Ný vikutíðindi


Ný vikutíðindi - 21.12.1962, Side 1

Ný vikutíðindi - 21.12.1962, Side 1
TVOFALT BLAD 16 SfDUR ALLS Föstudaginn 21. des. 1962 — 51. tbl. 2. árg. — Verð kr. 5.oo. Nýjar BRÚIN YI IR KWAI-FLJÓTH) Pierre Boulle 184- bls. Prentuö í Félagsprent- smiSjunni. — Stjörnuútgáfan. Þegar kvikmyndin um Kwai- fljótið kom hingað fyrir nokkr- um árum, hafði hróður liennar borizt langt á undan henni, og menn urðu sannarlega ekki fyr- ir vonbrigðum. Það var djarf- lega teflt fram lirikalegri at- burðarás og af næmleik túlk- aðar tilfinningar og skapliöfn, sem minnisstæð varð áhorfand- anum. Það var ekki fyrst og fremst fyrir snjallan leik af- hragðsleikara, sem inyndin var hrífandi, heldur var efnið með slíkum ágætum, að virðingu átti skijið. Það hefur dregizf, að bókin kæfni á markaðinn, en nú er hún á jólamarkaðnum. Margir liafa að vísu fylgzt með henni í Morgunblaðinu á sínum tíma, en engu að síður er mikill feng ur í að fá liana í sérútgáfu, jafn snoturri og raun ber vitni. Þýð ing Sverris Haraldssonar, sem misfellulaust mátti lesa í Morg- unblaðinu, hefði mátt taka til nánari atliugunar fyrir útgáf- una. margt gerist á sæ 2^0 bls. Prenluö í Prentverki Akraness li.f. — Ægisútgáfan. Ægisútgáfan hefur undanfar- in ár sent frá sér um hver jól safn sjóferðafrásagna, og hef- ur þar gjarnan borið mest á allskyns svaðiiförum og hetju- dáðum í samliandi við sjóinn. Sjóferðasagnabókin í ár inni- heldur 16 slíkar frásagnir, þýdd ar af þeim Óla Hermannssyni, Bárði Jakobssyni og Ragnari Jóhannessyni. I heild er bókin heldur vel unnin, frásagnii' margbreytileg- ar og spennandi. Þýðingu, a. m. k. á sumum köflunum, hefði þó mátt vanda stórlega mikið het- ur. Einna mestur fengur er í kaflanum um þýzka orrustu- skipið Scliarnhorst, en hann fjallar um endalok þess, vel skrifaður og þýddur. hugprúðir menn John F. Kennedy — Teikning- bœkur ar eftir Emi\ iKez'ss -— 167 bls. — PrentsmiSjan Ásrún. Bók þessi á erindi til ís- lenzkra lesenda. Þar segir frá ýmsum þeim þingmönnum bandarískum, sem komið hafa við sögu sakir einurðar sinnar og hugprýði, og Iiregður upp furðu gömlum svipmyndum úr baráttu á ýmsum tímum vif skilningsleysi og afturhalds- semi, sem þá hefur rikt og þurfti dirfsku til að rísa upp á móti, og minnir víða á hlið- stæður úr sjálfstæðisbaráttu okk ar sjálfra. Frásagnir þessa vinsæla • for- seta Bandaríkjanna hlutu að vonum prýðismóttökur í heima- landi hans, enda afburða vel stílfærðar. Voru lionum ó sín- um tíma veitt verðskulduð verð laun þar vestrá. Islenzku þýðinguna hefur Bárður Jakobsson gert, af vand- virkni og alúð. SÖNGUR HAFSINS A. S. Rasmussen — 22A bls. — Prenluö í Prentverki Akraness ■— Ægisútgáfan. Saga skips, sögð af því sjálfu. Forvitnilegt viðfangsefni, er tekizt hefur með slíkum ágæt- um, sem sá einn getur, er ann skipi sínu, unir sér hezt á vagg andi hárum, finnur sjómanns- lífið samgróið öllu því bezta í sér. Þetta er fyrst og fremst hug- ljúf tjáning, sem er unun að lesa. Þýðingin dansar á glettn- um öldum, rís sjaldan hátt, en kemst stundum í anzi djúpa dali — aldrei verður bókin samt Ieiðinleg, fjarri því. Guðmundur Jakobsson íslenzk aði textann og Egill Bjarnason ljóðin. Hinn síðarnefndi átti að taka betur á, er hann glímd við Masefield. 