Skátablaðið


Skátablaðið - 01.08.1959, Blaðsíða 20

Skátablaðið - 01.08.1959, Blaðsíða 20
mylnustörf, til þess að hafa rneiri peninga- ráð. Og ég! Sjálfunr mér hef ég nrikið um að kenna líka. Hef ég eigi stundunr sent ykkur til að vatna blómunum mínum, í stað þess að láta ykkur læra? Og þegar mig langaði til að veiða fisk, — gaf ég ykkur þá ekki frídag?“ Hamel hvarf frá einu til annars. Hann talaði um frakkneska tungu, taldi hana fegurst tungumál í víðri veröld, ljósast og rökréttast. Brýndi fyrir okkur að varð- veita það og gleyma því aldrei, því að eins lengi og ánauðug þjóð héldi fast í tungu sína, hefði hún lykilinn að prísundinni. Hann opnaði mállýsingabókina og las kafl- ann, sem hann hafði sett okkur fyrir, Mig furðaði, hvað vel ég skildi. Allt, sem hann sagði, virtist mér svo auðvelt, svo auðvelt. Ég held líka, að ég hafi aldrei hlustað eins vel, og að hann hafi aldrei skýrt neinn hlut með svo mikilli þolinmæði. Það leit út eins og vildi veslings maðurinn troða í okkur öllu, sem hann vissi, áður en hann hyrfi brott, og gera það allt í einu. Næst mállýsingunni lét Hamel okkur skrifa um stund. Hann hafði gefið nýjar forskriftarlínur þennan dag, með yndisfag- urri rithendi: Frakkland, Elsaz, Frakkland, Elsaz. Þær voru yfir skólaborðunum okk- ar jrarna eins og fánar. Þið hefðuð átt að sjá, hvernig allir kepptust við. Allt var kyrrlátt. Eina hljóðið var frá pennunum, er Jreir fóru yfir pappírinn. Eitt sinn komu nokkrar stórar flugur inn. Enginn veitti ])cim nokkra athygli; ekki heldur minnstu snáðarnir. Þeir héldu áfram að draga öngla, eins og það væri frakkneska líka. Úti á þakinu kurruðu dúfur lágt og ég hugsaði með sjálfum mér: „Skyldu þeir láta þær kurra á þýzk u — dúfurnar líka?“ Hvert sinn er ég leit upp frá skriftinni, sá ég Hamel sitja hreyfingarlausan á stóli og hvima frá einu til annars, eins og hann væri að festa í huga sér, hvernig allt liti út í litla skólaherberginu. Hugsið ykkur um! Fjörutíu ár hafði hann verið þarna á sama stað, með garðinn fyrir utan glugg- ann og skólabörnin fyrir framan sig öld- ungis á sama hátt og nú. Aðeins höfðu borð og bekkir slitnað. Valhnotartrén í garðinum höfðu stækkað og humallinn, er hann hafði gróðursett, vafðist um glugga og þak. Hve það hefur skorið hann í hjarta, veslings manninn, að yfirgefa það. Að heyra hana systur sína vera í önnum uppi á lofti að koma öllu niður í koffort. Því að næsta dag ætluðu þau að fara úr landi. En hann hafði þrek til að hlýða yfir í öllu, unz allt var búið. Á eftir skriftinni hlýddi hann yfir í sögu. Þar á eftir fóru yngstu krakkarnir að stafa, ba, bé, bí bó, bú. Aftast í herberginu var Hósi gamli bú- inn að setja upp gleraugun, hélt á staf- rófskverinu báðum höndum, og stafaði með krökkunum. Allir sáu, að hann var líka að reyna. Röddin skalf af geðshræringu, og Jrað var svo skrýtið að heyra til hans, að við ætluðum öll að fara að hlæja og skæla. Ó, hve vel ég man eftir henni, þessari síðustu kennslustund. Allt í einu sló kirkjuklukkan tólf. í sama bili dundi hljóðið í bumbum Prússa undir gluggunum okkar. Hamel skólameistari stóð á fætur, fölur, náfölur, upp úr stóln- um. Ég sá hann aldrei jafnhávaxinn. „Vinir mínir,“ sagði hann. „Ég — ég.“ En kökkur reis upp í háls honum. Hann fékk eigi haldið áfram. Þá sneri hann sér að töflunni, tók krítar- mola og reit með hraða, eins stórum stöf- um og hann mátti: „Vive La France!“ (Lengi lifi Frakk- land!) Svo stóð hann kyrr, hallaði höfði upp að veggnum og án þess að segja eitt orð, band- aði hann hendi frá sér: „Skólinn er úti. — Þið megið fara.“ SKÁTABLAÐIÐ 60

x

Skátablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.