Ný vikutíðindi


Ný vikutíðindi - 05.01.1962, Qupperneq 8

Ný vikutíðindi - 05.01.1962, Qupperneq 8
Davíð skákar Golíat - SIS ðýður hagstæðari kjör en SH—Bjargar frystihúsunum frá gjaid- þroti - SH við sama heygarðshornið Allt fram á síðustu mán- uði hefur Samband íslenzkra samvinnufélaga orðið að taka fullt tillit til Sölumið- stöðvar hraðfrystihúsanna á bandaríska fiskmarkaðnum. En nú liafa veður skipast í lofti. Sambandið hefur kom- ið á liagstæðara greiðslu- fyrirkomulagi og leyfir sér jafnvel að undirbjóða Siílu- miðstöðina í einstaka tilfeil- um. Á s. 1. ári ákvað Samband- ið að endurskipnleggja fisk- sölufyrirtæki sitt í Banda- ríkjunum. Út voru sendir nokikirir ungir menn, sem áttu að brjóta Sambandinu nýjar brautir á þessum mikil væga markaði. Þeir hafa síð- an unnið ótrauðir að þessu marki, með þeim árangri að nú getur Sambandið borgað íslenzku frystlhúsunum á tveim mánuðum í stað sex ngin álfabrenna Sbttar og Stefgjöld ein aðalástæðan Hestamannafélagið Fákur hélt myndarlega álfabrennu á þrettándanum í fyrra og var aragrúi fólks samankom- inn á skeiðvellinum, þar sem brennan var haldin. Álfar I dönsuðu. Vetur konungur kom þar í öllu sínu veldi og „þar riðu hetjur um héruð.“ En Fáksfélagar treysta sér ðkki til þess að endurtaka (Framh. á bls. 4) áður og þarf ekki að taka sama tillit til SH, eins og fyrrum. Sölumiðstöðin held- ur hins vegar áfram að þorga á sex mánuðum frysti hústmum tii milljónatjóns. Frystiihúsin, sem þurfa að taika rékstrarlán fyrir þann tima, sem þau fá ekki borg- að hafa átt mjög örðugt með að bera sig Vextirnir eru eins og allir vita háir og framleiðslukostnaðarinn hef- ur fairið vaxandi. Sambandið sá að við svo búið mátti ekki standa. Stórfelld gjaldþrot voru yfinvofandi. Frystihús- in urðu að fá greiðslumar sem allra fyrst. Það lagð: því megináherzlu á að fá þessu kippt i lag með hagstæðum samningum. Síðan iþað tókst hafa frystihúsin, sem verzla við Sambandið getað sparað sér tugmilljónir króna i minnikandi vaxtagreiðslum. En frystihúsin, isem varzla við Sölumiðstöðina, eru í sömu klemmunni og áður. Þau hafa sífellt minna til rekstrarins vegna oísalegra vaxtagreiðslna í sambandi við hin Jöngu rekstrarlán. Þau hafa hvað eftir annað kvartað til stjórnar Sölumið- stöðvarinnar, en allt heíur, komið fyrir ekki. I>að er sagt að dráttur- inn á greiðslum stafi þó elíki alltaf af óhagstæðum samningum við banda- ríska fiskkaupendur, held- ur sé f járhagur Sölumið- stöðvarinnar orðinn svo ‘ bágborinn vegna mikillar 1 f járfestingar. Var á tíma- bili sagt, að Landsbank-' imi væri genginn í málið og krefðist reikningsskila við Sölumiðstöðina. Vegna óánægjuraddanna, sem gagnrýna Sölumiðstöð- ina, fer þeim f jölgandi, sem | telja nauðsynlegt að draga , að einhverju Ieyti úr ofur-1 valdi Sölumiðstöðvarinnar á bandaríska fiskmarkaðnmn |Og gera fleiri aðilum kleift að selja þangað fisk. Það' iyrði aufcið aðhald fyrir SH, ■ sem alltaf hefur vantað að | slíkri svipu væri haldið yfir höfði þess. Hvað sem því líður iþá sjá- um við að minnsta kosti, að ipotturinn er alvarlega brot- inn, þegar lítið fyrirtæki eins ,og sölufyrirtæki Sambands- ins í Bandarikjunum, rneð miklu minni umsetningu en SH, getur boðið upp á langt- >um hagstæðari kjör. málið annsaka H Frétzt hefur að lok- ið sé rannsókn á fjár- reiðum Fíladelfíúsafn- aðarins og muni skýrsla um það mál komin til dómsmálaráðu neytisins. Er það svo saksóknarans að skera úr um það, hvort telja beri ástæðu til