Skátablaðið - 01.01.1959, Blaðsíða 23
Reyíiclu sfálí
Kanínan
EFNI: 60 gr. af þykku ullargarni, gráu eða
hvítu, smá fílt-afgangar, helzt svartir, í eyru,
nef og augu, rautt silkiband og pappi. Kanínan
er 11,5 cm há.
líoltarnir, eða hniklarnir, eru búnir til svona:
Klippið tvö jafnstór pappalok og gerið gat i
miðjuna. Fyrir búkinn eiga lokin að vera ca.
10 cm í þvermál, fyrir liausinn 8,5, fyrir trýnið
og skottið 4 cm. Gatið á miðju lokinu á að
vera í þvermál: 4,5 cm á því stærsta, 3 cm á því
næsta og 1,5 cm á því minnsta.
Klippið fyrir búkinn 20 sinnum 3,5 m a£
garninu. Leggið svo stærstu lokin saman, leggið
saman garnið og vefjið því svo þétt utan um
lokið. Klippið svo garnið í sundur í kantinn,
en heftið það vel saman í miðjunni, takið svo
pappann undan og klippið boltann vel til,
svo að hann verði vel hnöttóttur.
Fyrir hausinn þarf 10 sinnum 3,5 m af garni.
í trýnið og skottið 4 sinnum 1 m. Þessir boltar
eru búnir til alveg eins og sá fyrsti. Saumið nú
einn af litlu Itoltunum við þann sem á að vera
hausinn, svo að verði úr trýni og annan lítinn
við búkinn, svo að úr verði skott. Festið síðan
haus og skrokk saman. Svo á að klippa úr fílt-
inu augu, eyru og í trýnið. Þetta saumazt síðan
allt á. Og að síðustu er bundið silkiband nm
hálsinn. Ef þetta heppnast vel, er þetta skemmti-
legasta leikfang handa litlu systkinunum.
jffver víll skriíast á?
Mrs. Virginia Smith (32 ára, á 8 ára dóttur),
Box 1213, State St. Station, Huntington Park,
California, U.S.A.
Miss Barbara Duncan (18 ára), 4. Arnprior
Street, Glasgow S. 5. — Hún er ljósálfaforingi
og hefur áhuga fyrir bókum, grammófónplötum,
frímerkjum og póstkortum.
Miss Penlope Saint (17 ára), 30. Swinburne
Road, Rochamton, London S.W. 15.
Miss Josephine Taylor, 25. Mill Lane, Lis-
card, Wallasey, Cheshire, England.
Miss Maigull Appelgren (16 ára), Skothus-
gatan O, Museet, Vasa, Finland.
Miss Sandra Jones (15 ára), 141 Argyle Road
Ealing, London W. 13, England.
l’hilip Baldwin, 150 Oakbank Road, Bakers-
field, California, U.S.A. — Hann hefur áhuga á
íþróttum, skátastarfi og músík.
Joe Marentic, 701 Betula St., Joliet Illinois,
U.S.A. — Joe er 13 ára og hefur áhuga á íþrótt-
um, skátastarfi og stjörnufræði.
Dieter Benson (14 ára), 5075 Miller Road,
Lansing, Michigan, U.S.A.
Josef Piller, (13 b) Freising-Vötting, Giggen-
hauserstrasse 5, uber, Múnchen, Deutschland. —
Hann skrifar á þýzku og ensku.
Ljósálfaforingi, hafðu í huga:
að hinir foringjarnir vilja ef til vill sjá þig
og Ijósálfana þína oftar. Ef sambandið við
hinar sveitirnar er ekki nógu gott, getur
þú gert þitt til að bæta það.
SKATABLAÐIÐ
19