Ný vikutíðindi - 24.08.1962, Qupperneq 1
1
Það er kominn tími
til að rannsökuð verði
starfsemi Osta- og
Smjörsölunnar. Daglega
kemur það fyrir, að fólk
fær þrátt smjör í verzl-
knum, sem þó er ný-
komið í þær og ætíð
geymt í kæli.
Almenningi kemur
líka saman um að smjör
sé nú mun verra en áð-
ur en téð fyrirtæki var
sett á laggirnar. Hvað
veldur?
Vitað er að smjöri er
knoðað saman hvaðan-
®eva af landinu og gef-
nr þá að skilja hvað or-
sakað getur skemmdir.
RDtf WD.D5ŒJ1
Föstudagur 24- ágúst 1962 — 34. tbl. — 2 árg. — Verð kr. 4.oo
Hvenœr verða sendiherra
skipti í Bandaríkiunum?
Önnum kafinn diplomat —Skipaður verði
sérstakur fulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum
Fulltrúastarf hans hjá SÞ aukavinna —
_
Vl lATEI I ÍSLANDS Á LANGASANDI.
Um síðustu lielgi fór fram á Langasandi liin fræga
fegurðarsamkeppni um virðingarlieitið Fegursta
stúlka heims. Fulltrúi Islands, María Guðmundsdóttir,
komst í úrslitakeppnina, en heppnaðist ekki að ná
neinu af fyrstu sætunum-
María er glæsilegur fulltrúi þjóðar sinnar, og hefur
þegar getið sér frægð víða um veröld sem fyrirsæta
Ijósniyndara, og hafa myndir af lienni birzt í mörg-
'iiu útbreiddustu tízkublöðum heims.
Það er brýn nauðsyn að hefja þegar í stað enndurskoð-
un á utanríkismálum tslendinga gagnvart bæði Sameinuðu
þjóðunum og Bandaríkjunum. Sami maðurinn hefur gegnt
embætti sendiherra landsins í Washington frá því fyrir
stríð og jafnframt verið aðalfulltrúi hjá Sameinuðu þjóð-
unum í New York frá því 1946. Má segja að hann hafi
snemma fengið traust allsherjarþingsins og fljótlega varð
hann talsmaður stjórnmálanefndarinnar, sem stóð oft í
ströngu og einkum fyrst í sambandi við Palestínu.
Síðan hafa mörg vötn fall-
ið til sjávar og Thor Thors
hefur, að því er virðist, kom-
izt yfir að gegna báðum þess
um embættum Eittlivað hef
ur áliti hans hrakað meðal
Sameinuðu þjóðanna, þvi er
hann var í kjöri síðast sem
forsetaefni þeirra, fékk hann
aðeins níu atkvæði af næst-
um eitt hundrað.
Aðrar þjóðir skipta um
sendiherra á tveggja til f jög-
urra ára fresti og senda þá
sem víðast um heim til þess
að þeir geti kynnt sér al-
þjóðámál og ólík sjónarmið
margra þjóða. Sömuleiðis er
skipt oft um aðalfulltrúa hjá
SÞ, en fjölmennt starfslið
hverrar sendinefndar er um-
svifamikið. Island hefur þó
eina stúlku og ómetanlega
aðstoð Hannesar Kjartans-
sonar, ræðismanns í New
York.
Utanríkisráðuneytið hefur
oft skipt um sendiherra í
(Framh. á bls. 5)
Fíflsháttur landsliSsnefndar
Sami sauðarháttur og áður í sambandi við skipun lands-
liðs Óþolandi stjórn knattspyrnumála
Enn einu sinni hefur landsliðsnefnd KSÍ vakið gremju
áhugamanna um knattspymu með háttalagi sínu, og virð-
ist það verða æ fíflalegra í sambandi við keppnirnar við
íra. Nógu vom þessir aulabárðar kotrosknir eftir frammi-
stöðu strákanna á írskum vettvangi — og þótti mönnum
ekki örgrannt um, að þeir lofuðu hamingjuna hástöfum
fyrir að hafa sloppið svo billega út úr þeirri runu glappa-
skota, sem þeir vom ábyrgir fyrir, og áður hefur verið
rakin hér í blaðinu.
J
Nær hefði þessum sauðum
verið að stilla gleði sinni í
hóf og hefjast þegar handa
eftir heimkomuna að skipa
landsliðið og skapa því nauð
synlega aðstöðu til samæf-
inga þennan stutta tíma
fram að 2. september, er það
á að mæta Irum hér á Laug-
ardalsvellinum.
En það fór á annan veg.
Landsliðsnefnd verður eigi
sökuð um meiðsli manna okk
ar í landsleiknum, en það
var hreinn glæpur að setja
toppliðin okkar í hörkuleiki
á þessu tímabili, og einskær
tilviljun eða guðs mildi að
ekki skyldu fleiri siasast en
Hörður Felixson, sem hlaut
meiðsl í hasarleiknum norð-
ur á Akureyri. Þar réði sann
arlega ekiki fyrirhyggja ráða
manna KSl.
Eða var það 1 raun og
vem nauðsynlegt að skipa
þessum leikjum niður á þetta
stutta tímabil milli lands-
leikja?
Við, sem erum búnir að
horfa á Laugardalsvöllinn
auðan viku eftir viku, hljót-
um að hlæja fyrirlitlega að
Ódýrt veðskuldabréf
Uppboð í ToUskýlinu á hafnarbakkanum fór fram
á þriðjudaginn var og voru boðnir upp ýmsir niunir
og verðbréf. Eitt bréfanna, tryggt með þriðja veð-
rétti í húseign, að upphæð 400,000,00 fór á litlar 8000
krónur, enda víst ekki meira virði. Þrjár nýjar elda-
vélar seldust á 3000, 3600 og 4200 krónur hver og
þóttu góð kaup. Margt muna var á boðstólum, sem
fóru fyrir lítið verð.