Ný vikutíðindi


Ný vikutíðindi - 06.12.1962, Síða 1

Ný vikutíðindi - 06.12.1962, Síða 1
Rötf WDtKOJI Föstudaginn 6. des. 1962 — 49. tbl. 2. árg. — Verð kr 5.oo. Verðlausir pappírar vaða uppi — offjór tekið fyrir að annast „sölu" víxla Blaðið hefur fengið grein- argóðar upplýsingar um starfsemi okurlánara hér í borginni, atferli þeirra og „viðskipta“-hætti. Er þetta með slíkum ólíkindmn, að helzt minnir á reyfara eða svæsnustu gangsterasögur Okrarar hafa á seinustu árum nokkuð komið við sögu í gj aldþr otamálum fyrir- tækja, en jafnan erfitt að hafa hendur í hári þeirra, 1 þar sem sönnunargögn liggja sjaldnast á lausu öðru vísi en sem meinleysislegar skuldarviðurkenningar. Þá sjaldan alvarlegri sönnunar- gögn berast í hendur aðilja, sem hug hafa á því að fletta rækilega ofan af svívirðimni, er allra bragða neytt til að komast hjá málarekstri og dómstólum; hverskyns of- beldi og harðræði hótað. Klækir okraranna, sem hafa á snærum sínum ótrú- legan fjölda manna í ólík- legustu stöðum, eru með þeim ólíkindum, að fjár- þurfi einstaklingar og fyrir- tæki hafa ekki varað sig bet- ur en svo að flækjast í okur- netinu, og að lokum misst allt sitt í hendur okraranna. Við höfum fullan hug á að koma upp um illþýði þetta. Við höfum fylgzt með nokkr um málum af þessu tagi, iiiiiiiiiiiiiiiiiiaitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiirfiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii ii ii iii 11111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111 Komii verði á raun- hæfu skipaeftirlit Alvarlegar ásakanír á hendur Skipaskoðun ríkisins Eitt af því sem helzt ekki má mmnast á í blöðunum, af því að opinber embættismað- ur á í hlut, er skipaeftirlit- ið og ýmislegt sem talið er athugavert við það. Mönnum finnst t. d. ekki viðkunnanlegt, að skipaskoð- '111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111 unarstjóri sjálfur skuli teikna mörg skip, sem smíð- uð eru nú orðið fyrir ís- lenzka útgerðarmenn og dæmi svo einnig sjálfur um, hvort skipið sé sjóhæft. í viðtali, sem Jónas Guð- mundsson stýrimaður átti liiliiliililliillillll'illilillillillllliilllliillillllliliiliil Bönnuð beggja megin! Útvarpið fordæmir gamanpiötu Hinir alvísu forráðamenn tónlistardeildar Ríkisútvarps- ins hafa enn einu sinni setzt í páfastól „vizku“ sinnar og lýst banni á hljómplötu, — sem þó var tekin upp í kon- ungdæminu sjálfu. Er hér um að ræða nýjar grínvísur, sungnar af Ömari Ragnars- syni. Á plötu þessari eru tveir eöaigvar, og fjallar annar um Viggu, og mun vera sá, sem umturnaði siðgæðisábyrgð mektarmannanna. Hinn er einskonar Karlagrobb, hvoru tveggja bráðskemmtilegt, eins og búast mátti við af Ómari — en það er eins og húmorinn vanti hjá þeim út- varpsmönnum og varla von að áhugi aukist fyrir því með slíkum vinnubrögðum. við blaðamenn í tilefni af bók, sem nýlega var að koma út eftir hann, barst talið að hinum tíðu sjóslysum hér við land. Hann sagði: — Eg held að það alvar- legasta í þessu máli sé eft- irlitið, eða réttara sagt eft- irlitsleysið Það er eins og allir koppar fái haffærnis- skírteini ef þeir geta bara flotið. Skip eru t. d. aldrei hallaprófuð eftir að breyting ar hafa verið gerðar á þeim Þeir segja, þessir ágætu menn hér í skoðuninni, að það sé ekki hægt. Eg segi aftur á móti. Það er enginn vandi. Eg