Skátablaðið - 01.04.1953, Blaðsíða 1
1. TBL. XIX. ÁRG. RITSTJÓRI:
REYKJAVÍK APRÍL 1953 TRYGGVI KRISTJANSSON
SIGMUNDUR R. FINNSSON:
BM BRÉFI FMÁ
ÁSTMALÍB
Ég sat skátamótið í Sydney (The Pan-
Pacific Jamboree), sem stóð yfir dagana
29. desember 1952 til 9. janúar 1953, eins og
ákveðið var áður en ég fór að heiman. Á
Wilson heiðrar islenzka þatttakandann á mót-
inu í Ástraliu.
mótinu voru ca. 11.000 skátar og var ég
eini íslendingurinn, þar sem Ásbjörn hætti
við að koma á seinustu stundu. Hlaut ég
alla kosti og galla þess að vera einn frá
okkar gamla kalda og fjarlæga landi. Blöð-
unum tókst á mjög skömmum tíma að gera
mig að mjög „athyglisverðri“ persónu í
augum Ástralíubúa.
Voru alltaf að birtast klausur og viðtöl
við mig og jafnvel viðtöl, sem aldrei áttu
sér stað, — en slíkt er víst algeng blaða-
mennska.
í skrúðgöngu um aðal götur borgarinnar
bar ég íslenzka fánann, og sýndu þeir mér
og landi mínu þann heiður að hafa hann
fremstan gestaþjóðanna (næstan á eftir
hljómsveitinni). Eins gekk ég með fánann í
fararbroddi við opinbera setningu mótsins.
Ég talaði tvisvar í útvarp gegum tvær stöðv-
ar og að síðustu „hellti ég upp á könnuna"
með því að syngja tvö íslenzk lög við loka-
varðeldinn, en þar voru samankomnir um