1 FÓTSPOR MEISTARANS H. V. MORTON — 292 bls. — PrenlsmiSjan Ásrún. Þetta eru fróðlegar og skemmti jegar ferðahugleiðingar frá Gyð- ingalandi, Núna um jólin, á fæðingar- hátíð frelsarans, er tilhlýðilegt (Framh. á bls. 10) N O R Ð R I: Verður Framsókn boðið upp á stjórnarsamvinnu? DÝRTlÐIN Sjálfstæðismenn eru farnir að hugsa alvarlega út í þá staðreynd, að Fram- sóknarflokkurinn vinni á í Alþingis- kosningunum í vor. Þetta er því rauna- legra fyrir þá, þar sem þeir bjuggust við að Viðreisnin mundi ganga svo vel að stjórnarflokkarnir stórykju fylgið. Þetta fór þó á annan veg í bæjarstjórn arkosningunum og sama sagan endur- tekur sig í vor. Auk þess er fyrirsjáanlegt að dýr- tíðarskrúfan heldur áfram jafnt og þétt, og hún verður ekki stöðvuð með þessum svokölluðu Viðreisnaráformum. Sem betur fer er atvinna mikil, og al- menningur við sjávarsíðuna getur bætt upp hin geisilágu laim með eftirvinnu, en kröpp kjör bænda eru vatn á myllu Framsóknar', því þeir geta ekki bætt sín laun með aukinni vinnu. Þetta ástand veldur Sjálfstæðismönn- um áhyggjum og við þær bætist svo Efnahagsbandalagið, sem Framsóknar- menn eru andvígir, a. m. k. á yfirborð- inu. Það virðist því eiginlega ekki vera nema ein leið i þessu máli og það er að bjóða Framsókn upp á stjórnarsam- vinnu. FRAMSÓKNARMENN Þessi leið hefur verið yfirveguð af nokkrum forustumönmun Sjálfstæðis- flokksins og reynt að leiða getur að hverjir mundu verða ráðherrar Fram- sóknar í samsteypustjórn með Krötum og þeim sjálfum. Hallast menn að þeirri skoðun, að yngri mennimir séu fráhverfir Eysteini og Sjálfstæðismenn vilji hann ekki svo að hæst ber því nafn Ólafs Jóhannessonar, prófessors og Jóhannesar Elíassonar, bankastjóra. Naumast koma aðrir til greina í þeim flokki, þar sem yngri mennina skortir reynzlu til þess að taka að sér svo ábyrgðarmikið starf, sem ráðherra- embætti krefst. Ölafur og Jóhannes eru góðir og gegnir menn, sem andstæð- ingar þeirra mundu sætta sig við að .starfa með í ríkisstjórn. Framsóknarflokkurinn á til viðbótar nokkra efnilega menn, t. d. Einar Ág- ústsson og Jón Skaftason, en eins og fyrr getur eru þeir enn ungir og reynzlulausir en verða án efa fremstu menn í sínum flokki áður en mörg ár líða. KRATAR ÖGLAÐIR Alþýðuflokkurinn er einarðlega á móti þessu bralli og hefur látið í það skína að hann vilji ekki eiga neinn þátt í slíkri sambræðslustjórn. En hann á ákaflega óhægt um vik, því hann á líf sitt undir Sjálfstæðisflokknum, sem verður að ljá honum þúsundír atkvæða í næstu kosningum ef Alþýðuflokkur- inn á að halda lífi. Þar að auki er al- varlegur klofningur innan flokksins og sterkur vilji meirihlutans að reyna að minnka áhrif Guðmundar I. Guðmunds- sonar. Ef úr sambræðslunni verður, þá hætt ir Guðmundur 1. sem ráðherra og fær í staðinn sendiherraembættið í Osló, en Haraldur Guðmundsson er nú að kom- ast á aldurstakmönkin og hættir innan eins árs. Með þessari ráðstöfun verða mörg sár grædd innan Aliþýðuflokksins og ekki ósennilegt að Áki Jakobsson verði þá tekinn í sátt aftur, en það mun hafa verið fyrir tilstilli Guðmundar að honum var bolað frá framkvæmda- stjórn Alþýðublaðsins. — Annars er enn fullsnemmt að reikna með Alþýðu- flokknum og vænlegra að bíða vor- kosninganna með bollaleggingamar. BJARNI VONGÓÐUR Ólafur Thors hefur lengi ætlað sér að hætta í pólitík og mun nota tæki- færið við slíka sambræðslu og hætta sem forsætisráðherra ef samkomulag næðist en trúlegra þykir að Eramsókn vilji heldur Gunnar Thoroddsen. En Bjami er ákveðinn og ákafur og ef hann leggur mikla áherzlu á embættið, lætur Gunnar sennilega í minni pokann og hættir en leggur þeim mun meiri áherzlu á forsetaembættið. Ingólfur Jónsson verður þá ráðherra áfram. Með þessari nýskipan tekst Sjálfstæð ismönnum að tryggja aðild að Efna- hagsbandalaginu, í hvaða mynd sem hún nú verður, en þeir sjá mánna gleggst nauðsynina að vera ekki fyrir utan það. Dýrtíðarmálunum verður einnig hægt að bjarga með því að gera fleiri flokka ábyrga fyrir þessu vanda- máli þjóðarinnar og skortir aðeins fylgi og vilja Framsólmar í þeim efnum. Norðri.

x

Ný vikutíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný vikutíðindi
https://timarit.is/publication/881

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.