Ný vikutíðindi


Ný vikutíðindi - 04.05.1962, Side 5

Ný vikutíðindi - 04.05.1962, Side 5
NY VIKUTlÐINDI 5 kosningaspá — (Framh. af bls. 8) Icvæðamagiii, en þó varla svo ttúkiu að þriðji maður þeirra ■é í hættu. Þó 'gæti svo far- ið og er 'harla erfitt að átta ■ig á ihvert þau atkvæði fara. Mikið fer ytfir til Sjálfstæð- isflokksiiis og eitthvað til Krata og Frajmjsófcnar og állt að 100 til templara. Missi komtmar yfir 1000 atkvæði, sem er ekki ólíklegt, er 3. maður þeirra fokinn út í veð ur og vind, þ. e. til Krata aða Framsóknar. Ailur þessi glundroði með- al vinstri manna veldur því, að Sjálfstæðisflokkurinn ætti að 'halda sínum 10 fulltrúum, a®1*! ©kki er heldur óeðlilegt, því mörgum 'hrýs hugur við Því, að vinstri menn fái fleiri aðila í borgarstjórnina. ^nnars er engin hætta á ferð þótt Sjálfstæðisflokkur- lnn missi jafnvel einn mann. Hiann hefur hvort sem er hreinan meirihluta þar sem aðeins 15 fulltrúar eru kosn- lr- Sjálfstæðismenn vinna 111,1 ,1! ln*n ■niniiiii! b s ii biiiiiiiiiiiiii iii iíiíii iiiiiiiiiiiiiii miikið að þessu sinni og lík- legast þyikir að hann auki við sig fylgi og fái 10 menn aftur, enda er Geir borgar- stjóri lafar vinsæll og dugleg ur maður, sem fylgi flobks- ins ibyggist mikið á. Geir HaMgrímsson hefur þegar sýnt á stuttum borgar stjóraferli, að hann er mað- ur ákveðinn og stjómsamur og er góðs af honum að vænta. Slíkir menn eru ekki á hverju strái. Alþýðuflokkurinn er eins og vant er undir hæl Sjálf- stæðisflokksins og fær líkt atkvæðamagn og síðast, en þó er enn ekki hægt að átta sig á ihvað mikið hann tek- ur nú frá fcommúnistum. Sennilega verður það efcki mjög miikið atkvæðamagn og varla tekur hann af þeim neinn fulltrúa. Það er því sennilegast að fuUtrúatala í borgarstjóm Reykjavíkur verði óbreytt. Sjálfstæðisflofckurinn 10, Kommúnistar 3, Framsófcn 1 og Kratar 1. (Framh. af bls. 2) hefði 4 dægurlagasöng, væri V6*tt af fagmönnum tilsögn í söng, raddbeitingu og texta framburði, svo og líka hinu, sem mörgum ihefur fundizt ábótavant hjá íslenziku söng- ^ki, nefnilega sviðsfram- komu. Til kennslunnar vom taðnir hinir fæmstu menn, kver á sínu sviði. Þannig Jmnndi Kristinn Hallson radd beitingu, Ævar Kvaran isviðs fr’amkomu, Sigurður Markús Son veitti tilsögn í tónfræði, Uuk þess sem K.K. og Jón Sigurðssson bassaleikari enndu við námskeiðið frá uÞphafi. Aðsókn að námskeiði Þessu var mjög mikil, þurfti • ó. að tvísldpta ikennsltmni kornust færri að en vildu. ú er þessu fyrsta námsk. að 'ljúka og því lýkur svo ^annarlega með pompi og pragt, því að ákveðið hefur verið að halda tónleika á næstunni og það verða eng- ir venjulegir tónleikar, því að 'þar ikoma fram hvorki meira né minna en 40 söngv- araefni, allt nemendur skól- ans. Að sjálfsögðu verður það K.K.-hljómsveit, sem annast undirleikinn. Má mik- ið vera, ef í hópi þessara söngvaraefna eru ekki ein- hverjir þeir, sem eiga eftir að standa í sviðsljósinu á næstu árum. Þvi til árétting ar má geta þess, að þegar hafa margar hljómsveitir haft samband við K. K. og falað góð söngvaraefni úr nemendahópnum. Að öllu þessu samanlögðu má ætla, að mannmargt verði á ihinum væntanlegu tónleibum, þar sem í fyrsta sinn hér á landi koma fram fjöldamörg söngvaraefni, er notið hafa tilsagnar fcunn- Flutt i ný húsakynni Skriístofur Flugfélags íslands á Reykjavifcurflugvelli, Lindargötu 46—48 (bókhaldsdeild) og Lækjargötu eru * uttar í Bændahöllina. r£i£6jGftSu/i J&iUSomaSu/i: PISTILL DAGSINS BARNALEGT ÖSAMKOMULAG ílokki þeir tilheyrðu, ef nokkrum. Og val Klofningur samtaka hemámsandstæð- inga hefur vakið athygli alþjóðar. Þessi samtök, sem virtust vera mjög sterk fyr- ir nokkrum mánuðum — vera vemleg fjöldasamtök og fjársterk eftir því — hafa nú gersamlega klofnað, og bera tæp- lega sitt barr eftir þetta. Hatrið og óvildin, sem þar ríkir nú milli starfsmanna samtakanna og Þjóð- varnarmanna, er svo mikið, að við liggur að leitað verði til dómstólanna um að skera úr ýmsum hliðarágreiningsefnum þeirra, svo sem eins og þeim hverjum beri jeppabíll samtakanna og lyklavöld að skrifstofum. Ragnar Arnalds hefur haft jeppakrílið í vetur og þykir þægilegt að skutlast á honum og vill fyrir engan mun láta hann frá sér fara. Og Kjartani Ölafssyni, sem var eins konar skrifstofustjóri