Skátablaðið - 01.10.1998, Blaðsíða 38
Hvemig uppliföir þú þína Jyrstu heimsókn
á skátaþing?
Ég upplifði hana mjög jákvætt, það
var mjög gaman að koma og sjá
hvemig hreyfingin fæst við mál sem
skipta máli og horfir vel til firamtíðar
og setur sér m.a. mark um fjölgun og
áherslur.
■
viö Sigríði Önnu Þórðardóttur þingmann:
í upphafi skátaþings voru fjörugar pallborðsumræðuf um stöðu
skátahreyfingarinnar. Meðal þátttakenda var Sigríður Anna Þórðar-
dóttir þingmaður sem fékk m.a. fjölda spurninga um stuðning hins
opinbera við skátastarf á íslandi. Blaðamaður náði tali af henni að
pallborðsumræðunum loknum.
Hejur þessi heimsókn og pallborðsum-
rœðan breytt eitthvað skoðunum þínum á
skátastarfi?
Skoðun mín var mjög jákvæð fyrir
og hefur styrkst við þessa heimsókn.
Greinilegt er, að það er margt sem
brennur á, m.a. að sýna ffam á mikil-
vægi góðs starfs fyrir ungt fólk og bar-
áttan um börn og fjármuni í sam-
keppni við önnur félög.
Telur þú skátahreyfinguna vera einan af
homsteinum íslensks þjóðfélags?
Já, ég tel svo vera — ásamt mörgu
öðru. Skátastarfið er mjög gildur
þáttur í uppeldi ungs fólks og hefur
verið það lengi. Ævintýrið í starfinu
er heillandi og samfélagsþátttakan. Já,
skátastarfið er einn af hornsteinunum
í hollu starfi fýrir ungt fólk.
Munt þú beita þér jýrir að auka stuðning
við skátastarf í framtíðinni?
Ég get engu lofað en mun skoða
málið mjög vel við afgreiðslu næstu
fjárlaga þó svigrúmið sé mjög litið.
nnn
yyn
Afirj
ismot
Dagana 8. til 12. júlí var haldið
60 ára afmælismót skátafélagsins
Faxa í Vestmannaeyjum. Skáta-
mótið var haldið í Skátastykkinu
sem er útivistar- og útilegusvæði
Faxa7 þar er nú búið að reisa um
90 m2 glæsilegan skála í anda
gömlu torfbæjanna. Um 200
skátar, úr 10 skátafélögum,
mættu til leiks og skemmtunar í
þessa fimm daga sem að mótið
stóð yfir.
Þema mótsins var náttúran og um-
hverfið og var dagskráin sniðin að því.
Skipt var niður í þrjú aðaldagskrárlönd;
„Sprönguland“, en þar var aðaláherslan
lögð á þjóðaríþrótt Vestmannaeyinga,
sprang, klifur og sig, „Þrauta og meta-
land“, þar þreyttu skátarnir ýmsar
þrautir eins og skátum er einum lagið og
loks var það „Gönguland" en þar voru í
boði gönguferðir um Heimaey og báts-
ferð með víkingaskipinu íslendingi.
Innan hvers lands var því fjölbreytt dag-
skrá þar sem allir gátu ftrndið eitthvað
við sitt hæfi.
Mótsstjórnina skipuðu eftirtaldir: Sig-
mar Valur Hjartarson mótsstjóri, Einar
Öm Amarsson aðst. mótsstjóri, Guð-
mundur Vigfússon og Viktor Ragnars-
son dagskrárstjórar, Ármann Höskulds-
son tjaldbúðar- og framkvæmdarstjóri
og Sigríður Guðmundsdóttir gjaldkeri.
Það sem var sérstakt við þetta mót var
hvað veðrið lék við mótsgesti en sólin
lék á alls oddi allan tímann sem að
mótið stóð yfir. Öflugt vinnubúðarlið
var á svæðinu og án þeirra hefði þetta
mót ekki verið ffamkvæmanlegt. Færir
móstjórn þeim bestu þakkir fýrir gott
framlag. Veitt voru verðlaun fyrir bestu
tjaldbúð og bestan árangur í hverjum
dagskrárlið fyrir sig en að lokum stóðu
allir uppi sem sigurvegarar.
Armann Höskuldsson
Ljósm.: Rósa mamma
51aíttMttírf— sjÁ-lptdAður lípstíll!