Skátablaðið - 01.08.1959, Blaðsíða 27
flokk og skrifstofustjóri hjá dönsku skátunum.
Hann sagðist vera kominn til að lofa syni sín-
um að sjá skátana. Þessi fyrrverandi flokksfor-
ingi í Danmörk og núverandi verksmiðjueig-
andi í Honduras var mjög elskulegur og blátt
áfram og tjáði mér á lokavarðeldinum, að hann
hefði fengið 1. verðlaun fyrir sitt fallega höku-
skegg. Allir skeggjaðir voru nefnilega myndaðir
saman. Þennan sama dag kl. 21 var sameigin-
legur varðeldur. Á varðeldinum var sýnd saga
skátahreyfingarinnar í Danmörku og fleiri sögu-
legar sýningar, ásamt hátíðlegmu skemmtiatrið-
um. Næstu dagar liðu fljótlega við tjaldbúða-
störf, heimsóknir, minni varðelda og að sjá
hvernig „hinir“ höfðu búið um sig. Ýmis
konar keppnir fóru og fram að ógleymdum úti-
legum, sent venjulega er hámark slíkra rnóta,
því margan skátann kitlar í lófana eftir að geta
yfirunnið „óvininn" eða mótstöðumanninn.
Sunnudagurinn 7. júlí var almennur heim-
sóknadagur og lokavarðeldur um kvöldið. Þann
dag var álitið að 50.000 manns hefðu komið inn
á mótssvæðið, annars voru þátttakendur móts-
ins 8.000 skátar. Þennan sama sunnudag gengu
allir til guðsþjónustu, sem haldin var á aðal-
varðeldasvæðinu.
Eitt kvöldið cftir að kyrrð var komin á, var
haldin sérstök samkoma fyrir alla flokksforingja.
Sendur var hraðboði til foringjanna með mjög
sérstætt bréf, alvarlegs efnis, og gaf það til
kynna, að óvenjulegt merki skyldi gefið um sól-
arlagshil hvar og hvenær samkoma þessi hæfist.
Stuttu eftir sólarlag sást hnöttur svífandi yfir
varðeldasvæðinu, og var hann upplýstur með
ljóskösturum. Við fórum þangað 6 og tókum
þátt í hinni liátíðlegu og ógleymanlegu athöfn,
sem þar fór fram.
Þriðjudaginn 7. júli var mótinu slitið hátíð-
lega, nánar tiltekið kl. 15, í svo miklum hreyskju-
hita, að tæplega var viðvært. Að því loknu byrj-
uðu skátar að búast til brottferðar. Annars tók
það tvo daga að koma öllum mannskapnum
í burtu, akandi, gangandi, hjólandi og með
járnbrautum.
Nú fór að verða tómlegt þar, sem áður höfðu
dvalið átta þúsund skátar, en þó voru þarna
mannvirki, sem skátarnir unnu að sem ævar-
andi minnisvarða um nokkra unaðsríka daga. Á
aðalbaðstaðnum vantaði bryggjur fyrir baðgest-
ina að hafast við á, og höfðu ráðandi menn
bæjarins lengi ætlað sér að koma byggingu
þeirra í framkvæmd. En nú kom tækifærið að
koma verkinu í framkvæmd. Á 3—4 tímum
byggðu skátarnir bryggjurnar á þann hátt að
fylltir voru margra metra langir tréstokkar með
grjótinu úr fjörunni, og hreinsuðu því fjöruna
um leið.
Bæjarstjórinn í Ebeltoft var mjög þakklátur
skátunum fyrir þetta verk.
Við lögðum af stað gangandi snemma morg-
uns 8. júlí, og eftir klukkutíma gang, gengum
við um borð í þá lengstu lest, sem almennt
gefur að líta, og ókum til Arósa og biðum þar
í 10 tíma eftir ferju til Hafnar. Þegar á skáta-
heimilið kom, var þar yfirfullt af skátum, en
kl. tvö sama dag rýmdu norskir skátar fyrir
okkur. Við dvöldum í Höfn í tvo daga í góðu
yfirlæti, og fór mestur tíminn í að fara í verzl-
anir, kveðja vini og ganga frá farangri.
Laugardaginn 11. júlí fóru tíu af hópnum
áleiðis heim með Gullfossi. Einn varð eftir til
náms, en um fimm leytið sama dag fórum við
þrír fljúgandi heim. Fararstjóri þeirra, sem fóru
með skipinu heim, var Kjartan Reynisson, og
leysti það starf vel af hendi. Öll ferðin gekk
slysalaust og vel í alla staði.
Hafnarfirði, 8. sept. 1959.
Eirikur Jóhannesson.
------------------------------------
SKÁTABLAÐIÐ
Útgefandi: 1
BANDALAG ÍSLENZKRA SKÁTA ;
; Ritstjóri: •
; INGÓLFUR ÖRN BLÖNDAL
; Auglýsingastjórar:
; EYSTEINN SIGURÐSSON
HARALDUR SIGURÐSSON
• Ábyrgðarmaður:
ARNBJÖRN KRISTINSSON. !
Utanáskrift:
't Pósthólf 1247, Reykjavík.
! Árgangurinn kostar 35 krónur.
! Prentsmiðjan Oddi h.f.
i-----------------------------------—i
SKATABLAÐIÐ
67