Skátablaðið - 01.10.1998, Qupperneq 16
rftíítfrk-pfHnaj a,
Kæru foreldrar.
Umferðarslys taka mestan toll afþjóðinni, bæði hvað varðar örkuml og dauðafyrir aldur
fram.
Mörgum hættir til að líta á þessar staðreyndir sem áhættu sem fylgi því að búa í tækni-
vœddu samfélagi og litlu verði þar um breytt. Sú er ekki reyndin, mjög miklu má breyta og
draga má úr slysum með aðgerðum sem einkum reyna á skynsemi fólks.
Umferðin er sérstaklega skeinuhætt börnum og ungu fólki og er því eðlilegt að skáta-
hreyfingin, hreyfing barna og ungs fólks, láti öryggismál í umferðinni til sín taka meö því
að hvetja til fræðslu og varkárni meðal yngstu vegfarendanna, því lengi býr að fyrstu gerð.
A haustin er skyggja fer og börnin hópast í skólann, eykst hœttan í umferðinni til muna.
Vetrarmyrkur og válynd veður, snjór og hálka auka hœttuna og ökumenn eiga erfiðara með
að komast leiðar sinnar. Þá ríður á að vera viðbúinn og gera réttar ráöstafanir til að
tryggja betur öryggi barnanna. Endurskinsborðar hafa reynst ómetanleg öryggistœki í
skammdegisumferðinni og skiptir fyrst ogfremst máli að fólk venji sig á að nota endur-
skinsborða eða endurskinsmerki á hverjum degi.
Með því að fœra öllum sex ára börnum í landinu að gjöf hentugan endurskinsborða sem
brugðið er yfir öxl barnsins, erum við þess fullviss að börnin venja sig á að fara varlega í
umferðinni. Þau verða með tímanum betri og tillitssamari vegfarendur en við sem nú erum
á fullorðinsárum.
Það er betra og skynsamlegra að tendra Ijós en aðformæla myrkrinu og með þessum
endurskinsborðum, sem við biðjum foreldra að aðstoða börnin við að setja rétt á sig, viljum
við koma því til leiðar að börnin geti látið Ijós sitt skína í vetrarmyrkrinu um leið og við
heitum á foreldra að taka höndum saman með okkur og rifa upp umferðarreglurnar með
börnunum.
Með kærri kveðju,
/
Olafur Asgeirsson
skátahöfðingi
Lftutn Ijc5 oWtxr ‘jk.ívux