Ný vikutíðindi - 16.07.1971, Page 8
8
NÝ VIKUTÍÐINDI
Úr bréfabunkannm
E§kimóaháttnr. — Borgarstarí'sfolk atyrt. —
• •
Þröngsýni og lubbaliáttur. — Oskurapar og
iiibiialiáttnr.
Eskimoaháttur,
„Einn útlendur vinur minn,
sem var á ferð hér fyrir stuttu
og er kunnugur vínmálum okk
ar, sagði það um vínmenningu
hér; að hún væri til háborinn-
ar skammar fyrir land og
þjóð. Engan áfengan bjór er
hægt að fá, og oft þarf að
hanga langan tíma eftir af-
greiðslu í lítilli vínbúðarholu
eftir þriðja flokks borðvíni.
— Hvílik undur og hvílík-
ur eskimóaháttur! varð honum
líka að orði. Er Mafíufélag hér
starfandi, eða er þetta musteri
hysteriskra kerlingasamtaka?
Ég hef lengi vitað, að gert
er stólpagrín að þessum mál-
um hér á landi. Það er heldur
ekki seinna vænna að gera
gangskör að bættri áfengislög-
gjöf. Tími er kominn til að
breyta þessum málum tafar-
laust: hafa vínbúðir opnar á
kvöldin, leyfa næturklúbba og
opna morgunkrár fyrir öskr-
andi fyllibyttulýð fremur en að
láta hann vafra hér um göt-
urnar.
í þessu sambandi vil ég
benda á, að ekki minnkar
smyglið til landsins, því um
mánaðamótin var hægt að fá
stór partí af vodka, viskýi,
gini og sígarettum án milli-
göngu opinberra einokunar-
verzlana.
Nei; vín og bjór í hverja
matvörubúð; það er ráðið,
sem Þjóðverjum og fleiri þjóð-
um hefur dugað vel gegn á-
fengisbölinu.
Örn.“
Satt segir þú, hinn frómi.
Borgastarfsfólk
atyrt
„Samkvæmt upplýsingum,
sem ég hef aflað mér, er inn-
heimta skulda í öðrum lönd-
um óheimil héðan, nema ef
vera skyldi á Norðurlöndum
og ef um annað er samið.
Sem dæmi um slíka ólöglega
innheimtuaðferð get ég nefnt
það, að Réykjavíkurborg reif
á sínum tíma út fjölskyldubæt
ur manns, sem dvaldi erlendis,
án leyfis hans. Borgin neydd-
ist til að endurgreiða þetta fé.
Borgaryfirvöldin ættu að
láta líta eftir því; að starfs-
fólkið héldi sig við vinnu. Ég
hef grun um að t. d. rafvirkj-
ar, sem voru í vinnu hjá borg-
inni, tóku iðulega tvo tíma í
kaffi og annað eftir því.
Þá vildi ég koma fram til-
mælum til starfsliðs borgar-
skrifstofanna, að það sé óþarfi
að skeyta skapi sínu á saklausu
fólki, sem sent er með borgun
í sjóðinn, heldur snúi það sér
beint til skuldunautarins.
Svo get ég ekki stillt mig
um að segja frá því, sem ég
heyrði nýlega eftir áreiðanleg
um heimildum: Vel stæður mað
ur kom með beiðni frá borgar-
yfirvöldum til verzlunar nokk-
urrar um vöruúttekt upp á 25
þúsund krónur!
Reykvíkingur."
Það eru fleiri en Reykja-
víkurborg, sem þurfa að beita
öllum brögðum við . inn-
heimtu skulda, og einnig sætta
sig við vinnusvik. En það er
alveg forkastanlegt, þegar
gjaldkerar, skrifstofufólk eða
forstjórar eru að atyrða sendla
eða rukkara og gera þeim
gramt í geði. Þeir eru aðeins
milliliður, sem ekkert vita um
málavexti. — Það er ekki fal-
legt.
