Skátablaðið - 01.01.1959, Qupperneq 15
Frá B.l.§.
Nýlega hefur borizt bréf frá Ameríska
kvenskátabandalaginu, þar sem það býður
2 ísl. skátastúlkum til „Our Cabana“, sem
er alþjóðaskóli kvenskáta í Mexico.
Tími: Júlí 1960. (Nánar ákveðið síðar).
Aldur: 17—18i/í, árs.
Kostnaður: Juliette Low sjóðurinn greið-
ir allan ferðakostnað frá heimahöfn og til
baka heim ásamt 3 vikna dvöl á „Our Ca-
bana“. Vasapeninga og önnur einkaútgjöld,
svo og mat og gistingu á meðan á ferðalag-
inu stendur, greiðist úr eigin vasa.
Einnig hefur borist bréf frá sama banda-
lagi, þar sem það býður 4 íslenzkum skáta-
stúlkum til Bandaríkjanna sumarið 1959.
Aldur: 16—19 ára.
Tími: 15. júní til 1. sept.
Tilgangur: Að ferðast um og kynnast
bandarískum skátastúlkum, og dvelja í
skátabúðum þeirra og heimilum. Þess skal
getið, að 5 önnur lönd innan Alþjóðabanda-
lagsins hafa fengið sams konar boð, og
munu þessar skátastúlkur dvelja saman í
boði bandarísku skátastúlknanna.
Kostnaður: Juliette Low sjóður banda-
rísku kvenskátanna greiðir allan ferða-
kostnað frá heimahöfn og til baka aftur.
Ennfremur dvalarkostnað, innanlandsferð-
ir í Bandaríkjunum og líftryggingu. Gest-
irnir verða aðeins að sjá sér fyrir vasapen-
ingum og greiða væntanlegan hótelkostn-
að og fæði meðan á aðalferðum stendur.
Skátastúlkur, sem hafa áhuga á þessu, mega
ganga frá því vísu, að sett verða viss skil-
yrði af hálfu B.Í.S. til þátttöku. Umsókn-
arfrestur verður ákveðinn síðar.
Fjórum kvenskátaforingjum frá hverju
lancli innan Alþjóðabandalagsins er boðið
að taka þátt í foringjafundi, sem haldinn
verður í Finnlandi í sumar.
Tími: 7. júlí til 17. júlí.
Staður: Vierumaki, 155 km norðaustur
af Helsingfors.
Mótsgjald: 6500,00 finnsk mörk, en
3500,00 til viðbótar fyrir þá, sem óska að
búa í húsi á meðan á mótinu stendur (ann-
ars geta þeir sem vilja búið í tjöldum).
Vikudvöl hjá finnskum skátum fyrir eða
eftir mót, fyrir þá, sem þess óska.
Verkefni: Umræðufundir um ýmis nauð-
synleg skátamál, heimsóknir í skátatjald-
búðir, heimsóknir til bæklaðra skáta og
skáta á berklahælum. Varðeldar og ferða-
!ög.
Áhugaflokkar: 1) Æfingar í að nota átta-
vita og landabréf. 2) Tjaldbúðatækni. 3)
Fönclur. 4) Tónlist og leiklist. 5) Þjóðdans-
ar. 6) Nýtízku finnsk leikfimi.
Ferðalög: Fjórar mismunandi ferðir, sem
þátttakendur geta valið um.
Þar sem boð þetta liefur af einhverri
vangá ekki borizt í hendur stjórnar B.Í.S.
fyrr en núna fyrir fáeinum dögum, en um-
sóknarfrestur finnsku skátana settur 1.
apríl verður að sækja um þetta mót strax.
I 1
SKÁTABLAÐIÐ