Fylkir - 23.12.2007, Page 14
FYLKIR - jólin 2007
Barnaskóli Vestmannaeyja eins og hann leit útþegar greinarhöfundur stundaði nám við skólann.
Minningarbrot úr barnaskóla
- einkum um Þorvald Sæmundsson -
Alfreð Eyjólfsson með bekksinn, 1. C, ískemmtigöngu í Herjólfsdal
skólaárið 1956-57. Það er „hlaupið ískarðið". — Höfundur treystir
sér ekki til að þekkja alla krakkana á myndinni, en þó má sjá
Guðmund Sigfússon, Ólaf Oddgeir Sigurðsson, Eygló Ingólfsdóttur
og Sigrúnu Sigurjónsdóttur. Kannski er þessi með húfuna
greinarhöfundur?
Sl. sumar lést einn
eftirminnilegasti
kennari minn úr
barnaskóla, Þor-
valdur Sæmunds-
son. Hann kenndi
mér aðeins einn
vetur, 1961-1962,
þegar ég var á
síðasta vetri í
Barnaskólanum, i 6.
bekk. Kennsla hans,
framkoma og viðkynning var slík
að ekki líður úr minni.
Nokkrir nemendur Þorvalds urðu
til að minnast hans á útfarardegi,
einkum þeir sem höfðu haft hann
sem aðalkennara alla sex veturna í
barnaskóla, eins og þá var titt.
Gunnhildur og Katrín.
Gunnhildur Hrólfsdóttir og Katrín
Gunnarsdóttir lýstu kennara
Greinarhöfundur 12 ára,
í 6. C hjá Þorvaldi Sæmundssyni.
sínum m.a. svo í minningargrein á
útfarardegi, 23. júlí 2007, en
Þorvaldar var aðalkennari þeirra
1955-1960 í barnaskólanum í
Vestmannaeyjum:
„Þorvaldur var vandaður maður
og mikið prúðmenni, hægur í fasi
og seinreittur til reiði ... Hann var
hávaxinn, grannur og yfirveg-
aður, virðulegur kennari sem
mætti alltaf í jakkafötum, trúr sínu
starfi og festa hans og heilindi var
okkur Ijós. Hann brýndi fyrir okkur
að fara vel með skólabækurnar og
við munum stílabækurnar í
þráðbeinum stöflum á kennara-
borðinu. Falleg rithönd hans Ifk-
tist letrinu í forskriftarbókunum
sem við lærðum að skrifa eftir. ...
f hugum okkar er þakklæti til
Þorvaldar fyrir þá uppfræðslu sem
hann veitti okkur og hefur reynst
okkur gott veganesti í lífinu."
Einkunnabókin. Á bakhliðinni
er auglýsing frá Bókaverzlun
Þorsteins Johnsonar. Glöggir
menn segjast þekkja rithönd
Steingríms Benediktssonar á
bókinni.
Þetta eru fögur orð og eftirmæli.
Gísli Már
Annar nemandi, Gísli Már
Gíslason, sem hafði Þorvald sem
aðalkennara öll barnaskólaár sín,
segir í niðurlagi minningargreinar
sinnar:
„Þorvaldur gaf mér ómetanlegt
andlegt nesti fyrir lífsvegferðina.
Fyrir það stend ég í ævarandi
þakkarskuld við hann."
Kennaranum að starfi lýsir Gísli
svo:
„Þorvaldur var frábær kennari og
honum tókst að Ijúka upp fyrir
okkur áður ókunnum heimum
íslenzkrar sögu og bókmennta.
Við lásum fslandssögu Jónasar frá
Hriflu sem var nú svona og svona
undir tönn, en Þorvaldur fór langt
út fyrir efnið og gæddi það lífi
með ótal sögum sem ekki voru í
bókunum. Sem dæmi má nefna
frásagnir af Dithmar Blefken og
baráttu Arngríms lærða og
Guðbrands Hólabiskups við
kauða og aðra keimlíka skríbenta
í útlöndum. Ekki vafðist heldur
fyrir Þorvaldi að varpa Ijóma á
stærðfræðina eða málfræði og
stafsetningu - og honum til
heiðurs skrifa ég þessi minningar-
orð með eins mörgum zetum og
ég get."
Og Gísli Már, sem síðar varð raf-
magnsverkfræðingur, á fleiri
góðar minningar:
„í skólanum var kennd svo-
nefnd átthagafræði. í tengslum
við hana gerðum við vinnubók,
lausblaða í bláum heftum. Til að
minnast 50 ára afmælis
Landssíma fslands árið 1956 lét
Þorvaldur okkur teikna loftnet
uppi á Klifi og rafsegulbylgjur
milli lands og Eyja. Sú stund líður
mér aldrei úr minni, þegar hann
útlistaði fyrir okkur að það væri
ekki hljóðið sem bærist frá
Reykjavík til Vestmannaeyja,
heldur væri hljóðinu fyrst breytt í
rafmagn og svo í útvarpsbylgjur
sem bærust um loftin blá til okkar
í Eyjum þar sem þeim væri breytt
til baka í rafstraum og svo í hljóð
sem við skynjuðum. Ég sat og
hlustaði agndofa. Þetta get ég
aldrei skilið, hugsaði ég."
Uppfræðingafélagið. Nýr kennari á hverju ári: Frá vinstri: Alfreð Eyjólfsson, Páll Steingrímsson,
Ágústa Ágústsdóttir, Eiríkur Guðnason, Ingólfur Þórarinsson, Lýður Brynjólfsson og Þorvaldur
Sæmundsson. Myndirnar eru úr Kennaratali frá því um 1960.
Helgi
Bernódusson
greinarhöfundur