin-
mönnum sínum Þorsteini
Waagfjörð og Sigurði Steinari
Konráðssyni, sem einnig voru í
áhöfn Vestmannaeyjar, um borð í
skipinu.
Tangó í takt við öldur
Argentínustrandar
Það er því öruggt að Vest-
mannaey VE geymir margar fjöl-
breyttar sögur og minningar sem
sumar verða trúlega aldrei
sagðar. Þær minningar geymast
um borð á suðrænum slóðum og
munu halda góðum anda áfram í
skipinu.
Vestmannaey VE 54 hefur stigið
síðasta dansinn við ránardætur
norðurhafa en búast má við að
hún muni á næstu árum stíga
tangóinn í takt við öldur
Argentínustrandar af sömu snilld
og hún steig valsinn við Ægi á
fslandsmiðum í nærri 35 ár.
Fyrst og fremst stoltur
- segir Magnús Kristinsson um samleið sína með Vestmannaey í 35 ár
Magnús Kristins-
son, útvegsbóndi,
hefur lengst af
verið framkvæm-
dastjóri Bergs
Hugins ehf. Hann
hefur verið viðloð-
andi útgerðina frá
Grímur Gíslason upphafi enda faðir
greinarhöfundur hans, Kristinn
Pálsson, eigandi
Bergs hf. annars stofnenda
fyrirtækisins. Magnús kom að
undirbúningi að smíðinni, var i
áhöfninni sem sigldi því heim og
starfaði á skrifstofu fyrirtækisins
þar til hann tók við framkvæm-
dastjórninni. Hann fylgdi því
Vestmannaey allan þann tíma sem
hún var í eigu útgerðar Bergs
Hugins ehf.
Farsælt og fengsælt skip
"Ég er fyrst og fremst stoltur að
hafa fengið tækifæri til að taka
þátt í þessu Vestmannaeyjar
ævintýri frá upphafi til enda, því
auðvitað hefur þetta verið
ákveðið ævintýri. Okkur hefur
gengið vel og skipið var alla tíð
farsælt og fengsælt. Þó að auðvi-
tað hafi orðið slys um borð þá
misstum við aldrei mann öll þau
34 ár sem skipið var í rekstri okkar
og það eitt er mikið lán og gæfa",
segir Magnús um þann tíma sem
hann hefur lifað með
Vestmannaey VE.
Glaðbeittur útvegsbóndi, Magnús Kristinsson, við heimkomu b/v
Vestmannaey VE 444 í mars á þessu ári.
"Ég fékk tækifæri til að feta alla
brautina með þessu happaskipi.
Tók þátt í undirbúningi að
smíðinni, með karli föður mínum.
Fékk tækifæri til að vera í Japan
þegar skipið var í smíðum. Var í
áhöfninni sem sigldi
Vestmannaey heim frá Japan. Hóf
síðan störf á skrifstofunni með
pabba, þegar reksturinn hófst, og
tók við framkvæmdastjórninni
árið 1978. Ég kom síðan inn sem
eigandi og er nú stærsti
eigandinn og enn við stjórnvölinn
hjá Berg Huginn ehf."
Alltaf lagt upp úr því
að halda skipinu vel við
"Vestmannaey VE 54 var happask-
ip sem fór vel með áhöfn og ski-
laði eigendum sínum vel. Margir
áhafnarmeðlimir störfuðu ára-
tugum saman á skipinu og við
stjórnendurnir og eigendur
lögðum alltaf mikið upp úr því að
halda skipinu vel við, enda var
það í ótrúlega góðu ásigkomulagi
þegar við lögðum því. Þó að skip-
ið hafði farið tvisvar í miklar
endurbætur, á þessum tíma sem
við gerðum það út, þá var það
hinn trausti grunnur sem skipti
máli. Góð smíði og vönduð vin-
nubrögð Japananna í upphafi
lögðu grunninn. Það er því alveg
Ijóst miðað við hvernig þessum
japönsk smíðuðu skipum hefur
farnast hér gegnum árin að sú
ákvörðun að láta smíða þau í
Japan á sínum tíma var framsýn
og góð," segir Magnús.
Gott að kveðja skipið
í góðu standi
"Þegar við seldum Vestmannaey
nú í haust til Argentínu þá hafði
skipið legið við bryggju og ekki
verið hreyft frá því í desember
2006, eða í 10 mánuði.
Argentínumennirnir sem komu
að skoða skipið urðu gríðarlega
hrifnir af því og eiginlega alveg
undrandi á því í hversu góðu
ásigkomulagi það var. Það sem
mér fannst þó merkilegast var að
þegar samningar voru frágengnir
og skipinu siglt af stað til
Argentínu þá var bara öllu startað
í gang án nokkurra vandræða,
rétt eins og skipið hefði komið úr
túr deginum áður. Það segir ef til
vill mest um í hversu góðu standi
Vestmannaey VE 54 var í nærri 35
árum frá því henni var siglt af stað
frá Japan í sína fyrstu ferð. Ég var
ákaflega stoltur að verða vitni að
þessu og að geta kvatt skipið í
svona góðu standi eftir áratuga
þjónustu í okkar þágu.
Það er því fyrst og fremst stolt
sem kemur í huga minn þegar ég
hugsa um þessa 35 ára samleið
Vestmannaeyjar VE 54 og Bergs
Hugins ehf. og aðkomu mína að
þeirri sögu," segir Magnús
Kristinsson, útvegsbóndi.