Við þennan úttektarseðil
þarf ekkert að vera athuga-
vert, því varla er maðurinn á
bænum, ef hann er vel stæð-
ur. Samt vitum við að margir
notfæra sér það, hversu lítið
eftirlit er haft með fram-
færslumálum borgarinnar og
lifa lúxuslífi á kostnað skatt-
greiðenda.
Þröngsýni og
lubbaháttur.
„Satt mun það vera, sem
komið hefur fram í dagblaðs-
grein, að flest dagblöðin eru
hrædd við að birta sumt af því,
sem hiklaust ætti að koma á
prenti. Frjálsu blöðin eru þar
undantekning.
Allir eiga rétt á að hafa sína
skoðun, hver svo sem hann er,
lítill eða stór, en þröngsýni og
einokun einkennir ísland í
dag. — Þessir afdönkuðu póli-
tízku postular, sem geta naum-
ast litið dagsins ljós fyrir
tómri öfund, og vilja öllu
ráða, ættu að eiga heima uppi
á Vatnajökli.
Við höfum síður en svo efni
á þeirri stjórnmálalegu spill-
ingu og óstjóm, sem hér ríkir.
Það er barist með kjafti og
klóm um völdin — eins og
vænta mætti að hungraðir úlf-
ar í sauðagæru gerðu, ef kastað
væri í þá vænu sauðalæri.
Meira að segja aflóga sveita-
durgar þenja stólpakjaft að til-
efnislausu í sölum Alþingis.
Til dæmis um þröngsýnina
og lubbaháttinn má taka það,
að þegar Keflavíkursjónvarp-
ið sést loksins sómasamlega, þá
á að rísa upp á móti því eins
og grenjandi ljón.
Og ef einhverjum hugvits-
manni dettur það snjallræði í
hug, að láta vel skapaða kven-
veru birtast á mynd í blaði,
ætla hinir fávísu spekúlantar
vitlausir að verða. Góðan
smekk hafa þeir a. m. k. ekki.
— Ég vildi t. d. eindregið láta
Mánudagsblaðið birta aftur
stúlkumyndina, sem kom þar í
blaðinu fyrir mánaðamót — og
láta hana vísa móti sól — og
fram. . .
Frjálslyndur“
Skoðanafrelsi á prenti mun
vera að nafninu til í lögum hér
á landi, þótt margt skorti á um,
að það sé svo í framkvæmd.
Opinbera starfsmenn má t.
d. ekki ávíta, þótt þeir sekir
séu, gagnstætt því sem er í
Framhald á bls. 4
>'•••• • •••••*« •••••••• ••••
*•••*
>i
glasbotninum
Pósthúsið og ferðamenn
Nú er ferðamanna-
strauinurinn meiri en
nokkru sinni, og flestir er-
lendir gestir eiga erindi i
Pósthúsið. Þar er þó ekki
gert mikið fyrir þá, þvi t.
d. eru engar leiðheiningar
við frimerk j asj álfsaiann,
nema á isilenzku.
Ekki eru lieldur neinar
leiðbeiningar fyrir þá um,
hvenær Pósthúsið er opið,
sem varla er von, því upp-
lýsingaþjónusta póststjórn
arinnar er ekki hetri en
svo fyrir okkur innfædda,
að þar stendur að opið sé
M. 10—11 á sunnudags-
morgnum, en i rauninni er
opið kk 9—10!
Sveitamennska
Púrrur (porri, höfuð-
laukur) hafa ekki fengizt
um tíma, húsmæðrum til
armæðu, þvi þær eru nauð
synlegar i ýmsan mat, eink
um ef hann er búinn til ef I
ir útlenzkum uppskriftum.
Grænmetiseinkasalan af
sakaði þennan púrruskort
með þvi, að þær hafi verið
svo dýrar í innkaupum að
hætt hafi verið við pöntun
á þeim.
Nú eru islenzkar púrrur
komnar á markaðinn, ör-
litlar og mjóar líllur, sem
kosta 22 krónur stykkið!
Þær útlenzku, sem siðast
fengust, kostuðu 12 krónur,
og voru miklu stærri!
Allt er það eins’hjá þess-
um einokunarforkólfum
sveilamanna.
