Skátablaðið - 01.10.1998, Qupperneq 17
Að mörqu er gð hyqqfi
Umferðin í dag er hröð
allir eru að flýta sér og
sl<ilti og reglur eru margar.
En það er engin ástæða til
að milcla vandamálið fyrir
sér, vandamál eru til þess
elns að leysa þau og for-
eldrar og börn eru ekki í
neinum vanda með að læra
á umferðina, aðeins ef þau
v'nna saman.
Sex ára barni fmnst ekkert gaman að
láta segja sér að gera þetta eða hitt —
ekkert frekar en fullorðnu fólki. Því er
fitikilvægt að hjálpa þeim að skilja það
Sern þau eiga að gera og af hverju þau
e>ga að gera það.
KJbörn
Sex ára börn eru ótrúlega skynsöm
°g klár. Þau vita af hverju þau eiga að
Vera með endurskinsborða, þau vita af
hverju þau eiga ekki að leika sér úti á
§ötu, þau vjta hvað þau mega ekki.
En — sex ára börn eru bara börn og
Þau gleyma oft reglunum í hita leiks.
Þau þurfa líka alltaf að fmna hvað þau
komast upp með. En börn vilja skýrar
línur. Ekkert ruglar börn meira en reglur
með mörgum undantekningum. Hafið
því leiðbeiningar til þeirra einfaldar.
Gangið með b^rninu
Börn þurfa oft að fara á ýmsa staði
án fylgdar fullorðinna. Oftast eru þetta
stuttar vegalengdir en samt þarf að
gæta þess að þau fari öruggustu leiðina
og fari varlega. Það er góð hugmynd að
ganga með barninu öðru hverju í
skólann, í félagsmiðstöðina eða til vin-
anna. Þetta eykur tengsl við barnið og
barnið segir ffá ýmsu sem það hefur
tekið eftir á leiðinni. Gott er að nota
tækifærið og ræða hætturnar á leiðinni
og hrósið barninu fýrir góðar hug-
myndir og athygli. Þetta er ekki nóg að
gera einu sinni, börn eru fljót að
gleyma og því er gott að minna þau á
öðru hverju.
Sýníð gott
Gleymið ekki að börnin fylgjast
grannt með foreldrum sínum og hafa
þá sem fyrirmyndir. Ef foreldrar eru
aldrei með endurskinsmerki, af hverju
ættu þau þá að vera með slíkt? Látið
ekki hanka ykkur! Ef það gerist, látið
börnin minna ykkur á næst. Látið
börnin samt ekki halda að þau beri
ábyrgð á því hvernig þið hagið ykkur í
umferðinni, það er alveg á ykkar
ábyrgð.
Ofmetíð ekkí
Þó börn séu skörp, þá má samt ekki
ofmeta getu þeirra. Börn hafa takmark-
aðan skilning á ýmsum merkingum og
umferðarmerkjum. Þau horfa á ein-
staka þætti en sjá oft ekki samhengi
heildarinnar.
Texti: gg
Mynd: Úr bæklingi Umferðarráðs, Á leið í skólann.
• •
Mundu eftir
endurskinsborðanum
frá skátahreyfingunni!
SkÁtflbltáið. —jyrir elctjvreswn m'k.ulýð