samtak- anna, er ókært að afhenda lyklana að skrifstofimum. Þetta er annars ein sagan um það upp lausnarástand, sem ríldr í herbúðum vinstri manna. AUt samstarf vinstri flokk anna hefur einkennzt af sama barna- skapnum, öfundinni og tortryggninni, sem við höfrnn nú orðið vitni að í sambandi við samtök hernámsandstæðinga. Þeim virðist ekki koma betur saman en krökk- um í samliggjandi götum. Þetta eru menn, sem eiga bágt. Það er einhver impotens í þeim öllum. Og þegar vanmáttarkenndin er orðin óviðráðanleg, ráðast þeir hver að öðrum, eins og stein- aldarmenn. FLUGUMENN EÐA R.VÐVIIAANGAR Það hefur lengi verið talið, að Ragnar Amalds og Kjartan Ólafsson væm komm únistar að skoðun. Og eitt er víst, segja þeir, sem þekkja þá félaga, að þeir hafa ætíð talað eins og kommúnistar; þótt þeir létu í veðri vaka, að þeir væra andvígir sósíalistaflokknmn að mikUvægu leyti, og ættu því ekki heima þar í flokki. En hvað gerist svo? An þess að flokk- urinn hafi bætt fyrir gunguskap sinn í „hemámsmálum“ meðan flokkurinn stóð að vinstri stjóminni, liafa þessir menn, sem settu þennan gunguskap fyrir sig, gengið í lið með flokknum og jafnvel látið skipa sér á lista þeirra. Vom þessir menn raunverulega gerðir út af örldnni til að koma vandræðum til Ieiðar í Þjóðvamarflokkniun, og meðal þeirra vinstri framsóloiarmanna, sem vom í samtökum hernámsandstæðinga? Áttu þeir að reyna að stilla svo atvikum, að Þjóðvöm og Framsóknarkommamir gætu með góðri samvizku gengið í komm- únistahópinn? Því verður tæplega trúað. Til þess em þessir menn ekki nægilega skæðir. Þá ligg ur beinast við að álykta að þeir hafi ekk- ert vitað, hvað þeir vom að gera eða hvað þeir vildu, að þeir hafi vitað hvaða þeirra virðist jafnogrundvallað, þegar þeir loks taka ákvörðun. En þessi hringlandaháttur þeirra ber Ragnari og Kjartani ekki gott vitni, sem rnönnmn og kannske verðandi stjómmála- mönnum. Því hvort sem þeir vom flugu- menn eða bara Táðvillingar, þá hafa þeir ekki unnið til þess að þeim sé treystandi, af þeim, sem ekki þekkja þá. Hinir kunna að hafa einhverjar aðrar skoðanir, a. m. k. skoðanabræður þeirra meðal komma. En þeir era nú líka svo óhreinar spírur. AFKASTAMIKILL RÁÐHERRA Sennilega lagði enginn ráðherra fram jafnmörg stjórnmálafrumvörp og Gunner Thoroddsen f jármálaráðherra á síðasta Alþingi. Og ráðherrann kom þeim öllum örugglega I höfn. Smn vom umdeild, önn ur vora feikilega viðkvæm mál, en svo vel hélt ráðherrann á spilimimi, að þessi mál eru þau vinsælustu eða meðal allra vinsælustu mála, sem ríkisstjórnin hefur beitt sér fyrir. Það var talað um það fyrir tveimur ámm, að ráðherrann hygðist draga sig í hlé út úr stjórnmálum, jafnvel gerast Seðlabankastjóri. Þá benti einhver á, að maðurinn væri alltof þarfur og góður kraftur, auk þess á bezta aldri til að taka slíka ákvörðim þá. Þetta hefur sannazt margfaldlega síðan viðreisnarstjómin tók við völdum. PETUR BEN. FER í FRAMBOÐ Nú er altalað að Pétur Benediktsson fari í framboð við næstu þingkosningar í stað Sigurðar Ágústssonar, og eigi Pét- ur að sjá um Snæfellsnesið eins og Sig- urður hefur gert. Um þetta er ekki nema gott eitt að segja. Pétur mundi verða skemmtilegur, en kannske ekki sérlega starfsamur, á þingi, enda ýmsum öðrum hnöppum að hneppa sem bankastjóri. Pétur er prýðilega greindur maður og velviljaður, og það sópar að honum þar sem hann kemur og fer. Hann yrði nýtt °g örvandi blóð í þinglíkamanum. LEYNISKÍRSLAN TIL EINARS Hvermg fékk Morgunblaðið leyniskýrsl- una til Einars? Uppi em ýmsar getgátur en Eyjólfur Konráð er sagður þegja eins og stemn yfir leyndarmálinu, en getnr ekki leynt drýgindunum. Þetta var sann- kölluð uppbót fyrir skellinn, sem hann fékk, þegar Morgunblaðið varð að éta of- an í sig allt, sem það hafði sagt um Inga R. Helgason og meintan fjárdrátt hans hjá kommúnistum. Leyniskýrslan var mikið „skúbb“ eins og það er kallað, þegar eitt blaðið er fyrst með stórfréttir. Og í þetta sinn ber enginn brigður á sanngildi fréttarinnar eða heimildanna. Þjóðviljinn hefur líka játað að hún var til og að Morgunblaðið birti úr skýrslunni. /

x

Ný vikutíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný vikutíðindi
https://timarit.is/publication/881

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.