Skátablaðið - 01.08.1959, Page 26
Ferðasögubrot
íslenzkir skátar, sem fóru á 50 ára afmælis-
mót dönsku skátahreyfingarinnar 1959, voru 14,
8 frá skátafél. Reykjavíkur og 6 frá Hraunbú-
um. Ferðin hófst laugardaginn 20. júní kl. 12
á hádegi með m.s. Gullfoss. Lagt var af stað i
góðu veðri, en er út í Faxaflóa kom, versnaði
veður og gætti lítils háttar sjóveiki. En mann-
skapurinn sjóaðist brátt, og var yið beztu heilsu
upp frá því, nema einn, sem varð að ganga
undir uppskurð strax og ferðinni lauk. Dvalið
var hálfan dag í Leith og farið til Edinborgar,
skoðaður hinn sögufrægi kastali og hin víðkunna
blómaklukka. Til Hafnar komum við í blíð-
skapar veðri 25. júní, og tók á móti okkur skáti
frá „Fóstbræðrunum", sem er vinafélag Hraun-
búa. Það var ekið strax til Frydendaisvej 32,
heimilis dönsku skátanna. Þar héldum við til
allan tímann, sem dvalið var í Höfn, alls 8 daga,
og greiddum 25 aura fyrir gistingu á sólarhring.
Að kveldverði loknum var ekið til Ráðhúss-
torgs, til að sjá það markverðasta þar, t. d. Aðal-
járnbrautarstöðina, Circus Schuman, Palladíum
og hið langþráða Tívoli, þar sem við að lokum
höfnuðum í „bráðabirða“-heimsókn.
Mánudaginn 29. voru menn árrisulir. Fyrst
varð að gera allsherjar hreingerningu bæði úti
og inni á skátaheimilinu, því þann dag var von
á skátahöfðingjanum og Mr. Wilson frá Lund-
únum. En annað og meira stóð til þennan dag:
Drengjunum hafði verið heitin Svíþjóðarför,
áður en lagt var af stað að heiman og átti að
efna það loforð þennan dag. Við lögðum af stað
þangað kl. 9 með ferju til Málmeyjar. Þegar
þangað var komið, fórum við áfram til Lunds,
aðallega til að sjá hina fögru dómkirkju, þar
sem Jón biskup Ögmundsson var vígður. En
það voru okkur talsverð vonbrigði, að við feng-
um ekki að sjá nema kjallarann, þó að hann
sé í rauninni merkilegur, því kirkjan var í við-
gerð. Eftir að hafa borðað miðdegisverð í Lundi,
héldum við áleiðis til Málmeyjar og þaðan með
fyrstu ferð til Hafnar. Um kvöldið sungum við
og skemmtum okkur á skáta vísu „heima“ í
skátaheimilinu
Miðvikudaginn 1. júlí var óákveðin dagskrá,
dagurinn var ætlaður til undirbúnings ferðalag-
inu á mótið.
Kl. 22 lögðum við af stað með stórri ferju til
Árósa og komum þangað kl. 7 morguninn eftir.
Þar tók á móti okkur danskur roverskáti og
vísaði okkur á járnbrautarstöðina og hentugan
stað til að matast. Eftir rúmlega tveggja tíma
dvöl í þessari borg, sem er önnur stærsta borg
Danmerkur, fórum við með lest til Ebeltoft, sem
er lítið gamaldags þorp í „Landi molbúanna",
eins og Danir komst sjálfir að orði. Við vorum
svo heppnir að vera með einni af fyrstu ferð-
unum til Ebeltoft þennan dag, því þar skyldi
mótið haldið, og við losnuðum við öll þrengsli
og troðning. Eftir að hafa snætt sérlega kjarn-
góðan miðdag í gamaldags veitingahúsi í Ebel-
toft, lögðum við af stað gangandi með pjönkur
okkar út á mótstaðinn, en þangað var klukku-
tíma gangur. Við lentum í samfloti með skát-
unum frá Silkiborg, og urðu þeir nágrannar
okkar á mótinu og sýndu okkur sérlega mikinn
velvilja. Um leið og við gengum inn á móts-
svæðið, var okkur tilkynnt, að við yrðum kvik-
myndaðir, og gættum við þess að vera sæmilega
vel til hafðir við svo hátíðlegt tækifæri. Þegar
inn á mótstaðinn kom, streymdu skátar að úr
öllum áttum, akandi, gangandi og fjöldinn all-
ur hjólandi. Okkur var ætlað að búa saman við
„Fóstbræðurna" á mjög viðkunnanlegum stað.
Fimmtudaginn 2. júlí var unnið að því að
koma sér fyrir, girða tjaldbúðasvæðið, gera lilóð-
ir, byggja hlið, setja upp fánastengur og yfir-
leitt koma sér sem bezt fyrir. En um kl. 15 var
mótið hátíðlega sett, en þó eigi með hátíða-
skrúðgöngu eða sameiginlega, lieldur hver á sín-
um stað. En þó skyldi hvert félag eða hópur
senda menn til að draga hátíðafánana að hún,
en áður en sú athöfn hófst, var skotið af fall-
byssu, einnig þegar fánar voru dregnir að hún
á morgnana. Á mótinu voru fulltri'iar frá 13
þjóðum, m. a. frá Libíu, Grænlandi, Grikk-
landi, Mexikó og einn verksmiðjueigandi og
sonur hans frá hinni fögru eyju Utila, sem til-
heyrir ríkinu Honduras í Suður-Ameríku. Mað-
ur þessi er danskur að ætt og uppruna, var
ilokksforingi á sínum tíma í „Göngernes" 1.
66
SKATABLAÐIÐ