Ný vikutíðindi


Ný vikutíðindi - 09.02.1962, Side 2

Ný vikutíðindi - 09.02.1962, Side 2
2 NÝ V IKUTIÐINDI NÝ VIKUTÍÐINDi koma út fyirir hverja helgi og kosta 4 kr. í lausas. F'ramkvæmdastjóri: Geir Gurmarsson, sími 19150. Ritsitjóri Balldur Hólmigeirsson, viðtalst. kl. 10—12. Augl.stjóri: Bragi Sigurðsson, símar 14856 og 18833. Ritstjómarskrifst.: Höfðatúni 2, sími 14856 og 19150. Prentun og útgáfa: Stórholtsprent h.f., Höfðatúni 2, Híimi 19150. — ÁskriftargjaM er 150 kr. árgangurinn og gr. fyrirfram. Söluböm afgreidd í Þingholtsstr. 23. ^ _ _____________________________ ^ ^ Opinber hýding Nýlega gerði gáfaður hagfræðingur sór leik að }>ví í blaðagrein að gera Einar Olgeirsson að athlægi fyrir talna- fölsun. Einar hafði haldið því fram, að þjóðarframleiðslan hefði tvöfaldazt á níu árum (1950—1959), en hagfræð- ingurimi bendir á, hversu fáránlegt þetta er, því raunveru- lega hefur hún aukizt um 32% á íbúa, og tekjur verka- nrm.Tina. hafa aukizt um 39% á sama tíma (miðað við skattaframtal þeirra sjálfra). Og hagfræðingurinn, sem er dr. Benjamín Eiríksson, reiknar út, að ef haldið er áfram sömu stefnu, þá myndu Iaunþegar fá sem viðbót næstu 9 árin rúmlega helming þeirra tekna, sem þeir höfðu 1950. Ætli þetta þætti ekki glæsilegt í Rússlandi eða Kína? spyr hagfræðingurinn. Það er kominn tími til að afhjúpa blekkingar og fals- rök áróðursmanna kommúnista. Þessi skurðgoð auðtrúa verkamanna, einfaldra sálna, sem hafa haldið að þeir vildu þeim vel og væru að berjast fyarir hagsmunum þeirra, eiga eftir að steypast af stalli eins og trélíkneski heiðinna manna forðum. Vita þeir, hvemig ástandið er í alþýðulýðveldunum, mennimir, sem kjósa kommúnista hér á landi? 1 grein sinni segir dr. Benjamín: „ ... Sósíalisminn er orðinn að veruleika í Rússlandi og jafnvel víðar. Þessi veruleiki gerir það, að hugsjónakerfi sósíalismans er að hrynja. Mönmun líkar ekki sósíalisminn, þegar þeir sjá framan í hann í veruleikanum.“ Dr. Benjamín hefur sjálfur dvalið í Rússalandi og Banda rík junum og veit hvað hann er að tala um, enda viður- kenndur fyrir gáfur og rökfestu af öllum sem hann þekkja. Hann segir ennfremur: „Enn hefur sóslalisminn hvergi reynzt annað en fátækt, og honum hefur fylgt mikil andleg og líkamleg kúgun. En jafnframt hafa þjóðfélög auðvaldsríkjanna tekið stór- kostlegum stakkaskiptum. Kommúnisminn hefur reynzt mönnum á ýmsan hátt holl en óskemmtileg lexía.“ Einar Olgeirsson er ekki svo skyni skroppinn, að hann viti ekld þennan sannleika. Við vitum það öll, ef við viljum vera hreinskilin. Það eru aðrar orsakir fyrir því, að Einar og félagar hans eru að gera íslenzka laimþega óánægða, heldur en heimska. Meðölin eru ekki alltaf vönd- uð í pólitískum málflutningi. Við vitum líka hvað liggur á bak við áróður þessara Rússlandsvina. Það er ekki föðurlandsást eða hagsmunir launþega, sem þar liggja að baki. Nei, ónei. 1 Rússlandi hafði Stalin þeirra einfalda aðferð til að losa þjóð sína Við slíka óþurftarmenn. En hér ætti að taka þá og rassskella opinberlega. Það hefur Benjamin gert hvað Einar snertir í óeiginlegum skilningi, og kannske er það upphafið á því að uppræta þennan ósóma. — g. ó skemmbiabcðunun^ LAURIE LONDON gat sér hehnsfrægðar fyrir nokkmm árum, þegar plata hans „He’s Got The Whole World In His Hands“ fór sigurför um heiminn, og afl- aði ihonum aðdáenda hér á landi sem annars staðar. Söngur ihans er líka frábær- lega skemmtilegur, og að sagt er, mun hann vera ein- hver viðfelidnasti ungi söngv arinn, sem fram kemur í dag. Um þessar mundir er Laur ie London væntanlegur hing- að til Reykjavíkur til að skemmta á miðnæturskemmt unum í Háskólabíói, og ber að fagna því, að mið- næturskemmtanirnar vinsælu slkuli aftur ihafa verið tekn- ar upp og þá í jafn myndar- legum salarkynnum og Há- skólabíóið er. Þarf ekki að efast um, að miðnætur- skemmtanirnar hijóti miikla aðsókn og vinsældir, enda mjög til þeirra vandað. Auk hins erlenda listamanns kem ur þama fram stór hljóm- sveit undir stjóm hins snjalla hljóðfæraleikara og hljómsveitarstjóra Kristjáns Kristjánssonar, sem við höf- um ekiki fengið að heyra síð- an á áramótum, er hann iagði sextett isinn niður. Er gott til iþess að vita, að hann Skuli ekki með öllu vera hættur, og tiihlökkunarefni að heyra hann stjóma þeirri stóru hljómsveit, sem þarna kemur fram. Svo fáum við að heyra 1 ungri dægunlagasöngkonu, Agnesi Ingvarsdóttur, sem undanfarið hefur sungið með ÓMdcvintettinum, einni vin- sælustu 'hljómsveit unga fólksins, —og síðast en ekki sízt íáum við að sjá stiginn I (eða Skekinn) þennan nýja tvist-dans, sem æðir yfir hinn siðmenntaða heim eins og eldur í sinu. Er ekki að efa, að jafn mikið og um hann hefur verið rætt, muni marga fýsa að sjá hann í fram- kvæmd. Og tældfærið er sem sé í Háskólabíl þessi ikvöidin! OG SVO kemur samkvæmt óskum f jölmargra lesenda mynd af köppunum í Lúdó. Héma eru þeir: Hansi Kragh, Hansi Jens, Óli Gunn ars, Stebbi Jóns, Siggi Bald og Siggi Þór. ■■; • ■/. ■■ .■•■■■■:■■•■■■■■■■■ wmismái M&é Á-.-.'O. mmm/m ÉmMm á skemmbistööunLJm

x

Ný vikutíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný vikutíðindi
https://timarit.is/publication/881

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.