Það er ekki verið að
hugsa um neytandann t
þessu tilfelli sem fleirum
hjá þessari stofnun.
Ilvern er verið að hugsa
um?
*
Sjónvarpið
Það var svo sem eftir
öðru að farið væri að fár-
ast út í Kef! avíkursjónvarp
ið, á sama tíma og íslenzka
sjónvarpið hætti útsending
um i lieilan mánuð!
Vað er ekki von á nerna
fylgistapi hjá þeiin stjórn-
málaflokki, sem farið Oief-
ur með útvarps- og sjón-
varpsmái, þegar hann læt-
ur liafa sig i það fádærna
óvinsæla verk, að ætla að
meina fólki að horfa á
Keflavíkursjónvarpið, á
sama tíma og það leyfir
lokun islenzka sjónvarps-
ins eitt kvöld i viku og i
einn mánuð á ári hverju.
Auk þess sem dagskráin
gæti verið ólikt skemmti-
legri, þá sjaldan sem sjón-
varpið starfar.
Ekki er ársgjaldið svo
lágt.
X-
Rakarar - bakarar
Einhvern tima fyrir
nokkuð mörgum árum var
auglýst í dagblaði eftir
lærlingi í rakaraiðn. Marg-
ir sótlu um, en þegar i Ijós
kom að um prenlvillu var
að ræða og að standa átti
bakaraiðna, dofnaði áhug-
inn.
Nú eru tímarnir breyttir.
Síðan karlmenn tóku að
safna tuári hefur rakara-
stéttin svo lítið að gera að
margir hárskerar hafa leii
að sér að annarri vinnu.
Á hinn bóginn lifa bakar
ar kóngalifi; hefur jafnvcl
heyrst að rcikarcir vilji gcr
astbakarar.
Slæmur þulur
Til þess að valda ekki
neinum misskilningi er
rétt að taka fram, að þegar
spurt var um það nýlega í
þessum dálkurn, hvort Rík
isútvarpið Iiefði ekki ráð á
að hafa sæmilegan þul til
að lesa upp morgunfrétt-
irnar, þá var átt við mann
þann, sem les þær klukkan
hálfátta á morgnana.
Þessi maður er annað
livort ekki læs eða þá ao
handrit hans eru svo slæm
að liann kemst oft ekki
fram úr þeim. — Þetta er
ekki hægt.
Á hinn bóginn er Jón
Gunnlaugsson liinn ágæt-
asli þulur.
*
Brandari vikunnar
Snarpar vindhviður
komu fyrir húshornið, og
fagurvaxin stúlka héll með
báðum höndum um hatt-
barðið, en pilsið fauk hátl
upp á búkinn. Tveir karl-
menn liorfðu af miklum á-
huga á stúlkuna berjast
þannig, við vindinn, en
stúlkan var bó ekki meira
af baki dottinn en svo, að
hún kallaði lil þeirra:
„Það, sem þið eruð að
gá að, er orðið:23 ára gam-
alt, en hatturinn minn er
splunkunýr!“ '[] : T
Og einn ennþá ...
Blaðamaður nokkur
spurði þekkta filmstjörnu
eitt sinn að því, hvort hún
væri trúlofuð manninum,
sem hún hafði sést með i
næturklúibbum nokkrum
sinnum.
„Það er alltaf sama sag-
an með ykkur blaðamenn-
ina,“ svaraði Holljnvood-
stjarnan lineyksluð.
„Stúlka má ekki lengur
sofa hjá karlmanni án þess
að einhver blaðamanns-
bjálfi fullyrði óðara að
liún sé trúlofuð!“
o
•
SPURULL
SPYRILS
Þarf að benda lögregl-
unni á það, að fermingar-
stelpur séu að fara um
borð i erlend skip i Reykja
víkurhöfn?
Ilvenær verður höfninni
lokað og komið á fót vænd
ishúsi fyrir a. m. k. útlend
inga, svo að kornungar
dætur R-víkur séu ekki sér
og þjóðinni iil skammar?
Og er ekki hægt að hafa
verði við höfnina, þegar
þörf krefur?