gæti gert það 3jálfur, hvenær sem er. Ennfremur benti Jónas á, í þessu sambandi, að skilrúm ið milli lestar og lúkars hefði sprungið í Arnkeli frá Rifi við bryggju í Neskaup- stað. Báturinn var með fulla (Framh. á bls. 4) fengið að sjá mikiivæg gögn, en orðið að sjá af þeim aft- ur í hendur okraranna. Á- stæðan var sú, að okrarana greip slíkur skelkur, er þeim varð ljós alvara hlutaðeig- andi, sem ekki þoldu stór- felld skakkaföll í fjármálum, og urðu því að láta sér lynda að hlutur þeirra væri réttur. Við vildum gjaman birta öll nöfn í þessu sambandi, en getum ekki að svo komnu máli. Við verðum að láta okkur nægja, að þessu sinni, að nefna dæmi. Fjárþurfi framkvæmda- stjóri nýs fyrirtækis fékk fyrir nokkru heimsókn af ná búa sínum, fasteignasala, og kvaðst sá skyldu útvega hon- um hagstætt lán hjá kaup- manni nokkrum, sem hjálpað hefði mörgum í vandræðum. Skyldi hann samþykkja tvo víxla, að fjárhæð 55 og 65 þúsund krónur. Víxlamir yrðu síðan seldir í banka á venjulegum vöxtum. En það var ekki fyrr en mánuði síð- ar, sem framkvæmdastjórinn fékk andvirðið í hendur: 40 þúsund í peningum, og 60 þúsund í víxlum, sem fast- eignasalinn kvað arulltrygga, en voru hvorki samþykktir af kaupmanninum. lánveit- andanum, eða fasteignasalan um! Víxlar þessir reyndustj síðar óseljanlegir. og sam- þykkjandi þeirra ógreiðslu-1 Er þetta hægt? Samkvæmt efnahags- reikningum Reykjavík- urkaupstaðar hefur stofnkostnaður við Sorp eyðingarstöðina numið samt. kr. 10.977.383.18. Þessi f járhæð sundur- liðast þannig á árin 1955—1961: 1955 — kr. ... 9.614.70 1956 — kr. . 837.739.00 1957 — kr. 4.165.228.36 1958 — kr. 4.052.116.68 1959 — kr. 1.251.665.48 1960 — kr. . 530.148.38 1961 — kr. . 130.870.58 Samt. kr. 10.977.383.18 Þetta er mikið verð fyrir ekki meira mann- virki en hér er um að ræða. En þegar Sveinn í Héðni hefur fengið meira en helmingi meira fyrir vélamar, heldur en tilboð hans hljóðaði upp á, eins og bent var á í síðasta tbl. — eða yfir 3 millj. kr. framyf- irgreiðslu — þá skal mann ekki undra þótt annar kostnaður við stöðina kunni að vera í samræmi við það. fær. Þegar fyrri víxillinn féll í gjalddaga, ætlaði frkvstj. að greiða af honrnn 20 þús- und, en fá framlengingu á af ganginum. Fór hann í því skyni til fasteignasalans, er kvað framlenginguna sjálf- sagða. Hún kostaði bara 10 þúsund krónur! Upp á aðrar spýtur fengist hún ekki. Nokkru áður hafði sami fasteignasali komið að máli við framkvæmdastjórann, er sá nú orðið enga leið út úr ógöngunum, og boðið honum enn hagstæðara lán hjá öðr- um kaupmanni. Þyrfti hann ekkert annað en samþykkja víxil til þriggja mánaða að fjárhæð 45 þúsund krónur. (Framh á bls. 5) NÝTT LAXNESS-MÁL? Fyrir nokkrum árum seldu eigendur Laxnessbús- ins töluvert á annað hundrað lóðir úr landi sínu undir væntanlegar íbúðahúsbyggingar. Skyldu seljendur skila akfærum vegum og útmældum lóðum, en á hvorutveggja mun vera einhver misbrestur, þvi ó- ánægja mun vera gífurleg hjá kaupendum sökum van- efndanna og standa jafnvel fyrir dyrum málaferli við seljendur. Hér er um milljónir króna að ræða og verður fróð- legt að fylgjast með málarekstrinum.

x

Ný vikutíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný vikutíðindi
https://timarit.is/publication/881

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.