frekari málareksturs gegn stjóm safnaðarins. Þeir Ingólfur Ást- marsson biskupsritari og Hákon Guðmunds- son hæstaréttarritari munu hafa rannsakað málið og samið skýrsl- una. á GLASBOTNINUM ÞETTA ár kemur til með að verða gott ár fyrir á- fengisverzlunina. Fyrsta febrúar og fyrsta marz ber upp á fimmtudag Síðasta marz upp á laugardag. Fyrsta júní upp á föstudag og síðasta upp á laugardag. Fyrsta september upp á laugardag, fyrsta nóvember upp á fimmtudag, fyrsta desember á laugardag og þrítugasta desember her upp á sunnudag. En hún er dálítið óheppin með 17. júní; hann ber ekki upp á virkan dag. Skírdag ber að þessu sinni upp á fimmtudag, eins og ívar komst einu sinni svo vel að orði. — Ekki er vitað hvaða dag krían kem ur. ÞAB hefur verið nokkuð líf leg verzlun með íslenzka hesta á erlenda markaði. Furðuleg finnst þó mörgnm sú ráðstöfun, að leyfa út- flutning á merum, enda hafa nú margir útlending- ar fcomið isér upp eldisstöðv um og famir að keppa við Islendinga með hrossasöfu. Það hljóta að vera óvenju- leg gáfnaljós, sem stjórna þessum útflutningsmálum okkar. RflTf’ WD DSOD Föstudagur, 5. jan. 1962 — 1. tbl. 2. árg. ÞEIR, sem leið eiga um Selfoss, ættu að líta inn í Tryggvaskála og skoða þar nolíkur stór olímnálverk eftir Matthías. Smn þeirra eru afbragðsvel gerð og gefa ekki eftir meistara Kjarval. ALÞÝÐUKÓRINN, sem samanstendur af tómum kommúnistum, er nú að æfa lag, sem 'heitir: Hver er sá veggur víður og hár? i ______ LÚÐRASVEIT Reykjavík- ur lék á gamlárskvöld í Ríkisútvarpið undir stjóm Páls P. Pálssonar. Var leik urinn stjórnanda og hljóð- færaleikurum til mikils sóma og einkar skemmti- legt hvað lúðrasveitinni hefur farið fram hin síðari ár 1 SAMBANDI við jólagjafa farganið Ihefur þessi saga ikomizt á fcreik: — Tengda- móðir nýríiku ikonunnax lagði hart að sér fyrir jól- in og keypti af fátækt sinni ýmislegt smádót handa bamabörmmum, auk þess sem hún prjónaði ihanda þeim sitthvað til að hafa úti í kuldanum. Tengdadótt irin vegsamaði gjafirnar hástöfum upp 1 eyrun á tengdamóður sinni, en jólin voru ekki liðin, þegar hún hafði hent „þessu bölvuðu drasli“ eins og hún orðaði það eftir á, beint út í ösku- tunnu. NÚ ER Skugga-Sveinn sýndur í Þjóðleikhúsinu og þá dettur manni í hug saga sem gerðist fyrir 9 ármn, þegar Jón Aðils lék aðal- Iilutverkið. — Stór og mik- ill maður, norðan af landi, kom inn til leikaranna að leiksýningu lokinni og fór að gagnrýna leik þeirra. Hann sneri sér að Ævari Kvaran, sem þá lék sýslu- manninn eins og nú, og taldi hann hafa verið nokk- uð góðan. En alltaf var liann að gjóa augunum til Jóns Aðils, því sjálfur hafði hann oft leikið hlut- verk hans. Þegar Jón var farinn að gerast ókyrr, seg ir maðurinn loks þrumu- raust: „Mikið var slæmt að ég skyldi ekki koma fyrr í bæinn, svo ég hefði getað leiðbeint þér með áherzl- umar!“ OFT mistala útvarpsþulirn- ir sig meinlega og hefur verið hent gaman að af al- menningi. En sjaldan hafa mismælin orðið eins ofboðs leg og þegar þulur var. að 'lýsa komu e. s. Gullfoss með forsetabjónin og sagði: „Og nú siglir Gullfoss inn með forsetafrúna við hún!“ i________ OG SVO er það þjónninn, sem neitaði að selja Dungal reyktan fisk ... Er það satt að freymóður jóhannsson hafi verið for- sprakkinn í leynisamtökun- um gegn leynivínsölum?

x

Ný vikutíðindi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný vikutíðindi
https://timarit.is/publication/881

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.