Fylkir


Fylkir - 23.12.2007, Qupperneq 14

Fylkir - 23.12.2007, Qupperneq 14
FYLKIR - jólin 2007 Barnaskóli Vestmannaeyja eins og hann leit útþegar greinarhöfundur stundaði nám við skólann. Minningarbrot úr barnaskóla - einkum um Þorvald Sæmundsson - Alfreð Eyjólfsson með bekksinn, 1. C, ískemmtigöngu í Herjólfsdal skólaárið 1956-57. Það er „hlaupið ískarðið". — Höfundur treystir sér ekki til að þekkja alla krakkana á myndinni, en þó má sjá Guðmund Sigfússon, Ólaf Oddgeir Sigurðsson, Eygló Ingólfsdóttur og Sigrúnu Sigurjónsdóttur. Kannski er þessi með húfuna greinarhöfundur? Sl. sumar lést einn eftirminnilegasti kennari minn úr barnaskóla, Þor- valdur Sæmunds- son. Hann kenndi mér aðeins einn vetur, 1961-1962, þegar ég var á síðasta vetri í Barnaskólanum, i 6. bekk. Kennsla hans, framkoma og viðkynning var slík að ekki líður úr minni. Nokkrir nemendur Þorvalds urðu til að minnast hans á útfarardegi, einkum þeir sem höfðu haft hann sem aðalkennara alla sex veturna í barnaskóla, eins og þá var titt. Gunnhildur og Katrín. Gunnhildur Hrólfsdóttir og Katrín Gunnarsdóttir lýstu kennara Greinarhöfundur 12 ára, í 6. C hjá Þorvaldi Sæmundssyni. sínum m.a. svo í minningargrein á útfarardegi, 23. júlí 2007, en Þorvaldar var aðalkennari þeirra 1955-1960 í barnaskólanum í Vestmannaeyjum: „Þorvaldur var vandaður maður og mikið prúðmenni, hægur í fasi og seinreittur til reiði ... Hann var hávaxinn, grannur og yfirveg- aður, virðulegur kennari sem mætti alltaf í jakkafötum, trúr sínu starfi og festa hans og heilindi var okkur Ijós. Hann brýndi fyrir okkur að fara vel með skólabækurnar og við munum stílabækurnar í þráðbeinum stöflum á kennara- borðinu. Falleg rithönd hans Ifk- tist letrinu í forskriftarbókunum sem við lærðum að skrifa eftir. ... f hugum okkar er þakklæti til Þorvaldar fyrir þá uppfræðslu sem hann veitti okkur og hefur reynst okkur gott veganesti í lífinu." Einkunnabókin. Á bakhliðinni er auglýsing frá Bókaverzlun Þorsteins Johnsonar. Glöggir menn segjast þekkja rithönd Steingríms Benediktssonar á bókinni. Þetta eru fögur orð og eftirmæli. Gísli Már Annar nemandi, Gísli Már Gíslason, sem hafði Þorvald sem aðalkennara öll barnaskólaár sín, segir í niðurlagi minningargreinar sinnar: „Þorvaldur gaf mér ómetanlegt andlegt nesti fyrir lífsvegferðina. Fyrir það stend ég í ævarandi þakkarskuld við hann." Kennaranum að starfi lýsir Gísli svo: „Þorvaldur var frábær kennari og honum tókst að Ijúka upp fyrir okkur áður ókunnum heimum íslenzkrar sögu og bókmennta. Við lásum fslandssögu Jónasar frá Hriflu sem var nú svona og svona undir tönn, en Þorvaldur fór langt út fyrir efnið og gæddi það lífi með ótal sögum sem ekki voru í bókunum. Sem dæmi má nefna frásagnir af Dithmar Blefken og baráttu Arngríms lærða og Guðbrands Hólabiskups við kauða og aðra keimlíka skríbenta í útlöndum. Ekki vafðist heldur fyrir Þorvaldi að varpa Ijóma á stærðfræðina eða málfræði og stafsetningu - og honum til heiðurs skrifa ég þessi minningar- orð með eins mörgum zetum og ég get." Og Gísli Már, sem síðar varð raf- magnsverkfræðingur, á fleiri góðar minningar: „í skólanum var kennd svo- nefnd átthagafræði. í tengslum við hana gerðum við vinnubók, lausblaða í bláum heftum. Til að minnast 50 ára afmælis Landssíma fslands árið 1956 lét Þorvaldur okkur teikna loftnet uppi á Klifi og rafsegulbylgjur milli lands og Eyja. Sú stund líður mér aldrei úr minni, þegar hann útlistaði fyrir okkur að það væri ekki hljóðið sem bærist frá Reykjavík til Vestmannaeyja, heldur væri hljóðinu fyrst breytt í rafmagn og svo í útvarpsbylgjur sem bærust um loftin blá til okkar í Eyjum þar sem þeim væri breytt til baka í rafstraum og svo í hljóð sem við skynjuðum. Ég sat og hlustaði agndofa. Þetta get ég aldrei skilið, hugsaði ég." Uppfræðingafélagið. Nýr kennari á hverju ári: Frá vinstri: Alfreð Eyjólfsson, Páll Steingrímsson, Ágústa Ágústsdóttir, Eiríkur Guðnason, Ingólfur Þórarinsson, Lýður Brynjólfsson og Þorvaldur Sæmundsson. Myndirnar eru úr Kennaratali frá því um 1960. Helgi Bernódusson greinarhöfundur

x

Fylkir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.